Fréttablaðið - 04.08.2020, Blaðsíða 33
RAUÐI ÞRÁÐURINN Í
FYRRI HLUTA BÓKAR-
INNAR SEM HEITIR TAUGABOÐ Á
HÁSPENNULÍNU ER TJÁNING OG
AÐ KOMA MERKINGU TIL SKILA
Á MILLI FÓLKS.Arndís Lóa Magnús-dóttir hlaut nýlega Nýræktarstyrk Mið-stöðvar íslensk ra bók mennt a f y r ir ljóðabókina Tauga-
boð á háspennulínu, sem kemur út
hjá Unu útgáfuhúsi í október.
„Nýræktarstyrkurinn er mikil
viðurkenning fyrir ungan, óþekkt-
an og óútgefinn höfund og hvatning
til að halda áfram að skrifa,“ segir
Arndís.
Spurð hvenær hún hafi fyrst byrj-
að að skrifa skáldskap segir hún: „Ég
hef alltaf lesið mjög mikið. Það kom
fyrst. Bókum var haldið að mér. Ég
er alin upp á heimili þar sem alltaf
var verið að bæta við bókahillum.
Það voru bækur í öllum herbergjum.
Ég hef skrifað eitthvað frá því ég
var barn en ekki sýnt það neinum
fyrr en ég ákvað að senda ljóða-
handrit í Nýræktarsjóðinn í vor.
Ég tók BA-próf í frönsku og bók-
menntafræði og var í skiptinámi
í París og þá kviknaði áhugi á alls
kyns jaðarskáldskap. Ég hef verið
að vinna að þessari ljóðabók í vetur
með námi í þýðingafræði og lauk við
hana í fyrstu bylgju COVID.“
Hún segir eiga eitthvað af óbirtu
efni, aðallega ljóð og smásögur.
„Þannig að ég er upptekin af hinu
smáa formi. Sem fæstum orðum.“
Að geta ekki gert
sig skiljanlegan
Spurð um ljóðabókina segir Arn-
dís: „Rauði þráðurinn í fyrri hluta
bókarinnar sem heitir Taugaboð
á háspennulínu er tjáning og að
koma merkingu til skila á milli
Er upptekin af
hinu smáa formi
Arndís Lóa Magnúsdóttir hlaut Nýrækt-
arstyrk fyrir ljóðabókina Taugaboð á
háspennulínu. Fjallar þar um tjáningu.
Vegahandbókin er búin að vera í fyrsta sæti á Metsölu-lista Eymundsson frá því í
byrjun júní og situr þar enn sem
fastast. Á hæla hennar er Sumar í
París eftir Sarah Morgan og í þriðja
sæti er hin ágæta glæpasaga Þerap-
istinn eftir Helene Flood.
Í fjórða sæti er Þorpið eftir hina
vinsælu Camillu Sten og Mitt ófull-
komna líf, fjörug skáldsaga eftir
Sophie Kinsella er í fimmta sæti.
Í sjötta sæti er Sjáðu mig falla eftir
Mons Kallentoft og Handbók fyrir
ofurhetjur – Horfin er í sjöunda
sæti.
Ármann Jakobsson má vel við
una því nýjasta glæpasaga hans,
Tíbrá, er í áttunda sæti en hún
hefur hlotið góða dóma og vegnað
vel á listanum allt frá útkomu.
Vegahandbókin á toppnum
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
„Bókum var haldið að mér,“ segir Arndís. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
fólks. Eða réttara sagt að geta ekki
gert sig skiljanlegan og sem speglast
í samskiptum tveggja manneskja
á ólíkum aldri. Þær standa fyrir
utan tungumálið af mismunandi
ástæðum og passa ekki inn í það
norm sem tjáning felur í sér. Ég get
sjálf speglað mig í því.
Seinni hlutinn sem ég kalla Lif-
andi vísindi segir, held ég, ástar-
sögu tveggja undarlegra líkama.
Titillinn og hugmyndin á rætur að
rekja til þess að ég var áskrifandi að
tímaritinu Lifandi vísindum þegar
ég var barn, en þar er meðal annars
fjallað um aðrar plánetur og ýmsar
furðuverur. Ég fann einmitt bunka
af tímaritinu í kassa þegar ég var í
tiltekt í vetur.“
Móðir Arndísar, Auður Ava Ólafs-
dóttir, er þekktur og virtur rithöf-
undur. Arndís segist ekki leita til
hennar í sambandi við yfirlestur.
„Hún er svo upptekin. Það er hún
sem leitar til mín! Til að spyrja mig
hvað ég sé að lesa. Síðan vill hún vita
hvort bókin sé vel skrifuð!“
Tvö láglaunastörf
Spurð hvort f leiri bækur eftir hana
séu væntanlegar segir Arndís: „Ég
vona það. Ég er allavega komin með
hugmyndir. Næst á dagskrá er samt
að ljúka MA náminu í vetur.“
Þar sem hún stundar meistara-
nám í þýðingafræði liggur beinast
við að spyrja hvort hún ætli að
leggja þýðingar fyrir sig. „Já, það
verða þá tvö láglaunastörf, þýðingar
og ritstörf. Þýðingafræðin er rosa-
lega skemmtilegt fag. Krefjandi
skemmtilegt. Hún sameinar svo
margt sem ég hef áhuga á: bók-
menntir, tungumál og skriftir. Að
þýða er að endurskrifa bók á sínu
eigin tungumáli og það getur verið
mjög skapandi ferli. Ég hef verið að
þýða bók úr frönsku í sumar sem
stendur til að komi út á næsta ári og
mér finnst ég eiga örlitla hlutdeild
í verkinu sjálfu. Meistaraverkefnið
mitt verður líka þýðing á skáldsögu
úr frönsku.“
Vegahandbókin slær í gegn.
VERTU Í RÉTTA PAKKANUM Í SUMAR!
– MEÐ ÞÉR Í SUMAR
Þú getur lesið blað dagsins á frettabladid.is og í
Fréttablaðsappinu, hvar sem þú ert í sumar
FRÉTTABLAÐIÐ MEÐ
Í FERÐALAGIÐ!
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17Þ R I Ð J U D A G U R 4 . Á G Ú S T 2 0 2 0