Fréttablaðið - 05.08.2020, Blaðsíða 20
Okkar dásamlegi
Úlfar Daníelsson
kennari og víkingur,
Skógarhlíð 7, Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju,
fimmtudaginn 6. ágúst, klukkan 11.00.
Í ljósi aðstæðna verður einnig hægt
að koma saman og horfa á streymi á eftirtöldum
stöðum: í Víðistaðaskóla, Bæjarbíói, Áslandsskóla og
Samfylkingarsalnum, Strandgötu 43.
Frekari breytingar, ef þarf, verða birtar á samfélagsmiðlum
fjölskyldunnar.
Adda María Jóhannsdóttir
Hildur Jónsdóttir Silja Úlfarsdóttir
Sara Úlfarsdóttir Sindri Dan Vignisson
Melkorka Rán Hafliðadóttir Snævar Dan Vignisson
Kormákur Ari Hafliðason Þorkell Magnússon
og aðrir aðstandendur.
Elskuð móðir okkar,
Ragnheiður Haraldsdóttir
Stóru-Mástungu,
lést á dvalarheimilinu
Grund þann 27. júlí.
Jarðsett verður frá Stóra-Núpskirkju,
föstudaginn 7. ágúst, kl. 14.
Vegna aðstæðna í samfélaginu er athöfnin einungis fyrir
allra nánustu, en athöfninni verður streymt á facebook-
síðu Stóra-Núpskirkju. Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á dvalarheimilið Grund.
Börn hinnar látnu og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar og afi,
Guðmundur Jónsson
skipstjóri,
Skipalóni 26, Hafnarfirði,
lést á líknardeildinni í Kópavogi,
þann 29. júlí.
Ruth Árnadóttir
Jón Örn Guðmundsson Bríet Jónsdóttir
Guðrún Guðmundsdóttir Guðmundur Árni Guðrúnarson
Daniel Guðmundur Nicholl Svanhildur Lísa Leifsdóttir
Okkar ástkæra
Heiðveig Pétursdóttir
lést miðvikudaginn 29. júlí.
Útför auglýst síðar.
Þorgerður Þorleifsdóttir
Þorleifur Eiríksson
Sigríður Jakobsdóttir
Pétur Sigtryggsson
Sigtryggur Pétursson
og Sigurður Helgason
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og vinur,
Einar Jónsson
húsasmíðameistari,
Spóarima 17, Selfossi,
sem lést á heimili sínu laugardaginn
1. ágúst sl., verður jarðsunginn frá
Selfosskirkju, föstudaginn 7. ágúst, kl. 14.00. Vegna
aðstæðna í samfélaginu er athöfnin einungis fyrir allra
nánustu, en verður einnig streymt frá vef Selfosskirkju.
Jón Þorkell Einarsson Álfhildur Þórðardóttir
Elías Örn Einarsson Hildur Grímsdóttir
Þórunn Einarsdóttir Christopher James Wood
Bertha Ágústa Einarsdóttir Jósep Helgason
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Olgeir Möller
Sléttuvegi 23, Reykjavík,
lést á Landspítalanum, Vífilsstöðum,
þann 26. júlí. Útförin fer fram frá
Neskirkju, fimmtudaginn 6. ágúst, kl. 11.
Vegna aðstæðna í samfélaginu er athöfnin einungis fyrir
allra nánustu, en verður einnig streymt á slóðinni
www.utforom.is.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigríður Valgerður Ingimarsdóttir
Eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Kristján Pálsson
loftskeytamaður og rafeindavirki,
Uppsalavegi 21, Húsavík,
lést þriðjudaginn 28. júlí.
Útför hans fer fram frá Húsavíkurkirkju,
föstudaginn 7. ágúst, klukkan 14.
Í ljósi aðstæðna í samfélaginu verður athöfninni streymt
á facebook-síðu kirkjunnar.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim
sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag
Suður-Þingeyinga og Björgunarsveitina Garðar á Húsavík.
Rannveig Benediktsdóttir
Arnar Már Sigurðsson, Heiður Hjaltadóttir
Páll Kristjánsson, Hjördís Bergsdóttir
Kári Kristjánsson, Sunna Jónsdóttir
og barnabörn.
Fallegi drengurinn okkar,
Gylfi Magnús Thorlacius
Auðarstræti 17, Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans,
laugardaginn 25. júlí.
Þeim sem vildu minnast hans er
bent á að styrkja Landspítalann, t.a.m.
gjörgæsludeildina við Hringbraut.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Magnús Lyngdal Magnússon
Ragnhildur Thorlacius
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamamma, amma og langamma,
Eva Magnúsdóttir
Heiðargerði 48,
lést á hjúkrunarheimilinu Boðaþingi
þann 20. júlí sl. Sérstakar þakkir
færum við starfsfólki Spóalundar,
hjúkrunarheimilinu Boðaþingi, fyrir frábæra umönnun,
nærgætni og hlýju. Jarðarförin verður fimmtudaginn
6. ágúst, kl. 15.00 í Lindakirkju, Kópavogi.
Steinþór Marinó Gunnarsson
Sigrún Steinþórsdóttir
Erna Steinþórsdóttir Eyjólfur Hjaltason
Hildur Steinþórsdóttir Jóhannes K. Guðlaugsson
Guðrún Steinþórsdóttir Þorsteinn Pálmarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
stjúpmóðir, amma og langamma,
Ragnheiður Ásta
Pétursdóttir
fyrrverandi útvarpsþulur,
lést á heimili sínu, laugardaginn 1. ágúst.
Eyþór Gunnarsson Ellen Kristjánsdóttir
Birna Gunnarsdóttir Árni Daníel Júlíusson
Sólveig Anna Jónsdóttir Magnús Sveinn Helgason
Anna Margrét Ólafsdóttir
Ragnheiður Gyða Jónsdóttir
Oddrún Vala Jónsdóttir
Hólmfríður Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Útskrift úr skólanum var frestað í vor og nú fá engir að vera viðstaddir hana nema starfsfólk og nemendur, því veiran er komin aftur á stjá í land-
inu,“ segir Helena Dröfn Kristjánsdóttir,
einn nemenda Lýðskólans á Flateyri síð-
asta skólaár. Hún segir brautskráning-
una blandna trega. „Flateyri mun alltaf
eiga stað í hjarta mínu.“
Helena segist nota flestar frístundir í
saumaskap, áður hafi hún málað meira,
meðal annars á kort sem hægt sé að
skoða á etsy.com/uk/shop/Drofnart.
„Mér finnst sérstaklega skemmtilegt
að handsauma,“ segir hún og sýnir sem
dæmi 18. aldar undirkjól sem hún hefur
nostrað við og einnig nýtt pils eftir sniði
frá 1940 sem hún segir um 85% hand-
saumað.
Eftir nám við FSu kveðst Helena hafa
verið að spá í Tækniskólann. „En for-
eldrar mínir voru bæði í lýðháskólum
á sínum tíma og hvöttu mig til að prófa
það,“ segir hún og er ekki í vafa um að allt
sem hún hafi lært í Lýðskólanum hjálpi
henni að eflast í saumaskapnum. „Maður
fær að þroska alls konar sköpunarhæfi-
leika á Hugmyndabrautinni,“ segir hún
og lýsir, umbeðin, einu verkefni.
„Við áttum öll að búa til verk tengt
umhverfinu, ég gerði lítinn skreiðarhjall
úr fimm spýtum og prentaði út gamlan
pening og strengdi á þráð. Þannig hylli
ég fiskiðnaðinn á Flateyri.“ Hún segir
Flateyri fullkominn stað fyrir Lýð-
skólann. „Fámennið gerir að verkum að
nemendur ná að tengjast bæði íbúum og
umhverfinu,“ segir hún. „Maður verður
Flateyringur sjálfur.“ gun@frettabladid.is
Maður verður Flateyringur
Nemendur Lýðskólans á Flateyri gátu ekki útskrifast í vor, vegna COVID-19, en í viku-
lokin eiga þeir að ná þeim áfanga. Meðal þeirra er Helena Dröfn Kristjánsdóttir.
Helena í nýju pilsi eftir sniði frá 1940. 18. aldar undirkjóll blaktir á snúru. MYND/KH
5 . Á G Ú S T 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT