Fréttablaðið - 04.08.2020, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 04.08.2020, Blaðsíða 40
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 550 5000 Hauks Arnar Birgissonar BAKÞANKAR Gerðu frábær kaup NÝTT OUTLET Afsláttur af skiptidýnum, eldri gerðum, sófum, hvíldarstólum, mjúkvöru og fl. ÚRVAL AF SÓFUM OG HVÍLDARSTÓLUM EITT MESTA ÚRVAL LANDSINS AF HEILSUDÝNUM NÝ SENDING AF SÆNGUM BY BRINKHAUS Ve rð b irt m eð fy rir va ra u m in ns lá tta rv ill ur o g/ eð a br ey tin ga r. GERIÐ GÆÐA- OG VERÐSAMANBURÐ KYNNTU ÞÉR VÖRUÚRVALIÐ OG VERSLAÐU Í RÓLEGHEITUM Í VEFVERSLUN OKKAR LISTHÚSINU LAUGARDAL s. 581 2233 | BALDURSNESI 6, AKUREYRI s. 461 1150 | OPIÐ virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 12-16 UMBOÐSAÐILAR Húsgagnaval, Höfn í Hornafirði og Bara snilld, Egilsstaðir BALDURSNES 6 – AKUREYRI LISTHÚSIÐ – REYKJAVÍK LISTHÚSIÐ – REYKJAVÍK UM FJÓRÐUNGUR LANDSMANNA SEFUR Á DÝNU FRÁ SVEFN & HEILSU* *Samkvæmt könnun frá Gallup.PRINCE POLO 35 G 99 KR/STK 2929 KR/KG Fyrir svanga ferðalanga Það er ekkert auðveldara en að gagnrýna aðra. Og þá á ég ekki við í merkingunni að rýna til gagns, heldur niðurrif án uppbyggilegs tilgangs. Mark- miðið er jafnvel að þagga niður í þeim sem hafa „ranga“ skoðun. Útiloka þá frá umræðunni. Margt bendir til þess að íslensk umræðu- hefð sé á slíkri vegferð. Kannanir í bandarískum háskólum sýna að tveir þriðju nemenda tjá ekki skoðun sína í kennslustund af ótta við að móðga samnemendur sína. Hræðslan við að vera fordæmdur er tjáningarþörfinni sterkari. Það er öruggara að þegja heldur en að eiga á hættu að vera sakaður um ranga skoðun eða nota óvart rangt orð til að lýsa henni. Þetta er hættuleg þróun enda eiga háskólar að kenna nemendum sínum gagnrýna hugsun. Nú kunna sumir að telja þetta jákvæða þróun, þar sem fólk muni nú vanda orðalag sitt og taki ríkara tillit til aðstæðna annarra. Það er vissulega eitthvað til í því en það leiðir samt til þess að skoð- anaskiptin hætta að fara fram. Til að styrkja skoðun, þá þarf að ögra henni. Svo má ekki gleyma því að rétttrúnaðurinn kann að reynast rangur – meirihlutinn hefur oft rangt fyrir sér. Við lærum ekki hvert af öðru ef stór hluti hópsins þorir ekki að tala. Það er mikilvægt að geta tjáð skoðun sína um menn og málefni án þess að ummælin séu kölluð hatursfull af þeim sem eru manni ósammála. Þeir sem þannig láta, gera það vegna þess að þeir vita að fólk hættir að þora að andmæla þeim. Slík aðferðafræði er ekki heillavænleg og verður að mót- mæla. Sannleikurinn þagna bestur?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.