Fréttablaðið - 13.08.2020, Síða 8

Fréttablaðið - 13.08.2020, Síða 8
Meðal helstu áhugamála Harris er póker en hún þykir slyngur spilari. BANDARÍKIN Kamala Devi Harris, 55 ára öldungadeildarþingmaður frá Kaliforníu, er frambjóðandi Demókrataf lokksins til varafor- seta Bandaríkjanna. Joe Biden for- setaframbjóðandi tilkynnti val sitt á þriðjudag og kom það fæstum á óvart. Hann hafði áður gefið það út að hann myndi velja konu og þótti Harris líklegust. Tímasetning tilkynningarinnar kemur heldur ekki á óvart. Vika er í landsfund Demókrataf lokksins og val á varaforsetaefni gefur fram- bjóðendum ávallt svolítið trukk, líkt og fundurinn sjálfur. Biden hefur verið að dala örlítið í könn- unum undanfarið, en hefur ennþá afgerandi forystu. Vonast er til að hún verði enn meiri eftir landsfund- inn sem að þessu sinni er haldinn í Milwaukee, stærstu borg Wiscons- in, sem er eitt af helstu baráttufylkj- unum í kosningunum. Fundurinn verður þó með óhefðbundnu sniði og að stærstum hluta fjarfundur. Ættuð frá Indlandi og Jamaíka Valið á Harris brýtur blað í stjórn- málasögu Bandaríkjanna því hún er fyrsta svarta konan í framboði fyrir annan hvorn stóra flokkinn. Hún er einnig fyrsta asíska konan í fram- boði, en móðir hennar er indversk að uppruna og faðir hennar frá Karíbaeyjunni Jamaíka. Harris er hins vegar fædd í borginni Oakland og alin upp í Kaliforníu og Quebec í Kanada en foreldrar hennar skildu þegar hún var sjö ára gömul. Harris stefndi á lögfræði og nam við Howard háskólann í Washing- ton og Kaliforníuháskólann í San Francisco. Árið 1990 hóf hún störf sem saksóknari í Oakland og á næstu árum vann hún sig upp met- orðastigann í kerfinu. Mikill stuðningur innan flokks Árið 2003 bauð hún sig fram til borgarsaksóknara San Francisco og naut stuðnings margra stór- bokka í Demókrataflokknum. Þar á meðal öldungadeildarþingmanns- ins Diane Feinstein, þingmannsins og núverandi forseta neðrideildar Nanci Pelosi, og borgarstjórans Willie Brown sem jafnframt er fyrr- verandi sambýlismaður Harris. Í kosningabaráttunni fékk Harris þunga sekt fyrir að hafa eytt langt umfram leyfilegt hámark í aug- lýsingar og viðurkenndi sök í því máli. Engu að síður sigraði hún kosningarnar og sjö árum síðar var hún kjörin aðalsaksóknari Kaliforníufylkis. Athygli vekur að meðal þeirra sem styrkt hafa fram- boð Harris í gegnum tíðina eru Donald Trump Bandaríkjaforseti og Ivanka Trump dóttir hans. Harris var orðuð við embætti ríkissaksóknara Bandaríkjanna og stöðu hæstaréttardómara, en ákvað frekar að taka beinan þátt í stjórnmálum á þinginu. Þegar hún tilkynnti um framboð til öldunga- deildarinnar árið 2016 fylktu allir stórbokkarnir í Demókrataflokkn- um í Kaliforníu sér á bak við hana og kannanir sýndu yfirburðafylgi, sem hún á endanum hlaut í kosn- ingunum. Mótframbjóðandi henn- ar var Loretta Sanchez, þingmaður Demókrata, en Repúblikanar höfðu þá gefist upp á Kaliforníu. Ýmis mál hafa komið upp í emb- ættistíð Harris sem saksóknara sem hafa valdið titringi. Meðal annars aðgerðaleysi hennar gagnvart vís- indamanni á rannsóknarstofu lög- reglunnar sem hafði stolið fíkni- efnum. Um 600 dómsmál glötuðust vegna þessa starfsmanns. Harris þótti þó almennt hörð í horn að taka og sakfellingarhlutfall hækk- aði um meira en 10 prósent. Rimmur við Biden Árið 2014 giftist Harris Douglas Emhoff, lögfræðingi sem starfar fyrir skemmtanaiðnaðinn í Kali- forníu. Saman eiga þau engin börn en hann á tvö úr fyrra hjónabandi. Meðal helstu áhugamála Harris er póker en hún þykir slyngur spilari. Í janúar 2019 tilkynnti Kamala Harris um framboð sitt til forseta Bandaríkjanna. Hún þótti standa sig vel í kappræðum og mældist með allt að 20 prósenta fylgi. Meðal annars skaut hún föstum skotum á Joe Biden, en hældi Bernie Sanders. Þegar á leið dró úr fylgi hennar, sér í lagi eftir harðar kappræður við Joe Biden í ágúst, og festist í 5 til 8 prósentum. Þá var ljóst að forvalið yrði kapphlaup milli Biden, Sand- ers og Elizabeth Warren. Í desember 2019, áður en fyrsta forvalið í Iowa fór fram, dró Harris framboð sitt til baka. Sumir hafa líkt Harris við eins konar „k venkyns Obama“ en hún kann illa við það. Framboð hennar hefur eðli málsins sam- kvæmt byggst á réttlætismálum og umbótum í dómskerfinu, fremur en til dæmis heilbrigðismálum sem Obama var þekktur fyrir. Snemma fóru skýrendur að orða hana við framboð til varaforseta með Biden og í apríl síðastliðnum sagðist hún vilja það. Í kjölfarið var hún talin líklegust til þess að hreppa tilnefninguna. Með valinu á Harris vonast Biden til þess að fá f leiri konur á kjörstað og sérstak- lega úr minnihlutahópum. Það gæti haft töluverð áhrif í hinu svokallaða ryðbelti, Pennsylvaníu, Michigan og Wisconsin, en einnig í Suðurríkj- unum, þá helst Norður-Karólínu og Georgíu. Kaliforníu þarf hann ekki að hafa áhyggjur af. kristinnhaukur@frettabladid.is Hafnar því að vera kvenkyns Obama Joe Biden, forsetaframbjóðandi Demókrata, valdi Kamölu Harris sem meðframbjóðanda. Harris sóttist eftir að verða forsetaefni en dró framboð til baka í desember. Hún á umdeildan feril sem saksóknari en er nú annar öldungadeildarþingmaður Kaliforníufylkis. Höfðar ekki til unga fólksins á sama hátt og Bernie Sanders Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, segir að valið á Harris hafi alls ekki komið á óvart. Frekar hversu margar konur hafi verið til skoðunar. „Hún hefur gríðarlega mikla reynslu af framboð- um og ólíkt hinum sem komu til greina hefur hún gegnt framkvæmdavaldsstöðu. Það er einn helsti styrkurinn sem hún hefur,“ segir Silja. „Hún hefur einnig reynst sterk í yfirheyrslum í þinginu, hugsar hratt og verður vafalaust góð í kappræðum.“ Aðspurð um veikleika segir Silja að Harris höfði ekki jafnmikið til ungs fólks og til dæmis Bernie Sanders geri. Það sé einnig svolítil þversögn fólgin í því að vera fyrsta blökkukonan sem býður sig fram til þessa embættis en jafnframt ekki vera mjög tengd baráttumálum eins og þeim sem Black Lives Matter standa fyrir. „Hún var mjög harður saksóknari og tók þátt í að viðhalda fangelsismenn- ingu í Kaliforníu sem kemur sérstaklega hart niður á svörtu fólki,“ segir Silja. Samkvæmt Silju hefur varaforsetaframbjóðand- inn í raun lítil áhrif á útkomu kosninganna. Harris verði þó óumdeilanlega í sterkri stöðu til að sækjast eftir embætti forseta í framtíðinni, ef Biden verður kjörinn í nóvember. „Það er nokkuð táknrænt að hún sé fædd um það leyti sem löggjöfin um kynþáttajafnrétti var sett, en þá fengu svartar konur mjög víða kosningarétt í fyrsta skipti.“ Val Joes Biden á Harris sem varaforsetaefni kom fáum á óvart þrátt fyrir harðar rimmur þeirra í kappræðum. Engu að síður er það talið brjóta blað í stjórnmálasögu Bandaríkjanna. MYND/EPA 1 3 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.