Fréttablaðið - 04.08.2020, Blaðsíða 19
FASTEIGNIR. FRETTABLADID.IS
Fasteignablaðið
3 1 . T B L . Þ R I ÐJ U DAG U R 4 . ÁG Ú S T 2 0 2 0
Fasteignamarkaðurinn ehf., s.
570-4500 kynnir fasteignina nr.
4 við Klettagarða í Reykjavík,
sem er byggt verkstæðishús,
söluskrifstofa og starfsmanna-
aðstaða fyrir ferðaþjónustu-
fyrirtækið Allrahanda.
Verkstæðishúsnæðið er á einni hæð en starfsmannaaðstaða og skrifstofur eru á tveimur
hæðum í suðvestur enda bygging-
arinnar. Eignin er samtals 2.048,2
m² að gólffleti, byggð úr forsteypt-
um einingum og með límtrésþaki.
Eignin stendur á afgirtri, fullfrá-
genginni og malbikaðri 8.604,0
fermetra leigulóð þar sem er mjög
gott athafnasvæði og mögulegur
viðbótarbyggingarréttur.
Verkstæðisrými: Um er að ræða
iðnaðarhúsnæði með allt að 7,5
metra lofthæð í mæni og átta inn-
keyrsludyrum frá norðri, sem hver
um sig er 4,5 metrar á hæð. Einnig
eru einar 4,5 metra innkeyrsludyr
norðan megin á austasta hluta
iðnaðarhúsnæðisins, sem innrétt-
aður er sem þvottastöð fyrir rútur
með öllum tilheyrandi tækjum.
Stærstur hluti húsnæðisins er inn-
réttaður sem verkstæði og er vel
tækjum búinn, en einnig er lager-
húsnæði og sprautuverkstæði.
Loftskiptikerfi er í húsnæðinu og
við norðaustur-hlið er niðurgrafin
sandgildra og olíuskilja. Ástand
verkstæðishúsnæðis er afar gott að
innan sem utan.
Skrifstofur á tveimur hæðum –
vesturendi: Á neðri hæðinni eru
meðal annars móttaka, afstúkaðar
skrifstofur og snyrtingar. Auk
þess er mötuneyti með eldhúsinn-
réttingu, starfsmannaaðstaða og
búningsklefar fyrir bæði kynin
með salernisaðstöðu og sturtum
á neðri hæð þessa hluta hússins. Á
efri hæð eru meðal annars afstúk-
aðar skrifstofur, opin vinnurými,
fundaherbergi, eldhúskrókur,
salerni og ræstikompa. Lagerrými
er inn af hæðinni, en þar er loft-
ræstikerfi hússins einnig staðsett.
Auk þess eru á efri hæð loftkælt
tæknirými o.fl. Linoleumdúkar
og flísar eru á gólfum og loft eru
kerfisloft með innbyggðri lýsingu.
Allar nánari upplýsingar veitir
Guðmundur Th. Jónsson lögg.
fasteignasali í síma 570-4500 eða
á netfanginu gtj@fastmark.is
Atvinnuhúsnæði til sölu
Stórt og mikið atvinnuhúsnæði er til sölu hjá Fasteignamarkaðnum.
Grensásvegur 3 • 2 hæð • 108 Reykjavík • Sími 530 6500 • heimili@heimili.is • heimili.is
Finnbogi Hilmarsson löggiltur fasteignasali.
ERT ÞÚ Í SÖLUHUGLEIÐINGUM?
-örugg fasteignaviðskipti
Við erum til þjónustu reiðubúin
Elín Viðarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Björn Þorri Viktorsson hrl.
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Jóhann Örn B. Benediktsson
Skrifstofustjóri
MIÐBORG FASTEIGNASALA - SUNDAGARÐAR 2 - 104 REYKJAVÍK - SÍMI: 533 4800
www.midborg.is
Sólveig Fríða Guðrúnardó tir
Nemi til löggildingar í fasteigna-
sölu og lögfræðingur.
Grensásvegur 11 I Sími 588 9090 I www.eignamidlun.is
FÁÐU RÁÐGJÖF SEM
BYGGIR Á REYNSLU
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is