Fréttablaðið - 04.08.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 6 9 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R Þ R I Ð J U D A G U R 4 . Á G Ú S T 2 0 2 0
ú t s a l a
27.07 – 16.08
sjáðu
öll tilboðin
á elko.is
VIÐSKIPTI „Það er alveg skýr afstaða
af okkar hálfu að greiðslur fyrir
þjónustu sem hefur verið veitt skulu
vera inntar af hendi af hálfu þessara
fyrirtækja – algjörlega skilyrðis-
laust,“ segir Jóhannes Þór Skúlason,
framkvæmdastjóri Samtaka ferða-
þjónustunnar.
Borgun tilkynnti á föstudag þeim
fyrirtækjum sem skipta við korta-
fyrirtækið um skilmálabreytingar
sem falla í afar grýtta jörð. Í bréfi til
viðskiptavina segir Borgun að tekin
verði upp svokölluð veltutrygging
frá 1. október.
„Með veltutryggingu er átt við að
Borgun heldur eftir 10 prósentum
heildarfjárhæðar allra færslna á
uppgjörum. Veltutryggingu er hald-
ið eftir í sex mánuði,“ segir í bréfi
Borgunar. Þá fá allir gert upp aðeins
mánaðarlega en ekki örar. „Ofan-
greindar breytingar eru gerðar til
varnar aukinni endurkröfuáhættu."
Jóhannes segir útspil Borgunar
nú í rauninni það nýjasta í langri
röð vandamála sem tengist skil-
málum kortafyrirtækja. Samtök
ferðaþjónustunnar hafi látið gera
lögfræðilegar úttektir. „Það er alveg
skýrt af okkar hálfu og við höfum
komið því á mjög skilmerkilegan
máta til þessara þriggja stóru korta-
þjónusta,“ segir Jóhannes og á þar
við Valitor og Korta auk Borgunar.
Jóhannes segir kortafyrirtækin
eðlilega vera að reyna að tryggja sig
gagnvart því sem þau upplifa sem
aukna áhættu í þessum viðskiptum.
Það komi hins vegar ekki til greina
að kortafyrirtæki haldi eftir tíu pró-
sentum af greiðslum jafnvel þótt
þjónustan hafi verið veitt.
„Kortafyrirtækin eiga að skila á
réttum tíma öllum greiðslum fyrir
þjónustu sem hefur verið veitt. Við
teljum að þau hafi ekki í neinum
tilfellum rétt til þess að halda slíku
eftir,“ segir Jóhannes, sem kveðst
hafa skilning á því að kortaþjón-
ustufyrirtækin meti áhættu.
„Hins vegar er það algjörlega klárt
að þegar að þjónusta hefur verið
veitt að þá er engin áhætta lengur
til staðar fyrir kortafyrirtækin. Og
það er algjörlega óásættanlegt af
okkar hálfu og jaðrar við lögbrot,
myndi ég telja, að fyrirtækin haldi
eftir greiðslum vegna þjónustu sem
hefur verið veitt.“ – gar
Borgun heldur eftir greiðslum
Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir að Borgun hafi engan rétt til að halda eftir hluta af
greiðslum jafnvel eftir að þjónusta hafi verið veitt líkt og kortafyrirtækið boðar að taki gildi 1. október.
Það er algjörlega
óásættanlegt af
okkar hálfu og jaðrar við
lögbrot, myndi ég telja, að
fyrirtækin haldi eftir
greiðslum vegna þjónustu
sem hefur verið
veitt.
Jóhannes
Þór Skúlason,
framkvæmda-
stjóri Samtaka
ferðaþjónustunnar
DÓMSMÁL Alvar Óskarsson, sem
sakfelldur var ásamt tveimur
öðrum fyrir stórfellt fíkniefnabrot
í Landsrétti, óskar eftir að Hæsti-
réttur veiti honum áfrýjunarleyfi.
Með beiðninni ætlar Alvar
Hæstarétti að kveða upp fordæm-
isgefandi dóm vegna ákvörðunar
refsinga fyrir fíkniefnaframleiðslu
og hvað sé framleiðsla. Alvar hlaut
sex ára fangelsi í Landsrétti.
Í dómi Landsréttar segir að ein
tegund brots gegn ákvæðinu sé
alvarlegri en önnur. Í hegningar-
lagaákvæðinu sjálfu er ekki gerð-
ur greinarmunur á framleiðslu
fíkniefna eða sölu og dreifingu
og hvort einn þáttur eigi að vega
þar þyngra en annar. – aá / sjá síðu 6
Telur þörf á
nýju fordæmi
Í hegningarlagaákvæð-
inu er ekki gerður greinar-
munur á framleiðslu fíkni-
efna og sölu og dreifingu.
Það var fátt sem raskaði ró þessara golfara sem stunduðu íþrótt sína á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði í gær, á frídegi verslunarmanna, enda tilvalið að nýta daginn til að vinna í forgjöfinni.
Sveif lan virðist ósvikin og boltinn hefur sjálfsagt svifið langt í áttina að holunni. Hvaleyrarvöllur golf klúbbsins Keilis er af mörgum talinn meðal bestu golfvalla landsins með holunum
sínum átján. Veðurspá dagsins gerir ráð fyrir vætu, einkum á landinu sunnan- og vestanverðu síðdegis. Spáin gerir ráð fyrir að hitinn verði á bilinu átta til þrettán stig. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR