Fréttablaðið - 13.08.2020, Page 1

Fréttablaðið - 13.08.2020, Page 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 7 6 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 1 3 . Á G Ú S T 2 0 2 0 ALVÖRU MATUR Á ÖRFÁUM MÍNÚTUM FERÐALÖG Ferðamálastofa svipti ferðaskrifstofuna Farvel starfsleyfi 18. desember síðastliðinn eftir að fyrirtækið hafði í fjórtán mánuði hunsað að bregðast við kröfu um hækkaða tryggingu. Við fall Farvel sátu fjölmargir eftir með sárt ennið vegna ferða sem aldrei voru farnar. „Tryggingin sem Farvel var með dugði fyrir broti af fargjöldum við- skiptavina,“ segir Eiríkur Jónsson, fyrrverandi formaður Kennarasam- bands Íslands og einn þeirra sem hafði greitt inn á ferð hjá Farvel. Eiríkur segir athæfi forsvarsmanns Farvel saknæmt. „Það var kallað eftir því að fólk greiddi inn á ferðir sínar þegar ljóst var í hvað stefndi,“ segir Eiríkur. Hann hafi greitt ferðina með greiðslukorti og því fengið hana endurgreidda að mestu. „Þeir sem millifærðu inn á reikning fyrirtækisins töpuðu nánast öllu slíku. Ég veit af fjölskyldu sem millifærði um 3 milljónir en fékk aðeins 10 prósent frá Ferðamálastofu,“ segir Eiríkur sem kveður erindi vegna linkindar Ferða- málastofu gagnvart Farvel hafa verið sent Umboðsmanni Alþingis. Ferða- málastofu bárust 76 kröfur í trygg- ingasjóð vegna Farvel. Meðal endur- greiðsla var um 10 prósent. „Þetta er eitt dæmi þess að við mælum hiklaust með því að fólk greiði slíkar ferðir með greiðslu- kortum,“ segir Helena Þ. Karlsdóttir, forstöðumaður hjá Ferðamálastofu. Aðspurð af hverju ekki hafi verið fyrr gripið inn í gagnvart Farvel segir Helena að slíkar stjórnsýslulegar ákvarðanir taki einfaldlega tíma. „Þetta er mjög öfgakennt dæmi og sem betur fer sjaldgæft að slíkir við- skiptahættir eigi sér stað. Við teljum að þarna hafi saknæmt athæfi átt sér stað og bíðum nú niðurstöðu lög- reglurannsóknar.“ segir Helena Þ. Karlsdóttir. – bþ Lögreglan rannsakar ásakanir um saknæmt athæfi hjá Farvel Tugir Íslendinga sátu eftir með sárt ennið við gjaldþrot ferðaskrifstofunnar Farvel vegna ferða sem greitt var inn á en aldrei voru farnar. Fjölskylda ein tapaði yfir þremur milljónum króna. Málið er rannsakað af lögreglu. Óskað er eftir að Umboðsmaður Alþingis skoði meinta linkind Ferðamálastofu gagnvart Farvel. Iðandi líf er jafnan í gömlu höfninni í Reykjavík. Um borð í bátnum Neista var maður í gær að huga að ýmsum verkum sem vinna þarf í f leyjum sem róið er til fiskjar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Við teljum að þarna hafi saknæmt athæfi átt sér stað. Helena Þ. Karlsdóttir, forstöðu- maður hjá Ferðamálastofu BANDARÍKIN Kamala Harris er varaforsetaefni Joe Biden í forseta- kosningum vestra í haust. Hin 55 ára Harris er lögfræðingur og er marg- reynd úr bandarískri stjórnsýslu. Val á henni kom ekki alls kostar á óvart þó þau Biden hefðu tekist hart á þegar Harris freistaði þess að hljóta útnefningu Demókrata sem forseta- efni, en hún dró sig út úr þeirri bar- áttu í desember á síðasta ári. Valið brýtur blað í bandarískri stjórnmálasögu því hún er bæði fyrsta svarta konan í framboði fyrir annan stóru f lokkana en einnig fyrsta asíska konan í framboði til varaforseta, en móðir hennar er ind- versk að uppruna og faðir frá Jama- íka. – khg / sjá síðu 8 Valið brýtur blað Kamala Harris

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.