Fréttablaðið - 05.08.2020, Blaðsíða 2
Veður
Austan og norðaustan 10-23,
hvassast í og vestan Öræfa.
Talsverð rigning SA-til, en annars
úrkomuminna. Hiti 8 til 15 stig,
hlýjast norðaustanlands.
SJÁ SÍÐU 18
Prjónles í Austurstræti
SÓLARFILMUR!
Lausnir
fyrir
heimili
og fyrirtæki
Sundaborg 3
104 Reykjavík
777 2700
xprent@xprent.is
SAMFÉLAG Samkvæmt nýjum tölum
frá Tölfræðistofnun Evrópusam-
bandsins er hlutfall barnsfæðinga
utan hjónabands komið yfir 70
prósent á Íslandi. Er þetta hið lang-
hæsta í álfunni en meðaltalið er um
38 prósent.
Í öðru sæti eru Frakkar með um
60 prósent en hlutfallið á hinum
Norðurlöndunum er í kringum 50.
Það er nýtt að hlutfall barna
utan hjónabands sé hæst á Íslandi.
Í upphafi mælinga, árið 1960, var
hlutfallið tvöfalt hærra hér en í
næsta landi. En þá var hlutfallið þó
aðeins 25 prósent á Íslandi og hefur
því hækkað um 45 prósentustig á
60 árum.
Sólveig Anna Bóasdóttir, prófess-
or í guðlegri siðfræði við Háskóla
Íslands, segir að þó að hlutfall fæð-
inga utan hjónbands sé svona hátt
á Íslandi þýði það ekki að Íslend-
ingum þyki hjónabandið minna
virði en öðrum þjóðum. Ástæðan
eigi sér líklega rætur aftur í aldir og
að Íslendingar nálgist hjónabandið
hugsanlega á annan hátt en aðrir.
„Rannsóknir benda til þess að
allt aftur á þjóðveldisöld hafi fólk
átt börn utan hjónabands og ekki
mikið gert úr því,“ segir Sólveig.
Kirkjan hafi ekki farið að skipta
sér af hjónabandinu fyrr en á 13.
öld en barneignir utan hjónabands
hafi ekki verið taldar vandamál.
„Af einhverjum ástæðum höfum
við Íslendingar verið sérlega óheft
með þetta.“
Í dag eru fjölskyldur af ýmsum
toga, einhleypir, giftir, í óvígðri
sambúð eða óskráðri. Sólveig bend-
ir á að á 20. öldinni hafi hin svo-
kallaða trúlofunarfjölskylda orðið
algengt fjölskylduform hér og full-
komlega viðurkennd. „Fólk fór af
stað, trúlofaði sig og eignaðist börn,
en giftingin kom seinna,“ segir hún.
„Um miðja öldina var mjög algengt
að gifting og skírn fyrsta barns var
gerð í sömu athöfninni.“
Viðhorfið til hjónabandsins mót-
ast af siðferðilegum, félagslegum og
stundum trúarlegum þáttum. Sól-
veig segir viðhorfið vissulega hafa
breyst á undanförnum áratugum og
öldum, frá þeim tíma þegar algert
karlaveldi ríkti. En þegar Íslend-
ingar urðu tíunda land heimsins
til að heimila hjónabönd samkyn-
hneigðra árið 2010 hafi gildi stofn-
unarinnar sýnt sig.
„Fólki var mikið í mun að hjóna-
bandið væri fyrir alla, ekki aðeins
konur og karla, það væri réttlátt og
mannréttindi allra væru virt,“ segir
Sólveig. „Fólki var alls ekki sama um
hjónabandið. Hér eru hins vegar
engin íhaldssöm öfl trúar eða sið-
ferðis sem fordæma fólk fyrir að
eiga börn utan hjónabands. Einnig
líða börnin ekki fyrir að fæðast utan
hjónabands, því að lagaleg réttindi,
svo sem til erfða, eru öll hin sömu.“
kristinnhaukur@frettabladid.is
Sjötíu prósent fæðast
utan hjónabands hér
Hlutfall barnsfæðinga utan hjónabands er það langhæsta í Evrópu. Prófessor
í guðlegri siðfræði segir þetta ekki þýða að Íslendingum þyki hjónabandið
minna virði. Engin íhaldssöm öfl þrýsti á fólk hér að giftast fyrir barneignir.
Hér eru hins vegar
engin íhaldssöm öfl
trúar eða siðferðis sem
fordæma fólk fyrir að eiga
börn utan
hjónabands.
Sólveig Anna
Bóasdóttir,
prófessor
Trúlofunarfjölskylduformið hefur lengi verið algengt á Íslandi. MYND/GETTY
NÁTTÚRA Illa særðan grind hval rak
að landi sunnan við Hólma vík í
gær og leit út fyrir að hann myndi
drepast af sárum sínum í gærkvöldi.
Jón Hall dórs son, land póstur og
ljós myndari, var að aka út pósti er
hann kom auga á hvalinn á strönd-
inni við Brodda nes I, II og III. „Um
þrjú leytið í dag var hvalurinn kom-
inn á land mikið særður þannig að
það foss blæddi úr honum,“ sagði
Jón við Frétta blaðið í gærkvöldi.
Að sögn Jóns voru um tuttugu
hvalir til við bótar utar í víkinni.
Hvala vaðan hafi verið komin í
víkina snemma í gærmorgun. „Svo
virðist vera sem þessi hvalur sem
lenti í þessu hafi verið hrakinn í
land af hinum,“ sagði Jón, sem tók
meðfylgjandi mynd af særða hvaln-
um sem hann sagði hafa verið illa
bitinn. Fleiri myndir af atburðinum
má sjá vefsíðu Jóns, holmavik.123.
– gar
Særðan hval rak að landi
Dýr úr hjörð grindhvala hraktist sært að landi. MYND/JÓN HALLDÓRSSON
Þrátt fyrir að viðskiptin með húfur og fleira prjónles hafa gengið sinn vanagang í sölutjaldi í Austurstræti í gær veitti sölukonunni ekki af því að vera
með eina húfuna á höfði til að halda á sér hita. Hægt er að fá húfu með kindum og hestum og vitanlega lundanum sem sjaldan bregst. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SVÍÞJÓÐ Sænska lögreglan birti í
gær mynd af hvítum skutbíl sem
leitað er að í tengslum við rannsókn
á máli tólf ára stúlku sem skotin
var til bana í Norsborg aðfaranótt
sunnudags.
Í ákalli um aðstoð frá almenn-
ingi segir að lögregla telji að árásar-
maðurinn hafi verið í umræddum
bíl. Myndin er fengin úr öryggis-
myndavélum McDonalds-staðarins
sem er við vettvang árásarinnar.
Sænska ríkissjónvarpið segir að
lögreglan álíti að að margir hafi séð
bílinn á vettvangi og óski eftir því
að viðkomandi gefi sig fram og skýri
frá því sem þeir urðu vitni að.
Eins og fram hefur komið var
stúlkan skotin er hún var úti að
ganga með hundinn sinn. – gar
Lýst eftir bíl
vegna morðs
5 . Á G Ú S T 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð