Fréttablaðið - 05.08.2020, Blaðsíða 13
Þetta reddast. Þessi tvö orð eru oft og tíðum titluð sem ein-kennisorð íslensku þjóðar-
innar. Sama hvað bjátar á, þetta
reddast. En hvað liggur á bak við
þessi orð? Jú, að það er ekkert
vandamál það stórt, að það redd-
ist ekki. Við leysum það. Þó við
vitum ekki svörin við því núna,
þá munum við mjög sennilega
vita þau síðar meir og leysa vanda-
málið.
Nú eru að fara af stað fjölmargar
rannsóknir á samspili ástríðu,
þrautseigju og hugarfars. Í þeim
rannsóknum er því haldið fram
að samspil þessara þriggja þátta sé
lykilatriði í því að ná árangri, eða
skara fram úr á einhverju sviði. En
hvað er átt við með hugarfari? Þar
er meðal annars verið að skoða
þann mun sem gróskuhugarfar
(e. growth mindset) og fastmótað
hugarfar (e. fixed mindset) hefur á
árangur einstaklinga.
Á sjöunda áratug síðustu aldar
hóf Carol Dweck tímamótarann-
sókn sem varpaði ljósi á þessar
tvær tegundir hugarfars. Allar
götur síðan hef ur hún rann-
sakað og þróað kenningar sínar
um gróskuhugarfar. Rannsóknir
hennar hafa sýnt fram á mikilvægi
gróskuhugarfars til að ná árangri,
ef la þróun og jafnvel ánægju, í leik
og starfi. Að breyta þankagang-
inum á þá leið að þegar þú færð
spurningar þar sem svarið krefst
kunnáttu sem þú hefur ekki, að
svarið sé, ég veit það ekki að svo
stöddu. Ef við festum okkur í kunn-
áttukassa er hætt við að við lærum
aldrei neitt nýtt. Þau sem trúa því
að við fæðumst með stærðfræði-
kunnáttu eða tungumálakunnáttu
ná aldrei árangri á öðrum sviðum
en akkúrat þeim sem þau telja sig
hafa fengið í vöggugjöf. Nú hafa
ýmsar rannsóknir (Ericsson) sýnt
fram á að svo sé einmitt ekki. Við
lærum það sem við þjálfum. En það
er ekki nóg að æfa sig bara, þú þarft
að sýna því áhuga og elju. Samspil
þrautseigju, ástríðu og hugarfars er
lykillinn að því að ná árangri.
Ef þú hefur brennandi áhuga
á að læra latínu og ert tilbúin/n
að leggja vinnuna á þig, eru allar
líkur á að þú lærir latínu á endan-
um. Þegar þú hefur komið þér upp
slíku hugarfari og tamið þér það
sérðu ekki vandamál, heldur nýjar
áskoranir. Sjálfur hef ég reynt að
temja mér þetta hugarfar og þá sér-
staklega í tengslum við húsið mitt
sem þurfti mikið viðhald. Þegar
við f luttum inn kunni ég ekki að
bora í vegg. Ég ætla ekki að ganga
svo langt að segja að nú, tveimur
og hálfu ári síðar, sé ég orðinn
handlaginn, en ég get bjargað mér.
En það hefur tekið á taugarnar og
reynt á sambúð mína og konunnar
minnar og barna. Ég hins vegar
gafst ekki upp og veð ótrauður
áfram inn í hin ótrúlegustu verk-
efni, sambúðar fólki mínu (og
tengdaföður) til mikils ama, með
misjöfnum árangri.
Þjóðarsál Íslendinga hefur ein-
hvern veginn verið þeirrar gerðar
síðustu áratugi. Við leysum þetta.
Ekki misskilja mig, það er ekki allt-
af frábært og oft eru af leiðingarnar
slæmar. En sama á hverju bjátar þá
erum við alltaf tilbúin að leita leiða
til að finna lausn og jafnvel þó það
uppgötvist á kosningadag að 300
kosningabærir einstaklingar geti
ekki kosið þar sem þeim bar að
vera í sóttkví, þá reddaðist það.
Allt er hægt ef viljinn er fyrir
hendi, engar áhyggjur, þetta redd-
ast. Látum gróskuhugarfar gegn-
umlykja alla okkar starfsemi.
Gróskuhugarfar
Stefán
Guðnason
verkefnastjóri
og doktorsnemi
Lesa bara FBL
63%
FBL OG MBL
26%
Lesa bara MBL
11%
Með því að auglýsa í
Atvinnublaðinu nær þitt
fyrirtæki til 89% lesenda
dagblaða* á höfuð-
borgarsvæðinu.
Í 31 ár hefur heimaland mitt, Aserbaídsjan, misst tuttugu prósent af löndum sínum. Á
öllum þessum áratugum hafa
samfelldar árásir Armeníu truf lað
frið borgara Aserbaídsjan sem búa
við landamæri landanna tveggja.
Ítrekaðar samningaviðræður for-
seta landanna, sem hafa staðið yfir
í áratugi, hafa því miður ekki borið
neinn árangur.
Í dag eru sjö borgir í Aserbaíd-
sjan hernumdar af Armeníu. Það
er mér sárt að hugsa um Nagorno-
Karabak h átök in sem hóf ust
undir lok 20. aldar. Þessi hörmu-
legu átök sem hafa haft áhrif á líf
milljóna manna. Þessi harmleikur
fólks míns hefur staðið yfir síðan
1988. Harmleikurinn sem leiddi til
árásar Armeníu gegn Aserbaídsjan.
Í þessu óþarfa stríði, og í kjölfar
átaka Nagorno-Karabakh, hefur
meira en milljón manns hrakist á
f lótta, yfir 20 þúsund látist í hern-
aðaraðgerðum, yfir 50 þúsund slas-
ast illa, og nokkur þúsund Aserar
orðið fangar og gíslar í Armeníu. Á
sama tíma í Armeníu hafa heimili,
skólar, leikskólar, sjúkrastofnanir
og moskur eyðilagst.
Nagorno-Karabakh átökin eru
ógn gegn alþjóðafriði. Ítrekaðar
hernaðaraðgerðir Armeníu eru
gerðar með það eitt að markmiði
að hernema svæði í Aserbaídsjan.
Ég er sjálfur ættaður frá Aserbaíd-
sjan og vil að heimssamfélagið gefi
gaum að hernáminu á svæðinu.
Samk væmt nýjustu gögnum
voru 16 hermenn drepnir á yfir-
ráðasvæði Aserbaídsjan á tveimur
vikum í linnulausri sprengju-
árás hersins. Þetta er ekki hægt
að endurtaka endalaust. Ég vil að
stjórnmálamenn Íslands skipti sér
af þessu mikilvæga máli, því við
viljum öll lifa í friði, og ég er viss
um að enginn vill vera í stríði við
neinn.
Karabakh er Aserbaídsjan
Zakir Jón
Gazanov
formaður vin-
áttufélags
Íslands og
Aserbaídsjan
Ítrekaðar hernaðaraðgerðir
Armeníu eru gerðar með
það eitt að markmiði að her-
nema svæði í Aserbaídsjan.
En sama á hverju bjátar þá
erum við alltaf tilbúin að
leita leiða til að finna lausn
og jafnvel þó það uppgötvist
á kosningadag að 300 kosn-
ingabærir einstaklingar geti
ekki kosið þar sem þeim bar
að vera í sóttkví, þá reddað-
ist það.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13M I Ð V I K U D A G U R 5 . Á G Ú S T 2 0 2 0