Fréttablaðið - 04.08.2020, Blaðsíða 2
Veður
Hæg breytileg átt og skýjað. Aust-
lægari áttir seint og fer að rigna um
landið vestanvert um kvöldið. Hiti
yfirleitt 8 til 13 stig. SJÁ SÍÐU 16
Rennt í bæinn
Genesis® II E-415 GBS
Verð: 208.500 kr.
SAMFÉLAG „Þetta er efni sem ég
kynnti mér þegar ég var ungur
maður. Eftir að hafa leitað til allra
helstu útgefenda á Íslandi 1980 og
fengið höfnun ákvað ég bara að láta
þetta bíða,“ segir Erlingur Hansson
um 40 ára gamla þýðingu sína á
bókinni Byltingin svikin eftir Leon
Trotsky sem kom loksins út á vor-
dögum.
Erlingur segir að hann hafi öðru
hverju reynt að fá bókina útgefna á
þessum 40 árum. „Það sögðu alltaf
allir útgefendurnir að þetta væri vel
gert hjá mér en þeir vildu samt ekki
gefa bókina út. Það voru náttúru-
lega Stalínistar sem stjórnuðu Máli
og menningu 1980.“
Þýðingin fór í gegnum ákveðna
endurskoðun og las vinur Erlings,
sagnfræðingurinn Guðmundur
Jón Guðmundsson, meðal annars
yfir handritið.
„Svo fékk ég bara loksins mann
til að gefa þetta út. Steingrímur
Steinþórsson sem á Skruddu féllst
á að gefa bókina út. Það er ekkert
f lóknara en það,“ segir Erlingur
aðspurður hvers vegna bókin hafi
loksins komið út nú.
Hann viðurkennir að það hafi
verið afar góð tilfinning að fá bók-
ina loksins í hendurnar eftir öll
þessi ár. Erlingur segir að Byltingin
svikin sé án efa eitt af merkustu
ritum Trotsky.
„Stalín rak Trotsky úr landi 1929
og hann var raunar alltaf á f lótta
eftir það. Trotsky kom til Noregs
í árslok 1935 og fékk þar næði í
nokkra mánuði eða þangað til norsk
stjórnvöld þorðu ekki að hafa hann
lengur. Þá voru kratarnir í stjórn en
þeir voru mjög róttækir.“
Trotsky settist niður í Noregi
sumarið 1936 til að skrifa formála
að endurútgáfu á bók sem hann
samdi um byltingarnar 1917 sem
hafði selst mjög vel.
„Það endaði hins vegar á því að
verða þessi bók sem er nú loksins
komin út á íslensku. Þetta er mjög
málefnaleg greining á ástandinu
eins og það var í Sovétríkjunum
á þessum tíma en við vitum auð-
vitað núna að Stalín átti eftir að
drepa margar milljónir í viðbót
eftir þetta.“
Erlingur segir að Trotsky fari í
bókinni yfir mögulega framtíðar-
þróun Sovétríkjanna.
„Helst vildi hann að gerð yrði
pólitísk bylting og aftur komið á
lýðræði. Ef það yrði ekki gert myndi
það enda á því að gerð yrði félags-
leg gagnbylting og komið á kapít-
alisma. Það rættist en ekki fyrr en
1990.“
Erlingur sem er nýlega kominn á
eftirlaun kenndi lengi félagsfræði og
sögu við Fjölbrautaskólann í Breið-
holti. En á þessi bók erindi í dag,
80 árum eftir að útsendari Stalíns
myrti Trotsky í Mexíkóborg?
„Mér finnst þessi bók tvímæla-
laust eiga erindi í dag og það var
þarft verk að koma henni út og það
tókst loksins í vor.“
sighvatur@frettabladid.is
Þurfti að bíða í fjóra
áratugi eftir útgáfunni
Erlingur Hansson þýddi bókina Byltingin svikin eftir Leon Trotsky árið 1980.
Hann fékk bókina loks útgefna á vordögum og viðurkennir að það hafi verið
góð tilfinning að fá hana loksins í hendurnar og segir hana enn eiga erindi.
Erlingur Hansson með bókina sem hann þýddi fyrir 40 árum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Svo fékk ég bara
loksins mann til að
gefa þetta út. Það er ekkert
flóknara en það.
Erlingur Hansson
VESTMANNAEYJAR „Þetta var bara
mjög sérstakt allt saman. Það voru
bara rólegheit og náttúrlega ekki
gerður nokkur skapaður hlutur,“
segir Hörður Orri Grettisson, for-
maður þjóðhátíðarnefndar í Vest-
mannaeyjum um nýliðna versl-
unarmannahelgi.
„Menn gerðu gott úr þessu og
voru með vinum og fjölskyldu í
heimahúsum. Og svo var horft á
Ingó í sjónvarpi Símans. Það var
smá sárabót að fá okkar mann á
skjáinn,“ segir Hörður Orri. Ekki
sé annað í stöðunni en að hefja
undirbúning fyrir þjóðhátíðina
að ári. „Vonandi fáum við að halda
hana þá.“ – gar
Horfðu á Ingó í
sjónvarpinu
Hörður Orri
Grettisson,
formaður þjóð-
hátíðarnefndar í
Eyjum.
Óvenju lítil umferð var um landið um verslunarmannahelgina enda óvenjulegir tímar. Síðdegis í gær var straumurinn um Suðurlandsveg í átt til
Reykjavíkur tekinn að þyngjast er fólk sneri við úr ferðalögum sínum. Klukkan átta í gærkvöldi höfðu tæplega 11.300 bílar átt leið um vegar-
kaf lann milli Litlu-Kaffistofunnar og Þrengsla-af leggjara frá því á miðnætti í fyrrinótt samkvæmt mælum Vegagerðinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
UMFERÐ „Það verður að segjast eins
og er að ég er furðu lostin,“ segir
Ásta María Sigurðardóttir í bréfi
til byggðaráðs Rangárþings eystra
þar sem hún gagnrýnir lausagöngu
búfénaðar.
Ásta býr rúma 500 metra frá þjóð-
vegi 1. Hún kveðst í bréfinu undrast
hversu mikið af sauðfé gangi laust
við þjóðveginn.
„Í sumum tilfellum er hægt að
tala við bændur, og kindurnar eru
sóttar, en þær koma alltaf aftur. Ár
eftir ár, sömu skepnurnar. Við erum
farin að þekkja þær. Aðra bændur
er ekki hægt að tala við, og þeir vísa
alltaf ábyrgðinni á eitthvað annað
en sjálfa sig,“ skrifar Ásta.
Að sögn Ástu eru kindurnar spak-
ar og vanar flauti og hamagangi og
gangi yfir veginn þegar þeim sýnist
og lömbin á eftir þeim.
„Ég er bara hreinskilnislega mjög
stressuð yfir því að það verði þarna
stórslys einhvern daginn,“ skrifar
Ásta og spyr hvers vegna lausaganga
búfjár sé ekki bönnuð í Rangárþingi
eystra.
Ásta segir að ástandið sé líka
mjög slæmt undir Eyjafjöllum. „Það
er ekki hægt að verða þekkt sveitar-
félag fyrir það að það sé sérstaklega
hættulegt að aka hér um því maður
geti ekið á kindur, hesta, kálfa eða
hvað sem er, vegna þess að það má
bara vera út um allan veg.“
Byggðaráð Hvolsvallar þakk-
aði Ástu fyrir erindið og tók undir
mikilvægi þess að tryggja öryggi á
vegum og vísaði málinu til umfjöll-
unar í landbúnaðarnefnd og sam-
göngu- og umferðarnefnd. – bb
Spakar kindur
skapa hættu
Fé á vegum úti. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
4 . Á G Ú S T 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð