Fréttablaðið - 04.08.2020, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 04.08.2020, Blaðsíða 26
FYRIR ÆVINTÝRIN ARCTIC TRUCKS BREYTINGALAUSNIR Arctic Trucks Ísland ehf Kletthálsi 3 110 Reykjavík 540 4900 info@arctictrucks.is verslun.arctictrucks.is Stutt er síðan Land Rover Defender var kynntur og þótt ekki sé búið að kynna styttri gerðina ennþá er þegar verið að hanna nýjar útgáfur Defender. Það er ekkert leyndarmál að von er á nýjustu kynslóð Defender með V8-vél á næstunni. Það sást til bílsins við prófanir á norðurslaufu Nurburgring á dögunum og var hann þar án dulargervis. Það fer ekki á milli mála á myndunum að um V8-bíl sé að ræða enda sést vel í fjórfalt pústkerfið og skráningar- gögn númeraplötu segja að um 4.999 rsm-vél sé að ræða í bílnum. Það þýðir að verið er að prófa bílinn með sömu fimm lítra vél og er í Range Rover Sport SVR, en hætt verður að framleiða þá vél fyrir lok þessa árs. Mun Jagúar Land Rover nota V8-vél frá BMW sem arftaka hennar, en sú vél er 4,4 lítra og með tveimur forþjöppum. Hvort JLR ætli sér að nota fimm lítra vélina í einhverju magni til að byrja með er óráðið, en ef svo er mun hún eflaust vera undir 500 hestöflum, en hún er 567 hestöfl í SVR-bílnum. Helsti keppinautur þessa bíls er Mercedes-Benz AMG G63, en hann er með fjögurra lítra V8-vél með tveimur forþjöppum, og skilar sá bíll 577 hestöflum, í talsvert þyngri bíl en nýr Defender. Búast má við að hið sterka bygg- ingarlag nýs Defender henti öflugri V8-vélinni, en líklegast sjáum við hann ekki í því formi fyrr en seint á næsta ári. Land Rover prófar Defender V8 á Nurburgring Honda framleiddi á árum áður lítið mótorhjól sem mátti pakka saman og setja aftur í Honda City bílinn, og kallaðist það Honda Motocompo. Núna hefur Honda sótt um einkaleyfi fyrir rafhjóli sem kallast Motocompacto og minnir nafnið mjög svo á hjólið gamla. Hvort um nýja útgáfu af samanbrjótanlegu rafhjóli sé að ræða á þó eftir að koma í ljós, sem og hvort það verði í boði með ein- hverjum bílum Honda. Honda e væri líklegur kostur þar sem hann er einnig rafdrifinn og útlitið af gamla skólanum. Honda Motocompacto Honda e væri líklegur kostur þar sem hann er einnig rafdrifinn og útlitið af gamla skólanum. Prófanir á bílnum án dulargervis benda til þess að stutt sé í frumsýningu hans þótt engin formleg tilkynning þess efnis hafi borist ennþá. Gamla Motocompo-hjólinu mátti pakka saman og setja aftur í Honda-bílinn. Honda Motocompo ásamt City smábílnum sem gat borið það í skottinu. 4 . Á G Ú S T 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R8 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð BÍLAR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.