Fréttablaðið - 13.08.2020, Page 6
Við erum að taka
tillit til umsagna
svona eins og þol er.
Halla Signý Kristjánsdóttir, fulltrúi
Framsóknarflokksins í velferðar-
nefnd og framsögumaður málsins
HÚS NÆ ÐIS M ÁL Velferðarnefnd
Alþingis mun á fjarfundi í dag taka
upp þráðinn þar sem frá var horfið
með frumvarp félagsmálaráðherra
um hlutdeildarlán. Frumvarpinu,
sem er hluti af aðgerðum stjórn-
valda vegna lífskjarasamninga, er
ætlað að auðvelda ungu fólki og
tekjulágum að komast inn á hús-
næðismarkaðinn.
Upphaf lega stóð til að afgreiða
málið síðastliðið vor en ákveðið var
að fresta því til hausts. Alþingi mun
koma saman til framhaldsfunda í
lok mánaðarins en þá verður einnig
lögð fram fjármálaáætlun fyrir árin
2021-2025 og fjallað um breytingar
á fjármálastefnu fyrir árin 2018-
2022.
„Ég tel að við eigum ekki langt
í land með að klára málið út úr
nefndinni. Áður en við fórum í frí
kynntum við áherslur meirihlutans
fyrir nefndinni þannig að nefndar-
menn hafa fengið tíma til að melta
þetta,“ segir Halla Signý Kristjáns-
dóttir, fulltrúi Framsóknarflokks-
ins í velferðarnefnd og framsögu-
maður málsins í nefndinni.
Hún segir að sumarið hafi meðal
annars verið nýtt til að viðra tillög-
urnar við ráðuneytið. Gestakomum
í nefndinni lauk í júní og segir Halla
Signý að nú verði farið yfir áherslur
nefndarmanna.
„Við ætlum okkur núna að fara
yfir það og taka annan snúning
áður en við sendum þessar breyt-
ingatillögur til umsagnar hjá hags-
munaaðilum.“
Halla Signý segist vilja kynna
lokatillögur meirihlutans fyrir
nefndinni áður en hún ræði inni-
hald þeirra frekar.
„Grunnmarkmið frumvarpsins
heldur sér að mestu leyti en svo
eru líka tæknilegar breytingar og
útfærslur sem við leggjum til. Við
erum í raun að taka tillit til athuga-
semda sem komu fram. Það er þó
aldrei hægt að gera öllum til geðs en
við erum að taka tillit til umsagna
svona eins og þol er,“ segir Halla
Signý.
Umsagnaraðilar gerðu ýmsar
athugasemdir við einstaka þætti
frumvarpsins þótt f lestir hafi lýst
yfir stuðningi við markmið þess.
Verkalýðshreyfingin hefur lagt
mikla áherslu á að málið verði
afgreitt.
„Við bíðum mjög spennt eftir
því að sjá hvað kemur út úr vinnu
nefndarinnar. Þetta er auðvitað
gríðarlega mikilvægt mál fyrir
okkur,“ segir Kristján Þórður Snæ-
bjarnarson, 1. varaforseti ASÍ.
Verkalýðshreyfingin hefur þó
gagnrýnt nokkra þætti frumvarps-
ins og þá helst að sett séu tekjumörk
á þá sem geta nýtt sér úrræðið.
„Ég geri ráð fyrir því að það sé
verið að taka tillit til þess. Þegar við
vorum að vinna í þessu þá var þetta
ekki hluti af því uppleggi. Það mun
skipta miklu máli að það verði gert
og hvernig það verður gert. Þetta
þarf að vera almennara úrræði fyrir
f leiri hópa,“ segir Kristján Þórður.
Þá minnir hann á að afgreiðsla
málsins tengist kjarasamningun-
um og endurskoðun þeirra í haust.
„Þess vegna er það gríðarlega mikil-
vægt að þetta klárist núna þegar
þingið kemur aftur saman.“
sighvatur@frettabladid.is
Telur stutt í að nefndin
afgreiði hlutdeildarlánin
Frumvarp félagsmálaráðherra um hlutdeildarlán verður til umfjöllunar á
fundi velferðarnefndar í dag. Farið verður yfir breytingatillögur meirihlutans.
Verkalýðshreyfingin leggur mikla áherslu á afgreiðslu málsins í haust.
Hlutdeildarlán eiga að aðstoða ungt fólk og tekjulágt að komast á húsnæðismarkað. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
uppskera!
Ný íslensk
... hjá ok
ku
r
í
d
a
g
H
já
b
ó
nd
a í gær ...
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
ÍÞRÓTTIR Búlgarinn Aleksandar
Antonov sem fékk f lest stig í Fant-
asy-deild ensku Úrvalsdeildarinnar
á heimsvísu, hefur verið dæmdur úr
leik. Hann fékk tilkynningu um það
frá Úrvalsdeildinni að aðgangi hans
hefði verið eytt þar sem hann hefði
brotið reglur leiksins.
Breski miðillinn The Guardian
greinir frá því að ástæðan sé rasísk
ummæli Antonov um leikmann
sem talinn er vera Raheem Sterling.
Ummælin eiga að hafa fallið í spjalli
á netinu við vini.
Antonov segist í myndbandi sem
var birt á YouTube hafa sent Úrvals-
deildinni útskýringar á málinu.
Hann segist ekki vera rasisti heldur
hafi ummælin fallið vegna pirrings
með frammistöðu leikmannsins.
Antonov segir að í þessu spjalli sé
hann að grínast við vini sína um fót-
bolta. Það hafi ekki verið ætlunin að
móðga leikmenn enda myndi hann
aldrei segja slíka hluti beint við þá.
Brottvísun Antonov þýðir að
Englendingurinn Joshua Bull hefur
verið krýndur sigurvegari.
Bull hlaut 2.557 stig en Antonov
endaði með 2.575 stig en alls voru
þátttakendur rúmlega 7,6 milljónir.
Þess má geta að norski stórmeistar-
inn Magnus Carlsen endaði í tíunda
sæti en hann var um tíma efstur.
Bull, sem er stærðfræðingur og
starfar við krabbameinsrannsóknir
við Oxford háskóla, vildi ekki tjá sig
við The Guardian um ástæður þess
að Antonov hefði verið dæmdur úr
leik. – sar
Sigurvegarinn í Fantasy á heimsvísu
dæmdur úr leik fyrir rasísk ummæli
Rasísk ummæli um Raheem Sterling
urðu til þess að sigurvegarinn í Fan-
tasy var dæmdur úr leik. MYND/EPA
EVRÓPA Ítalir eru líklegastir af stóru
þjóðum Evrópusambandsins til að
yfirgefa ESB ef hagsæld Breta reyn-
ist meiri utan sambandsins eftir
útgönguna en fyrir. Þetta kemur
fram í niðurstöðum könnunar sem
gerð af var Redfield and Wilton
Strategies fyrir Euronews. Kemur í
ljós að rúmlega 45 prósent Ítala séu
tilbúnir að styðja útgöngu úr ESB,
reynist efnahagur Bretlands í góðu
ástandi eftir fimm ár.
Könnuð var afstaða þriggja ann-
arra þjóða: Frakka, Spánverja og
Þjóðverja. Nokkur stuðningur
reyndist vera við útgöngu, hvort
tveggja í Frakklandi og á Spáni.
Stuðningur Frakka reyndist 38 pró-
sent og Spánverja 37 prósent.
Stuðningurinn við útgöngu úr
Evrópusambandinu reyndist hins
vegar nokkru minni meðal Þjóð-
verja, eða 30 prósent.
Svipað hlutfall þeirra taldi lík-
legt að Bretar myndu hafa það betra
utan ESB en innan. Könnunin var
gerð 17. til 18. júlí og náði til 1.500
manns í hverju landi. – ab
Ítalir líklegastir til að yfirgefa ESB
Gianluigi stofnaði flokk á Ítalíu sem berst fyrir útgöngu úr ESB. MYND/EPA
1 3 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð