Fréttablaðið - 05.08.2020, Blaðsíða 4
Við höfum reynt
eftir fremsta megni
að halda ekki eftir fjár-
munum vegna sölu sem
hefur verið veitt og erum
ekki að því.
Jakob Már
Ásmundsson,
forstjóri
Kortaþjónust-
unnar
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
Finndu okkur á
Fermingarskraut í úrvali!
■ Myndaveggir
■ Nammibarir
■ Kortakassar
■ Servíettur
■ Borðrenningar
■ Blöðrur (fyrir loft/helíum)
■ Blöðrubogar/lengjur/hringir
(fyrir loft)
■ Súkkulaðiegg í þemalitum
veislunnar
■ Kerti
■ Og margt fleira
■ Veggborðar þar sem hægt er að raða bókstöfum saman
í hvaða orð sem er, t.d. nafn fermingarbarns,
„Ferming“, „Myndaveggur”, „Kort”, „Nammibar”
Vöruúrvalið er að finna á facebook síðu Partýbúðarinnar
SJÁVARÚTVEGUR Helgin reyndist
farsæl á makrílslóð og fjölmörg
skip sigldu inn til löndunar á frí-
degi verslunarmanna. Aðalsteinn
Jónsson SU-11, sem er gerður út af
Eskju, fór með 800 tonn til Eski-
fjarðar snemma á mánudag og var
aftur á leið til veiða á mánudags-
eftirmiðdegi. Að sögn skipstjórans,
Ómars Sigurðssonar, voru fjölmörg
skip að fá allt upp í 300 tonn í hverju
kasti, en á sunnudeginum hafði það
minnkað niður í 100-150 tonn.
„Þessir blettir sem menn hitta á
hverfa oft eftir rúmlega sólarhring,
svo þarf að fara að leita aftur. Það er
svo allur gangur á því hvað tekur
langan tíma að finna þetta aftur,“
segir Ómar. Theodór Þórðarson,
skipstjóri á Venus NS-150, segir að
mjög hafi róast í veiðum síðan á
mánudagsmorgni. „Fiskurinn fór
þá suður á bóginn í átt að Færeyjum
og eitthvað færðist til austurs yfir í
norsku landhelgina,“ segir hann.
Makríll fer hratt yfir þegar sá
gállinn er á honum. Oft þarf að elta
torfur allt að 100 sjómílur þegar þær
fara af stað. Makríll er líkt og ýmsir
aðrir uppsjávarfiskar þeirri náttúru
gæddur að hann syndir stöðugt alla
sína lífsleið og getur ekki stoppað,
vegna þess að hann hefur engan
sundmaga sem finnst í beinfiskum
á borð við þorsk.
Ríf lega 45 þúsund tonnum af
makríl hafði verið landað á mánu-
dag, samkvæmt gögnum frá Fiski-
stofu. Um er að ræða sambærilegt
magn og á sama tíma í fyrra. Breyt-
ingin er hins vegar sú að margir
hófu veiðar tveimur til þremur
vikum fyrr í ár.
Leyfilegt magn sem veiða má í ár
er 166 þúsund tonn. Þar af er afla-
mark yfirstandandi fiskveiðiárs
138 þúsund tonn, en afgangurinn
óveiddur kvóti frá síðasta ári og
aukaaf laheimildir, sem sjávarút-
vegsráðuneytið úthlutaði til smærri
skipa og báta.
Theodór Þórðarson segir að
göngur makrílsins séu allt öðruvísi
nú en verið hefur á liðnum árum.
Hins vegar er engan bilbug að finna
á miðunum: „Það verður reynt við
þetta fram í rauðan dauðann,“ segir
hann. Ómar Sigurðsson tekur í
sama streng og nefnir að óþrjót-
andi bjartsýni sé sjómönnum
eðlislæg.
Aflahæsta skipið á makrílvertíð
þessa árs er Huginn VE-55, sem
hefur komið með 4.383 tonn að
landi, eða tæplega 10 prósent af öllu
lönduðu magni á þessu ári. Venus
NS-150 fylgir þar í kjölfarið með
3.725 tonn, Víkingur AK-100 hefur
landað 3.412 tonnum og Börkur
NK-122 hefur sótt 3.347 tonn af
makríl. thg@frettabladid.is
Makrílvertíðin glæddist lífi
um verslunarmannahelgina
Íslenski flotinn er ennþá við makrílveiðar í Smugunni, en aflabrögð voru góð yfir helgina. Eftir góða
veiði í rúma tvo sólarhringa færði makríllinn sig suður í átt til Færeyja og til austurs yfir í norsku land-
helgina. Engan bilbug er að finna á sjómönnum, sem munu reyna við makrílinn fram í rauðan dauðann.
Verslunarmannahelgin reyndist fengsæl fyrir þau íslensku skip sem gera út á makríl þetta árið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Fiskurinn fór þá
suður á bóginn í átt
að Færeyjum og eitthvað
færðist til austurs yfir í
norsku landhelgina.
Theodór Þórðarson,
skipstjóri á Venus NS-150
VIÐSKIPTI Hvorki Valitor né Korta-
þjónustan hyggjast grípa til sam-
bærilegra aðgerða gagnvart við-
skiptavinum sínum og Borgun, sem
ákvað að halda eftir 10 prósentum
af öllum færslum í sex mánuði, þar
með talið færslum vegna sölu á vöru
eða þjónustu sem hefur verið veitt.
„Við höfum beðið um upplýsingar
frá okkar kúnnum til að átta okkur
á umfangi fyrirframgreiðslna. Við
höfum reynt eftir fremsta megni
að halda ekki eftir f jármunum
vegna sölu sem hefur verið veitt og
erum ekki að því,“ segir Jakob Már
Ásmundsson, forstjóri Kortaþjón-
ustunnar.
„En það er mikilvægt að við-
skiptavinir vinni með okkur í því að
greina stöðuna hverju sinni,“ heldur
Jakob áfram.
Borgun tilkynnti á föstudag þeim
fyrirtækjum sem skipta við korta-
fyrirtækið um skilmálabreytingar,
sem fela í sér að tekin verði upp svo-
kölluð veltutrygging frá 1. október.
Með veltutryggingu er átt við að
Borgun heldur eftir 10 prósentum
heildarfjárhæðar allra færslna á
uppgjöri í sex mánuði. Þá verður
ekki gert upp oftar en mánaðarlega.
Fréttablaðið fékk ekki svör frá
Borgun um þetta mál þegar eftir
því var leitað í gær.
Í svari frá Valitor kemur fram að
fyrirtækið sé að glíma við svipuð
úrlausnarefni gagnvart ferðaþjón-
ustu og aðrir færsluhirðar hér á
landi og um allan heim.
„Við höfum kosið að vinna með
þessum aðilum einstaklingsbundið
og gætt meðalhófs í aðgerðum. Það
hefur í langflestum tilvikum gengið
vel og ekki fyrirhugaðar neinar sér-
tækar breytingar á skilmálum,“
segir í svari Valitors.
Þá er tekið fram í svari Valitors að
nær undantekningarlaust hafi ekki
verið þörf á aðgerðum vegna kaup-
manna í öðrum greinum en ferða-
þjónustu. – þfh
Keppinautar Borgunar ganga ekki jafn
langt í að halda eftir kortagreiðslum
ALÞJÓÐAMÁL Um miðjan febrúar
fengu fjögur íslensk bæjarfélög,
Garðabær, Hafnarfjörður, Mos-
fellsbær og Reykjanesbær, erindi frá
Jihad Khair, bæjarstjóra Beit Sahour
í Palestínu, þar sem óskað var eftir
að komið yrði á vinabæjartengslum
milli bæjanna. Erindin voru send
um miðjan febrúar síðastliðinn en
tæpu hálfu ári síðar hafa íslensku
bæjarfélögin ekki enn svarað erind-
inu. Þetta staðfestir Usama Allati,
upplýsinga- og menningarfulltrúi
Beit Sahour.
„Við erum búin að senda ítrekun-
arpósta en höfum engin svör fengið
enn. Hreint út sagt skiljum við ekki
hvernig á því stendur,“ segir Allati
í skrif legu svari við fyrirspurn
Fréttablaðsins.
Palestínski bærinn leggur mikla
áherslu á alþjóðleg samskipti og
hefur myndað vinabæjartengsl við
20 aðra bæi víða um heim. – bþ
Hunsa erindi
frá Palestínu
Jihad Khair, bæjarstjóri Beit Sahour.
COVID -19 Reykjavíkurmaraþoni
Íslandsbanka hefur verið af lýst.
Mikil óvissa hefur ríkt um örlög
maraþonsins sem fara átti fram 22.
ágúst næstkomandi eftir að COVID-
19 smitum tók aftur að fjölga.
Í tilkynningu frá skipuleggjend-
um kemur fram að þeir sjái sér ekki
fært að halda viðburðinn og upp-
fylla um leið nýhertar takmarkanir
sóttvarnayfirvalda sem tóku gildi
á föstudag.
Kveða þær meðal annars á um að
tveggja metra reglan sé virt í hví-
vetna og bann við því að f leiri en
100 manns komi saman. – eþá
Ekkert maraþon
vegna COVID
Yfir 10 þúsund manns tóku þátt í
Reykjavíkurmaraþoni á síðasta ári.
COVID-19 Í gær voru 83 einstaklingar
hér á landi með virkt COVID-19 smit
og 734 voru í sóttkví.
Á upplýsingafundi almannavarna
í gær greindi Óskar Reykdalsson,
forstjóri Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins, frá því að stefnt væri að
því að hefja sýnatöku í tjaldi við
Suðurlandsbraut. Gert er ráð fyrir
að fólk með einkenni COVID-19 geti
keyrt þar í gegn og farið í sýnatöku
án þess að fara út úr bílnum. Þetta
myndi auka fjölda þeirra sýna sem
heilsugæslan gæti tekið á degi hverj-
um. Þá er fólk hvatt til að hringja
áður en það mætir til sýnatöku og
halda sig til hlés á meðan það bíður
eftir niðurstöðu hennar.
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir sagði á fundinum í gær að
helsta áhyggjuefnið þessa stundina
væri að fjöldi farþega sem koma
til landsins fari yfir sýnatöku-
getu Landspítalans. Sigurður Ingi
Jóhannsson samgönguráðherra
segir að reglugerð sé í mótun hjá
ráðuneytinu sem miðar að því að
takmarka þann fjölda ferðamanna
sem kemur hingað til lands ef þarf.
Þá sagði Þórólfur í samtali við Rík-
isútvarpið að ekki væri nauðsynlegt
að grípa til harðari aðgerða á þess-
ari stundu en að þolinmæði fólks í
samfélaginu gagnvart veirunni væri
áhyggjuefni. Hann, ásamt Ölmu
Möller landlækni og Víði Reynissyni
yfirlögregluþjóni, fundaði með ríkis-
stjórninni í gær þar sem meðal ann-
ars var ræddur aukinn samráðsvett-
vangur um það hvernig takast skuli á
við veiruna í samfélaginu. – bdj
Yfir áttatíu manns með virkt COVID-19 smit í gær
Þórólfur
Guðnason,
sóttvarnalæknir
5 . Á G Ú S T 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð