Fréttablaðið - 13.08.2020, Síða 24
Það eina sem ég get
sagt er að ég er upp
með mér að vera talin
sexí.
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Mila fæddist í Chernivtsi í Úkraínu 14. ágúst 1983 og á einn eldri bróður. Þegar
Mila var sjö ára ákváðu foreldrar
hennar að flytja til Los Angeles svo
börnin ættu sér bjartari framtíð
en í gömlu Sovétríkjunum, en sú
ákvörðun kostaði þau góð störf
heima og háskólagráður sem ekki
voru metnar vestanhafs.
Á öðrum degi nýrrar tilveru
í Los Angeles hóf Mila nám við
Rosewood-grunnskólann og
kunni þá einungis móðurmál sitt,
rússnesku. Hún segist hafa grátið
daglega fyrsta skólaárið því hún
skildi hvorki tungumálið, menn-
inguna né fólkið.
Mila var níu ára þegar pabbi
hennar skráði hana í leiklistartíma
hjá Beverly Hills Studios. Þar hitti
hún Susan Curtis sem seinna varð
umboðsmaður hennar. Eftir sína
fyrstu áheyrnarprufu fékk Mila
hlutverk í Barbie-sjónvarpsaug-
lýsingu en fyrsta hlutverk í sjón-
varpsþætti fékk Mila í Days of our
lives árið 1994. Nokkrum mán-
uðum síðan lék hún lítið hlutverk í
Strandvörðum, þá ellefu ára.
Skrökvaði um aldur sinn
Mila varð heimsfræg í hlutverki
Jackie Burkhart í sjónvarpsþátt-
unum vinsælu That ´70s Show,
sem sýndir voru á árunum 1998 til
2006. Í aðdraganda þáttanna var
þess krafist að leikarar sem sæktu
áheyrnarprufur væru orðnir átján
ára en Mila, sem þá var fjórtán ára,
sagðist alveg að verða átján. Þótt
upp hafi komist um skrökið var
Mila talin sú langbesta fyrir hlut-
verkið og hlaut fyrir leik sinn verð-
laun sem besta unga leikkonan í
gamanþáttum árin 1999 og 2000.
Mila léði Meg Griffin einnig rödd
sína í teiknimyndaseríunum
Family Guy.
Fyrsta stóra kvikmyndahlut-
verkinu landaði Mila árið 2008,
þegar hún lék Rachel í rómantísku
gamanmyndinni Forgetting Sarah
Marshall. Hún hlaut svo mikið lof
fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni
Black Swan, meðal annars Mar-
cello Mastroianni-verðlaunin sem
besta unga leikkonan og tilnefn-
ingar til Golden Globe sem besta
leikkonan í aukahlutverki. Meðal
annarra vinsælla mynda Milu
Kunis má nefna Ted á móti Mark
Sovéskir töfrar sigruðu heiminn
Leikkonan Mila Markovna Kunis mælir 37 ár af ævi sinni á morgun. Hún er talin ein af mestu
þokkagyðjum heims enda með útlit sem vekur eftirtekt og einstakan sjarma á skjánum.
Mila orðin 17 ára á verðlaunahátíð-
inni Teen Choice Awards árið 2000.
Ástir tókust með Milu og Ashton
Kucher sem giftu sig sumarið 2015.
Mila með samleikurum sínum í That ´70s Show, þá nýorðin fjórtán ára.
Svona lítur Mila Kunis út í dag, geislandi fögur á Sundance-kvikmyndahátíðinni í Utah fyrr á árinu. MYNDIR/GETTY
Mila var árum saman í ástarsam-
bandi með Makaulay Culkin.
andlit Christian Dior vorið 2013
og sendiherra Gemfields sem
framleiðir lúxusvarning úr eðal-
steinum.
Hún þjáðist af krónískri lit-
himnubólgu árið 2011 sem olli
tímabundinni blindu en með
skurðaðgerð var hægt að komast
fyrir sjúkdóminn. Eftir stendur
að vinstra augað er brúnt og það
hægra grænt.
Leikkonan átti í áralöngu ástar-
sambandi við barnastjörnuna
Macaulay Culkin á árunum 2002
til 2011. Hún byrjaði að hitta sam-
leikara sinn, Aston Kucher úr That
´70s Show árið á eftir en þau gengu
í hjónaband 2015 og eiga saman
tvö börn.
Wahlberg, Friends with benefits
á móti Justin Timberlake, Book of
Eli á móti Denzel Washington og
Bad Moms.
Með grænt og brúnt auga
Sjarmi Milu Kunis er óumdeildur.
Hún hefur í áraraðir vermt lista
yfir fegurstu og kynþokkafyllstu
konur heims, en áður en að því
kom lét hún hafa þetta eftir sér:
„Maður verður að byggja ferilinn á
einhverju öðru en því að vera FHM
Topp 100-stelpan. Útlitið lætur á
sjá einn daginn og hvað stendur þá
eftir?“ Seinna, þegar hvert karla-
tímaritið á fætur öðru setti hana
á lista yfir þokkafyllstu konur
heims, sagði Mila: „Það eina sem ég
get sagt er að ég er upp með mér að
vera talin sexí.“
Stíll Milu er kvenlegur. Hún var
Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618
info@arcticstar.is - www.arcticstar.is
SÆBJÚGNAHYLKI FYRIR HEILSUNA
Arctic star sæbjúgnahylki
innihalda yfir fimmtíu tegundir af
næringarefnum, og eru þekkt fyrir:
• Hátt próteininnihald og lágt fituinnihald
• Að minnka verki í liðum og liðamótum
• Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni
liðskemmda
• Að bæta ónæmiskerfið
• Að auka blóðflæði
• Að koma í veg fyrir æðakölkun
• Að auka orku líkamans, stuðla að
myndun húðpróteins og insúlins
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA, Framleiðandi er
Arctic Star ehf. Allar nánari upplýsingar
fást á www.arcticstar.is
Arctic Star sæbjúgnahylki
Varan fæst í flestum apótekum,
heilsubúðum og hagkaupum.
Nýjar umbúði
r
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R