Fréttablaðið - 13.08.2020, Side 20

Fréttablaðið - 13.08.2020, Side 20
Þegar ég var veikur hugsaði ég mikið til Astori og að þetta gæti komið fyrir mig. Að sjá ekki fjölskylduna mína aftur. Ég var hræddur við að loka augunum. Josip Ilicic 1 3 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R20 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT RB LEIPZIG vs ATLÉTICO MADRID Í KVÖLD 18:50 Tryggðu þér áskrift í dag á stod2.is FÓTBOLTI Af öllum stórstjörnunum sem hægt var að tala um fyrir og eftir leik PSG og Atalanta var áber- andi fjarvera Slóvenans Josip Ilicic, eitthvað sem margir ræddu um og veltu fyrir sér. Ilicic hefur ekki spilað síðan Atal- anta mætti Juventus um miðjan júlí og fjarvera hans var fyrst útskýrð með meiðslum. En Ilicic er stór- stjarna, bæði í heimalandinu og á Ítalíu, eftir frábært tímabil þar sem hann skoraði 21 mark í 34 leikjum. Slúðurblöðin í báðum löndum fóru að slá upp fréttum um að fjarvera hans væri andleg vanheilsa vegna framhjáhalds konunnar hans. Eftir að hafa verið í einangrun vegna COVID-faraldursins sem fór illa með íbúa Bergamo, sem Atalanta er frá, fékk leikmaðurinn leyfi til að heimsækja heimalandið og koma konunni sinni á óvart. Þar á að hafa blasað við honum sú sýn sem flesta langar nákvæmlega ekk- ert að sjá. Konan hans með öðrum manni. Eftir atvikið helltist yfir hann þunglyndi, sem hann þekkir vel, og mætti hann aftur á æfingar hjá Atalanta, samkvæmt Corriere dello Sport, fimm kílóum léttari og virkaði orkulaus. Hann hafi vissu- lega mætt á æfingar en samkvæmt blaðinu var eins og hann væri ekki á staðnum. Síðan þá hefur andlegri heilsu hans hrakað og leyfði félagið honum að snúa aftur til heima- landsins til að ná heilsu. Fjölmargir hafa sent honum batakveðjur og í miðri viku setti hann story á Insta- gram þar sem hann birti myndir af sér og frúnni og neitaði fréttunum um framhjáhaldið. Í gær bárust fréttir um að Ilicic væri að íhuga að leggja skóna á hilluna, aðeins 32 ára og nýbúinn að eiga sitt besta tímabil. Ástæðan væri þunglyndi. Ilicic er fæddur 1988 í þáverandi Júgóslavíu. Þegar stríðið braust út var faðir hans myrtur, þegar Josip var aðeins eins árs. Fjölskyldan flúði til Slóveníu þar sem hann ólst upp. Eftir að hafa gengið upp metorða- stigann í heimalandinu var hann keyptur til Interblock í efstu deild. Þegar liðið féll var hann álitinn einn Dökk ský yfir stórstjörnu Slóvena Josip Ilicic, leikmaður Atalanta, var ekki með í gær í Meistaradeildinni gegn PSG. Hans var sárt saknað en leikmaðurinn átti magnað tímabil. Félagið hefur sent hann heim til Slóveníu, því leikmaðurinn glímir við þunglyndi - sem blöðin á Ítalíu hafa gert sér mat úr. Ilicic varð elsti leikmaður í sögu Meistaradeildar Evrópu til að skora fjögur mörk í einum og sama leik. Það gerði hann gegn Valencia í mars. MYND/GETTY efnilegasti leikmaður landsins og endaði sem markahæsti leikmaður liðsins. En hann spilaði ekki síðustu leikina og íhugaði að hætta, sam- kvæmt ítölskum miðlum. Zlatko Zahovic, sem var yfirmaður fót- boltamála hjá Maribor sannfærði hann þó um að koma til liðsins. Þar stoppaði hann stutt. Skoraði eins og vindurinn, meðal annars í Evrópu- keppninni gegn Palermo, sem stökk til og keypti piltinn. Eftir fína frammistöðu var hann seldur til Fiorentina þar sem hann varð náinn fyrirliðanum, Davide Astori. Þegar sá lést skyndilega tók við mikil sorg hjá Ilicic sem eðli- lega tók atvikið mjög nærri sér. „Ég þjáðist í marga daga og svaf sama sem ekki neitt,“ sagði Ilicic í viðtali við Corriere dello Sport. Skömmu eftir dauða vinar síns fékk hann slæma bakteríusýkingu og þurfti að leggjast inn á sjúkra- hús. Þar þorði hann ekki að fara að sofa, því hann var hræddur um að vakna ekki aftur. „Þegar ég var veikur hugsaði ég mikið til Astori og að þetta gæti komið fyrir mig. Að sjá ekki fjölskylduna mína aftur. Ég var hræddur við að loka augunum,“ sagði hann í viðtalinu. Hann hætti að horfa á fótbolta og einbeitti sér að heilsunni og fjölskyldu sinni. „Á einum tíma- punkti vonaðist ég bara eftir að ná heilsu. Mér var alveg sama um fótboltann,“ sagði kappinn. Hann náði heilsu og átti stórkostlegt tímabil þar sem öskubuskuævin- týri Atalanta gladdi heiminn og kannski sérstaklega íbúa Ber- gamo, en borgin fór skelfilega út úr COVID-faraldrinum. Því miður lítur út fyrir að ævintýrið sé á enda hjá Ilicic. Í könnun sem FIFPRO, alþjóð- legu leikmannasamtökin, létu gera í apríl kom fram að þunglyndi hefði lagst á marga fótboltamenn og -konur. Alls tóku 1602 leikmenn frá 16 löndum þátt í könnuninni og 22 prósent í kvennadeildunum sögðust hafa upplifað þunglyndi síðan COVID-ástandið kom upp og 13 prósent karla. Í svipaðri könnun sem gerð var í desember voru tölurnar 11 prósent hjá konunum en sex prósent hjá körlunum. Í lokaverkefni Margrétar Láru Viðarsdóttur í íþróttafræði við Háskólann í Reykjavík árið 2015 kom fram að niðurstöður rann- sóknar hennar gæfi vísbendingar um að þunglyndi og kvíði meðal íslenskra atvinnumanna í bolta- íþróttum geti verið allt að helmingi algengara en hjá öðrum. benediktboas@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.