Fréttablaðið - 13.08.2020, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 13.08.2020, Blaðsíða 17
AF KÖGUNARHÓLI G unnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtakanna, skrifar um kröfu þeirra í Bændablaðið 16. júlí, að fá viðræður við stjórnvöld um tollamál. Hann hnykkir á kröfunni með þessu orðum: „Það þarf að gerast áður en samið verður við Breta á grundvelli Brexit um heimildir til að flytja inn aukið magn af búvörum.“ Ekki kemur á óvart að bændur óski eftir viðræðum við ríkisstjórnina. En hitt eru nokkur tíðindi að á dagskrá kunni að vera að semja við Breta um aukinn innflutning á búvörum. Land- búnaðarráðherra hefur þagað þunnu hljóði um það. Engin markmið eða umræða Þessi frásögn í Bændablaðinu beinir kastljósinu að því að ríkisstjórnin hefur hvorki kynnt stefnu né markmið í við- ræðum við Breta. Í skilnaðarviðræðum Breta og Evr- ópusambandsins hafa báðir aðilar birt stefnu og samningsmarkmið. Eins er með viðræður Breta og Bandaríkjanna. Áður en þær hófust kynntu ríkisstjórn- ir beggja landa stefnu og markmið. Oft afla ríkisstjórnir sér umboðs frá þjóðþingum áður en mikilvægar við- ræður við aðrar þjóðir hefjast. Í nútíma lýðræði heyrir þetta til sjálfsagðra hluta, en virðist ekki henta ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur. Stórkostleg tækifæri Ekkert ríki hefur stigið jafn stórt skref til baka í samningsbundnum sam- skiptum við Ísland eins og Bretland. Að Írlandi fráskildu kemur Brexit einna verst niður á Íslandi. Eigi að síður fullyrðir ríkisstjórnin í sífellu að Brexit skapi Íslandi stórkostleg tækifæri. Að sönnu er ekki bent á þau. Og aðrir hafa ekki komið auga á þau, nema að því er varðar makrílinn. Ríkisstjórnir allra annarra ríkja á innri markaði Evrópusambandsins viðurkenna skaðleg áhrif þessarar ákvörðunar Breta. EFTA-ríkin hafa gert bráðabirgða- samninga við Breta, sem takmarkast við vöruviðskipti. En hvað vill Ísland til lengri tíma? Telur ríkisstjórnin að einfaldur fríverslunarsamningur sé fullnægjandi? Eða sýnist henni að setja eigi markið hærra og endurheimta fjór- frelsið í tvíhliða samningum? Í viðræðum við Bandaríkin eru Bretar að gefa eftir varðandi reglur um meðferð matvæla. Hver er stefna ríkis- stjórnarinnar í viðræðum við Breta um þau efni? Ætlar ríkisstjórnin að tryggja einstaklingum og fyrirtækjum sömu neytendavernd og sömu samkeppnis- vernd og er á innri markaðnum? Bretar sjá þetta sem veikleika Þessar einföldu spurningar sýna hversu mikilvægt það er að hafa markmið í samningum sem þessum og það fari fram pólitísk umræða um þau. Meðan ríkisstjórnin talar bara um stórkostleg tækifæri án þess að skil- greina stefnu og markmið er hætt við að viðsemjendurnir upplifi það sem rangt stöðumat og hagnýti sér það. En svo kann að vera að ríkisstjórnin kjósi meðvitað að tala eins og úti á þekju um ný tækifæri þegar tækifærum fækkar. En hvers vegna ætti hún að vilja það? Trúlega vegna þess að stjórnar- flokkarnir koma sér ekki saman um hver stefnan á að vera. Málið er þá einfaldlega leyst með því að móta ekki stefnu og setja ekki markmið. Þetta er ástand, sem ríkis- stjórnin kallar pólitískan stöðugleika. Eins líklegt er þó að viðsemjendurnir líti á þá sjálfsgreiningu sem pólitískan veikleika. Lag til að bæta  stöðuna í makr ílsamningum Ný staða kemur upp varðandi makríl- samningana um áramót þegar Bretar taka til sín samningsumboðið, sem Evrópusambandið hefur farið með. Þótt formlegar viðræður um makríl og viðskipti séu aðskildar hlýtur ríkis- stjórnin að líta á hagsmunina í heild og ræða þannig við Breta. Nú er lag til að fá viðurkenningu Breta á hlutdeild Íslands í makrílveiðunum strax um næstu áramót. Er sú krafa ekki örugg- lega rædd fyrst á hverjum fundi? Hver hafa viðbrögðin verið? Vegna upplýsinga forystumanna bænda um mögulega aukinn inn- flutning búvara frá Bretlandi má spyrja hvort sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra hafi lagt línur um forgang hagsmuna ef svo fer að á það reyni? Má ræða spurningar af þessu tagi? Eða ógna þær pólitískum stöðugleika? Bændur og Brexit Þorsteinn Pálsson En svo kann að vera að ríkis- stjórnin kjósi meðvitað að tala eins og úti á þekju um ný tæki- færi þegar tækifærum fækkar. LÍKA Á SUMRIN! Auglýsing í Fréttablaðinu er ávallt jafn verðmæt júní júlí ágúst 88% af lesendum dagblaða* á höfuðborgarsvæðinu á aldurs- bilinu 18-49 ára lesa Fréttablaðið daglega allan ársins hring *meðallestur þeirra sem lesa bara Fréttablaðið og þeirra sem lesa Fréttablaðið og Morgunblaðið. Heimild: Prentmælingar Gallup apr. - júní og júlí - sept. 2019. – mest lesna dagblað landsins, líka á sumrin Landsmenn lesa Fréttablaðið allan ársins hring 88% S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17F I M M T U D A G U R 1 3 . Á G Ú S T 2 0 2 0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.