Fréttablaðið - 05.08.2020, Blaðsíða 14
5 . Á G Ú S T 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
Kaito Kiyomiya og Yoshinari Ogawa tókust hart á fyrsta keppnisdag fjöl-
bragðaglímumótsins NOAH sem hófst í gær á Korakuen-höllinni í Japan.
Knapinn Kevin Scott var einbeittur á hestinum Ventura Rascal aðeins ör-
fáum andartökum fyrir sigur þeirra á Skidby Handicap kappreiðunum í gær.
Jordan Willis og félagar hans í Sunderland létu rigninguna ekki stoppa sig
þegar þeir tóku æfingu á Englandi í gær. Æfingin fór fram í fimm stjörnu að-
stöðu félagsins sem ber nafnið Skóli ljóssins, eða The Academy of Lights.
Þjálfarinn Hendrik Vieth og knattspyrnumaðurinn Arne Maier voru kampakátir á æfingu hjá þýska liðinu Hertha
Berlín í sólinni gær. Maier, sem er 21 árs, hefur leikið fyrir félagið í þýsku deildinni síðan árið 2016. MYND/GETTY
Knattspyrnumaðurinn Brandon Williams frá Englandi skrifaði í gær undir nýjan samning við stórliðið Manchester
United en Williams, sem er einungis 19 ára gamall, spilaði fyrsta leik sinn með liðinu í september á síðasta ári.
Fótbolti, glíma
og kappreiðar
COVID-19 hefur haft áhrif í heimi íþróttanna líkt
og annars staðar. Lítið er um kappleiki og stóra
íþróttaviðburði en æfingar eru víða í fullum gangi.