Fréttablaðið - 05.08.2020, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 05.08.2020, Blaðsíða 8
LAXDAL SUMARSALAN Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is skoðið laxdal.is S Í G I L D K Á P U B Ú Ð NÚ ENN MEIRI AFSLÁTTUR 50%-60% GÆÐAFATNAÐUR SEM ENDIST VELKOMIN LAXDAL ER Í LEIÐINNI Alltaf nóg til af humri hjá Norðanfiski... STÓRUM HUMRI!! Norðanfiskur ehf. sérhæfir sig í framleiðslu á úrvals sjávarfangi til veitinga- og stóreldhúsa. Einnig má finna vörur Norðanfisks í neytendapakkningum í verslunum Bónus um land allt. Hafið samband á nordanfiskur@nordanfiskur.is eða í síma 430 1700 BRETLAND Paul Crowther, 36 ára gamall maður, játaði á mánudag að hafa orðið Bethany Fields að bana í september á síðasta ári. Fields, sem var aðeins 21 árs, var stungin marg- sinnis með hníf úti á götu í miðborg Huddersfield í Jórvíkurskíri og var úrskurðuð látin á staðnum. Málið hefur vakið mikinn óhug í Bret- landi. Bethany var frá borginni Leeds en stundaði nám í umhverfislanda- fræði við York-háskóla. Hún var talin úrvalsnemandi, hafði mik- inn áhuga á jöklarannsóknum og dvaldi meðal annars á Íslandi hluta af sumrinu 2019 við rannsóknir. Mark E. Hodson prófessor minntist hennar skömmu eftir morðið. „Hún var áhugasöm og duglegur náms- maður og vinsæl á meðal bekkjar- félaganna,“ sagði hann. „Hún var hjartahlý, vingjarnleg og með ein- staka samskiptahæfni.“ Utan námsins starfaði hún meðal annars í góðgerðarmálum fyrir fólk í félagslega slæmri stöðu, fatlað fólk og þá sem eiga erfitt með nám. Hún þótti einnig af bragðstónlistarnemi og var að læra tónlistarkennslu. Fields fannst látin þann 12. sept- ember, laust eftir klukkan sex um kvöldið. Crowther var handtek- inn skömmu síðar og kærður fyrir morðið en hann var þá enn með hnífinn á sér. Eftir handtökuna neit- aði hann að hafa myrt Fields og var um tíma fluttur á réttargeðdeild til að hægt væri að meta andlega heilsu hans. Crowther hefur ekki verið samstarfsfús við lögreglurann- sóknina, ítrekað neitað að yfirgefa klefa sinn og gefið lítið upp annað en nafn sitt. Lengi vel neitaði hann að hitta skipaðan lögmann sinn. Crowther mætti fyrir rétt í Leeds á mánudag, sagði nafn sitt og viður- kenndi að hafa orðið Fields að bana, en ekki að yfirlögðu ráði. Ekkert annað vildi hann segja. Crowther var í fylgd tveggja öryggisvarða og tveggja hjúkrunarfræðinga og skalf á meðan hann gaf yfirlýsingu sína. Saksóknarinn Jonathan Sharp sagðist búast við ákvörðun frá ákæruvaldinu innan tveggja vikna. Hvort réttað yrði yfir Crowther, eða hann dæmdur á grundvelli játning- ar. „Þetta er mjög viðkvæmt og til- finningaþrungið mál,“ sagði Sharp. Litlar upplýsingar hafa verið gefnar upp um rannsóknina og fjöl- skylda Fields hefur að mestu haldið sig til hlés. Á fyrstu stigum málsins, áður en nöfn Fields og Crowther voru komin fram, tilkynnti lögregla Jórvíkurskíris að um „heimilismál“ væri að ræða og hefur síðan haldið sig við þá skilgreiningu. Gefur það til kynna að Fields og Crowther hafi þekkst. Ekki hefur verið gefið upp hvernig þau þekktust. kristinnhaukur@frettabladid.is Játaði að hafa banað Bethany Fields í fyrra Paul Crowther játaði á mánudag að hafa banað nemanum Bethany Fields í fyrrahaust. Málið hefur vakið mikinn óhug í Bretlandi, en Fields, sem meðal annars stundaði jöklarannsóknir á Íslandi, var stungin margsinnis með hníf. Morðið var framið á götu úti í miðborg Huddersfield í fyrra og hefur vakið mikinn óhug í Bretlandi. MYND/GETTY Bethany Fields þótti afbragðsgóður nemi, góð tónlistarkona og tók virkan þátt í góðgerðarmálum. Þetta er mjög viðkvæmt og tilfinningaþrungið mál. Jonathan Sharp saksóknari FRÉTTIR, FÓLK & MENNING á Hringbraut LÍBANON Stór sprenging varð við höfnina í Beirút, höfuðborg Líb- anon í gær. Fjöldi myndbanda náð- ist af sprengingunni og sýndu þau gríðarlega eyðileggingu á svæðinu og reykjarmökk yfir borginni. Þegar Fréttablaðið fór í prentun í gærkvöld höfðu heilbrigðisyfirvöld í Líbanon staðfest að yfir 50 manns hefðu látist í sprengingunni og yfir 2.500 manns særst. Sjúkrahús í Bei- rút hafa þurft að vísa særðum frá þar sem allar stofur eru yfirfullar og starfsfólk hefur ekki tök á að sinna sjúklingum. Heilbrigðisráðherra Líbanon, Hamad Hasan, sagði mikinn fjölda hafa slasast alvarlega af völdum sprengingarinnar. Einnig er haft eftir ráðherranum að heilbrigðis- kostnaður verði felldur niður fyrir alla þá sem slösuðust í sprenging- unni. Haft er eftir vitni á svæðinu að fjöldi fólks hafi legið í blóði sínu á svæðinu eftir sprenginguna. Enn er ekki vitað hvað olli sprengingunni. For stöðu maður alls herjar öryggis í landinu, Abbas I bra him, sagði í við tali við líbanska fjöl miðla að lík legast væri að slys hefði orðið við birgða geymslu við höfnina þar sem sprengiefni var geymt. – kdi / bdj Gríðarstór sprenging í Beirút í gær Gríðarleg eyðilegging varð á svæðinu þar sem sprengingin varð. MYND/EPA 5 . Á G Ú S T 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.