Fréttablaðið - 04.08.2020, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 04.08.2020, Blaðsíða 37
Á aðeins einni viku seldust í Bandaríkjunum 615 þúsund eintök af nýjustu plötu söng­ konunnar Taylor Swift, Folklore. Er það mesta sala á einni plötu þar í landi á öllu þessu ári að því er segir á vef Danmarks Radio, dr.dk. Danmarks Radio vitnar til  Los Angeles Times sem kveður næstu mest seldu plötu ársins í Banda­ ríkjunum hafa selst í 574 þúsund eintökum frá því hún kom út í febrúar. Er það platan Map Of Soul með hljómsveitinni BTS. Þá segir að samkvæmt útgáfufyr­ irtæki Taylor Swift hafi Folklore alls selst í tveimur milljónum eintaka í heiminum öllum. Þessi sala þýðir að Swift rýkur beint í fyrsta sæti á lista Billboard yfir vinsælustu breiðskífurnar. Segir Danmarks Radio þetta í sjöunda skiptið sem hin þrítuga Swift vermir  fyrsta sæti á listan­ um. Aðeins Barbra Streisand með ellefu skipti og Madonna með níu eru þær konur sem hafa oftar náð fyrsta sætinu. Þess má geta að þeir sem eiga metið yfir f lest skipti í fyrsta skipti á bandaríska vinsældarlistanum eru Bítlarnir sjálfir, The Beatles, sem náðu fyrsta sætinu í nítján skipti. Folklore er  áttunda hljóðversp­ lata Taylor Swift og var hún tekin upp á meðan söngkonan var í sóttkví vegna kórunaveirufaraldursins. Og það er ekki aðeins að platan seljist vel því greiningarfyrirtækið Niel­ sen Music segir að lögunum á Folk­ lore hafi nú þegar verið streymt 290 milljón sinnum. – gar Metsala í Bandaríkjunum á nýrri plötu söngkonunnar Taylor Swift Taylor Swift í Los Angeles í október 2018. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Einar Þor steins son, frétta­maður RÚV, og Milla Ósk Mag nú s dót t ir, að stoða r­ maður mennta­ og menningar­ mála ráð herra, gengu í það heilaga síðast liðinn föstu dag. Til stóð að brúð kaupið færi fram  nú á sunnudaginn með pompi og prakt, en heims far aldur kom í veg fyrir það og það ekki í fyrsta sinn. Upp haf lega átti veisl­ an að fara fram á Spáni í októ ber í haust en á kveðið var að halda hana á Ís landi vegna um rædds vá gests. „Í dag ætluðum við Milla Ósk Magnús dóttir að giftast og halda stóra veislu í Borgar firðinum. En plönin breyttust ör lítið,“ skrifaði Einar á Face book­síðu sinni á sunnudag. „Við giftum okkur í staðinn með dags fyrir vara síðasta föstu dag með nánustu fjöl skyldu. At höfnin var ein stak lega yndis leg og við erum ó skap lega hamingju söm.“ Fjöl miðla maðurinn ný kvænti kveðst þó ekki vera búinn að gef­ ast upp á veislu höldunum enn. „Við höldum svo brúð kaups veisluna þegar að stæður leyfa.“ – kdi Skyndibrúðkaup Einars og Millu Einar Þorsteinsson. Milla Ósk Magnús dóttir. UPP HAF LEGA ÁTTI BRÚÐ- KAUPSVEISLA EINARS OG MILLU ÓSKAR AÐ FARA FRAM Á SPÁNI Í OKTÓ BER Í HAUST  EN Á KVEÐIÐ VAR AÐ HALDA HANA Á ÍS LANDI VEGNA HEIMSFARALDURS KÓRÓNAVEIRUNNAR. L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21Þ R I Ð J U D A G U R 4 . Á G Ú S T 2 0 2 0 Reykjavík • Mörkin 3 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 Þú finnur réttu fartölvuna í skólann á tolvutek.is NÝ VE F VERSLUN Skoðaðu úrvalið, berðu saman t ölvur og settu á óskalis tann þinn 4. ágúst 2020 • B irt m eð fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og m yndabrengl

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.