Fréttablaðið - 05.08.2020, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 05.08.2020, Blaðsíða 30
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is MAÐUR Á ÞAÐ TIL AÐ TÝNA SJÁLFUM SÉR Í SVARTHOLI SKRIFSTOFULÍFS- INS OG KANNSKI GLEYMA ÞVÍ SEM MANN VIRKILEGA LANGAR TIL AÐ GERA. Sumar útsala Frábær útsala í fjórum búðum verslaðu á dorma.is eða í DORMA verslun og við sendum þér vörurnar frítt Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Frábær útsala í fjórum búðum verslaðu á dorma.is eða í DORMA verslun og við sendum þé r vörurnar frítt STYTTU ÞÉR LEIÐ GEGN UM ÚTSÖLUBÆKLINGIN N OKKAR Dýna og hjól 2-3 | Mjúkva ra og dúnn 4–11 | RÚM 12–2 1 | Svefnsófar 22–23 | Sófa r 24–34 | Stólar 35–39 | Bo rð og smávara 40–55 Hv er ni g frí se nd in g h já D OR M A vi rk ar www.dorma.is V E F V E R S LU N SENDUM FRÍTT Sumar útsala ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR Þú kaupir Oakley eða Everly heilsudýnu eða heilsurúm sem afhent er í boxi á hjólum og færð innifalið glæsilegt Aspen fjallahjól* RENNDU ÞÉR INN Í SUM ARIÐ! * á meðan birgðir endast Sjá nánar bls. 2–3 D ÝN A Góður svefn Hjólreiðatúr Útsölu- bæklingurinn á dorma.is www.dorma.is VEFVERSLUN SENDUM FRÍTT ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR LOKAVIKAN LÝKUR Á LAUGARDAG DAG HVERN LESA 93.000 ÍSLENDINGAR FRÉTTABLAÐIÐ AÐ MEÐALTALI HEIMILD: PRENTMIðLAMÆLING GALLUP OKT-DES 2019, 12-80 ÁRA, ALLT LANDIð HAGSTOFA ÍSLANDS, MANNFJÖLDATÖLUR, 2019 Hu g m y n d i n a ð sýningunni sjálfri kviknaði fyrir um ári, segir grafíski hönnuðurinn og l i s t a m a ð u r i n n Unnar Ari Baldvinsson. Hann opnar sýninguna Vind Verk í Núll- inu galleríi á morgun. Farið verður eftir sóttvarnareglum og einungis sjö manns hleypt inn í rýmið í einu. „Þetta var um það leyti þegar það byrjaði að leka inn í svefnherbergi hjá okkur,“ segir Unnar um upphaf hugmyndavinnunnar. Hann heldur áfram: „Eftir að þrír mismunandi smiðir og fagaðilar mættu til að meta hvaðan lekinn væri að koma, þá var alltaf talað um norðanáttina. Helvítis norðanáttin, var alltaf sagt. Sem sagt að þegar það rignir og blæs úr norðanáttinni þá kemst vatnið á milli, í gegnum báruna, með fram loftinu og upp í rúm,“ segir Unnar. Þarna hafi vindáttin, þá sérstaklega norðanáttin, farið að veita honum innblástur. Alltaf sama norðanáttin „Nágranni minn kveikir stundum varðeld úti í garði og á notalega kvöldstund þegar veður leyfir. Það má þá samt ekki vera vottur af rangri vindátt til þess að við fáum reykinn inn til okkar,“ segir Unnar hlæjandi. Nágranninn hafi beðist afsökunar og þá sérstaklega nefnt norðanáttina, og því hefur hún verið Unnari svo hugleikin síðan. „Ég fór að pæla meira í þessu vind- tali og sá fyrir mér kyrrsetta fána sem tala myndrænt um vindátt eða vindstig. Í þessu öllu komst ég síðan að því að í íslensku máli eru tæplega tvö hundruð orð yfir vind og mér fannst það eitthvað áhugavert. Ég ákvað eftir allar þessar pælingar um vindinn að smíða, sauma og teikna þessi verk sem verða svo til sýnis frá og með morgundeginum,“ segir hann. Seinna sagði frændi Unnars honum að sum hús á Eyrarbakka hefðu verið byggð með tveimur útidyrahurðum með tilliti til mis- munandi vindátta. „Þar sem sandarnir fjúka svo mikið í ákveðinni átt og þá gengur ekki að labba inn úr þeirri átt,“ segir Unnar. Út í kosmósið Unnar stundaði nám í Myndlista- skólanum í Reykjavík og fór þaðan til Ítalíu og útskrifaðist úr Florence University of Arts með gráðu í myndrænum samskiptum. Þaðan fór hann svo í Accademia Italiana og lærði listasögu og grafíska hönnun. „Ég hef mest verið að gera mál- verk, en á þessari sýningu er ég að kanna nýjar aðferðir og er í til- raunastarfsemi með að sauma og alls konar. Tengdamamma mín kenndi mér að sauma fyrir þetta verk,“ segir hann. Hann segist lengi hafa hugsað um sýninguna og unnið að henni. Síðan hafi COVID-19 skollið á. „Nú hafa verið settar fleiri strang- ari reglur vegna COVID og maður hefur hugsað um eins og oft áður að hætta við, en maður vinnur bara í kringum þetta. Ég vil bara halda þessa sýningu og koma þessu út í kosmósið,“ segir hann. Í ljósi þess að sýningarrýmið er frekar lítið mun Unnar bjóða upp á spritt, andlitsgrímur og heldur sig svo við fjöldatakmarkanir inn í galleríið. „Auðvitað verður farið eftir öllum reglum og gestir beðnir um að virða tveggja metra regluna,“ segir hann. „Ég hef unnið verkin mestmegnis í skúrnum mínum í Skerjafirði, sem ég smíðaði sjálfur og það var ákveðinn „árangur“ fyrir mig. Skúrinn var bara fokheldur þegar við keyptum eignina. Ég hafði enga reynslu af svona, en með góðri hjálp internetsins og pabba míns lagði ég lagnir, einangraði, smíðaði og múr- aði þennan skúr sem vinnustofu,“ segir hann. Ómetanlegur tími Unnar hefur minna látið fyrir sér fara í myndlistinni síðustu tvö til þrjú árin. „Ég hefi fundið fyrir myndlist- inni kalla en fyrst nýlega er það sem maður er farinn að hlusta og vill setja hana í forgang. Þetta hefur alltaf verið stanslaus barátta, á milli þess að sinna dagvinnu og drauma- vinnu. Ég vinn vel í höndunum og naut þess að gera allt sjálfur fyrir sýninguna, smíða, sauma og teikna. Ég var í fastri níu til fimm vinnu, í ágætis starfi en fann að það hindr- aði mína sköpun í langan tíma. Maður á það til að týna sjálfum sér í svartholi skrifstofulífsins og kannski gleyma því sem mann virkilega langar til að gera,“ segir Unnar. Hann hafi því ákveðið að verða sjálfstætt starfandi og einbeita sér að myndlistinni. „Ef ekki núna, þá hvenær? Það er einhvern veginn alltaf hægt að finna afsökun fyrir því að þetta sé ekki rétti tíminn. Fólk hefur mismunandi skoðanir á þessu í kringum mann, en ég hef fengið skemmtileg verkefni sem ég hef gaman af að vinna, átt ómetanlegan tíma með fjölskyldunni minni og náð að skapa mína myndlist,“ segir Unnar. Sýningin verður opnuð á morgun í Núllinu við Bankastræti klukkan 17.00. steingerdur@frettabladid.is Vildi ekki týna sér í svartholi skrifstofulífs Á morgun verður sýningin Vind Verk eftir Unnar Ara opnuð, en við vinnslu hennar fékk hann innblástur frá vindum. Unnar færði sig nær myndlist til að festast ekki í skrifstofulífi og sjá eftir því. Norðanáttin hefur verið Unnari Ara hugleikin síðasta árið og við gerð sýningarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR 5 . Á G Ú S T 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.