Fréttablaðið - 13.08.2020, Síða 20
Þegar ég var veikur
hugsaði ég mikið til
Astori og að þetta gæti
komið fyrir mig. Að sjá ekki
fjölskylduna mína aftur. Ég
var hræddur við að loka
augunum.
Josip Ilicic
1 3 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R20 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
RB LEIPZIG vs ATLÉTICO MADRID
Í KVÖLD 18:50
Tryggðu þér áskrift í dag á stod2.is
FÓTBOLTI Af öllum stórstjörnunum
sem hægt var að tala um fyrir og
eftir leik PSG og Atalanta var áber-
andi fjarvera Slóvenans Josip Ilicic,
eitthvað sem margir ræddu um og
veltu fyrir sér.
Ilicic hefur ekki spilað síðan Atal-
anta mætti Juventus um miðjan júlí
og fjarvera hans var fyrst útskýrð
með meiðslum. En Ilicic er stór-
stjarna, bæði í heimalandinu og á
Ítalíu, eftir frábært tímabil þar sem
hann skoraði 21 mark í 34 leikjum.
Slúðurblöðin í báðum löndum fóru
að slá upp fréttum um að fjarvera
hans væri andleg vanheilsa vegna
framhjáhalds konunnar hans.
Eftir að hafa verið í einangrun
vegna COVID-faraldursins sem
fór illa með íbúa Bergamo, sem
Atalanta er frá, fékk leikmaðurinn
leyfi til að heimsækja heimalandið
og koma konunni sinni á óvart. Þar
á að hafa blasað við honum sú sýn
sem flesta langar nákvæmlega ekk-
ert að sjá. Konan hans með öðrum
manni.
Eftir atvikið helltist yfir hann
þunglyndi, sem hann þekkir vel,
og mætti hann aftur á æfingar hjá
Atalanta, samkvæmt Corriere
dello Sport, fimm kílóum léttari og
virkaði orkulaus. Hann hafi vissu-
lega mætt á æfingar en samkvæmt
blaðinu var eins og hann væri ekki
á staðnum.
Síðan þá hefur andlegri heilsu
hans hrakað og leyfði félagið
honum að snúa aftur til heima-
landsins til að ná heilsu. Fjölmargir
hafa sent honum batakveðjur og í
miðri viku setti hann story á Insta-
gram þar sem hann birti myndir af
sér og frúnni og neitaði fréttunum
um framhjáhaldið.
Í gær bárust fréttir um að Ilicic
væri að íhuga að leggja skóna á
hilluna, aðeins 32 ára og nýbúinn
að eiga sitt besta tímabil. Ástæðan
væri þunglyndi.
Ilicic er fæddur 1988 í þáverandi
Júgóslavíu. Þegar stríðið braust út
var faðir hans myrtur, þegar Josip
var aðeins eins árs. Fjölskyldan flúði
til Slóveníu þar sem hann ólst upp.
Eftir að hafa gengið upp metorða-
stigann í heimalandinu var hann
keyptur til Interblock í efstu deild.
Þegar liðið féll var hann álitinn einn
Dökk ský yfir stórstjörnu Slóvena
Josip Ilicic, leikmaður Atalanta, var ekki með í gær í Meistaradeildinni gegn PSG. Hans var sárt saknað en leikmaðurinn átti magnað
tímabil. Félagið hefur sent hann heim til Slóveníu, því leikmaðurinn glímir við þunglyndi - sem blöðin á Ítalíu hafa gert sér mat úr.
Ilicic varð elsti leikmaður í sögu Meistaradeildar Evrópu til að skora fjögur mörk í einum og sama leik. Það gerði hann gegn Valencia í mars. MYND/GETTY
efnilegasti leikmaður landsins og
endaði sem markahæsti leikmaður
liðsins. En hann spilaði ekki síðustu
leikina og íhugaði að hætta, sam-
kvæmt ítölskum miðlum. Zlatko
Zahovic, sem var yfirmaður fót-
boltamála hjá Maribor sannfærði
hann þó um að koma til liðsins. Þar
stoppaði hann stutt. Skoraði eins og
vindurinn, meðal annars í Evrópu-
keppninni gegn Palermo, sem stökk
til og keypti piltinn.
Eftir fína frammistöðu var hann
seldur til Fiorentina þar sem hann
varð náinn fyrirliðanum, Davide
Astori. Þegar sá lést skyndilega tók
við mikil sorg hjá Ilicic sem eðli-
lega tók atvikið mjög nærri sér. „Ég
þjáðist í marga daga og svaf sama
sem ekki neitt,“ sagði Ilicic í viðtali
við Corriere dello Sport.
Skömmu eftir dauða vinar síns
fékk hann slæma bakteríusýkingu
og þurfti að leggjast inn á sjúkra-
hús. Þar þorði hann ekki að fara
að sofa, því hann var hræddur um
að vakna ekki aftur. „Þegar ég var
veikur hugsaði ég mikið til Astori
og að þetta gæti komið fyrir mig. Að
sjá ekki fjölskylduna mína aftur. Ég
var hræddur við að loka augunum,“
sagði hann í viðtalinu.
Hann hætti að horfa á fótbolta
og einbeitti sér að heilsunni og
fjölskyldu sinni. „Á einum tíma-
punkti vonaðist ég bara eftir að
ná heilsu. Mér var alveg sama um
fótboltann,“ sagði kappinn. Hann
náði heilsu og átti stórkostlegt
tímabil þar sem öskubuskuævin-
týri Atalanta gladdi heiminn og
kannski sérstaklega íbúa Ber-
gamo, en borgin fór skelfilega út
úr COVID-faraldrinum. Því miður
lítur út fyrir að ævintýrið sé á enda
hjá Ilicic.
Í könnun sem FIFPRO, alþjóð-
legu leikmannasamtökin, létu
gera í apríl kom fram að þunglyndi
hefði lagst á marga fótboltamenn
og -konur. Alls tóku 1602 leikmenn
frá 16 löndum þátt í könnuninni
og 22 prósent í kvennadeildunum
sögðust hafa upplifað þunglyndi
síðan COVID-ástandið kom upp
og 13 prósent karla.
Í svipaðri könnun sem gerð var í
desember voru tölurnar 11 prósent
hjá konunum en sex prósent hjá
körlunum. Í lokaverkefni Margrétar
Láru Viðarsdóttur í íþróttafræði
við Háskólann í Reykjavík árið 2015
kom fram að niðurstöður rann-
sóknar hennar gæfi vísbendingar
um að þunglyndi og kvíði meðal
íslenskra atvinnumanna í bolta-
íþróttum geti verið allt að helmingi
algengara en hjá öðrum.
benediktboas@frettabladid.is