Fréttablaðið - 13.08.2020, Side 30

Fréttablaðið - 13.08.2020, Side 30
Jóhanna María Einarsdóttir johannamaria@frettabladid.is Námskeið eru frábær leið til þess að rækta nýja hliðar sjálfsins og kanna hvar hæfileikar manns liggja. Til er urmull af frábærum og spennandi námskeiðum í boði hjá hinum ýmsu endurmenntunarstofnun­ um, skólum og einkaaðilum. Og stundum þarf bara eitt lítið skref til þess að koma manni af stað til að skrá sig. Þá kemur veraldarvefurinn til hjálpar. Internetið er stútfullt af stórsniðugu kennsluefni og leiðbeiningum um allt á milli himins og jarðar. Fólk lærir að prjóna, aðrir fara í útsaum eða læra að gera rýjateppi. Enn aðrir læra undirstöðuatriðin í mynd­ vinnsluforriti eða kynna sér undirstöðuatriðin í nuddi og svo mætti lengi telja. En ekki er allt kennsluefni jafn vel unnið, og það er meira en að segja það að finna efni sem bæði kennir manni það sem maður þarf að vita og langar að læra á skiljanlegan máta. Hér eru þrjú dæmi um frítt kennsluefni á netinu sem kemur manni vel af stað og kveikir heldur betur áhugann. Kynntu þér grunninn á netinu Sumir eru orðnir þreyttir á vinnunni og þyrstir í að breyta um starfsframa. Aðrir vilja bæta við sig þekkingu sem tengist núverandi starfi og enn aðrir leita sér að nýju og spennandi áhugamáli. Það geta allir lært að stunda jóga sem vilja og það er vel hægt að kynna sér undir- stöðuatriðin á stofugólfinu heima. Fínasti myndvinnslugrunnur Hefurðu einhvern tíma tekið ótrúlega flotta ljósmynd á mynda­ vélina eða símann en svo kom í ljós um seinan að skugginn af fugl­ inum á myndinni minnir á eitt­ hvað dónalegt? Eða að birtan gerði það að verkum að andlit fólksins á myndinni urðu appelsínugul? Eða að himinninn á landslags­ myndinni verður alveg hvítur ef þú lýsir myndina til að fjöllin líti vel út? Eða langar þig kannski bara til þess að „fótósjoppa“ vængi á labradorhvolpinn þinn? Fjölda kennslumyndbanda er að finna á veraldarvefnum sem kenna þér að laga þessi atriði og fleiri með töfrum myndvinnsluforrita. PiXimperfect rásin á YouTube er dæmi um frítt kennsluefni fyrir þá sem vilja byrja að læra á Phot­ oshop eða Lightroom. Unmesh Dinda, sá sem kennir, hefur afar heillandi og þægilega nærveru og kennir manni skref fyrir skref á einfaldan en skiljanlegan hátt hvernig hægt er að nýta sér töfra myndvinnsluforrita til þess að gera ljósmyndirnar enn betri. Jógaengillinn hún Adriene Langar þig að prófa jóga en ert smeyk/ur um að líkamsgasið losni úr læðingi í vel teygðri hundastell­ ingu? Það er vel hægt að gera jóga­ æfingar heima fyrir til þess að koma sér í smá form og auka teygjanleikann, áður en maður mætir með jógadýnuna í upphit­ aðan salinn með öllu þessu lipra og einkennisklædda jógafólki sem virðist kunna öll jógahugtökin upp á hundrað. Yoga with Adriene er stórskemmtileg YouTube­rás þar sem hin glettna og tilgerðarlausa Adriene kennir þér undirstöðu­ atriðin í jóga á bæði skemmtilegan og krefjandi máta. DIY drottningar Klæjar þig í puttana að breyta og bæta í íbúðinni? Langar þig til þess að gera auðveldar en áhrifamiklar breytingar á gamla útskriftar­ kjólnum hennar mömmu? Kanadísku vinkonurnar Kelsey og Becky kalla sig The Sorry Girls á YouTube. Þar skoða þær það sem er vinsælt hverju sinni í tískunni, á heimilinu og í húsgögnum og gera tilraunir til þess að búa til eða breyta hlutum sem þær eiga eða finna á f lóamörkuðum og í ódýrari verslunum, á hagkvæman og ein­ faldan hátt. INNRITUN fyrir skólaárið 2020-2021 ✆ 552 7366 songskolinn.is songskolinn@songskolinn.is rafraen.reykjavik.is Inntökupróf verða mánudaginn 24. ágúst kl. 14 • Egill Árni Pálsson • Elfa Dröfn Stefánsdóttir • Elín Guðmundsdóttir • Garðar Cortes • Garðar Thór Cortes • Guðmundur St Gunnarsson • Harpa Harðardóttir • Hólmfríður Sigurðardóttir • Hrönn Þráinsdóttir • Íris Erlingsdóttir • Jón Kristinn Cortez • Kristín R Sigurðardóttir • Kristinn Örn Kristinsson • Ólöf Kolbrún Harðardóttir • Sibylle Köll • Sigfríður Björnsdóttir • Signý Sæmundsdóttir • Sigríður Ósk Kristjánsdóttir • Sigurður Helgi Oddsson • Soffía H Bjarnleifsdóttir • Viðar Gunnarsson • Þóra Fríða Sæmunsdóttir 6 KYNNINGARBLAÐ 1 3 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RSKÓLAR OG NÁMSKEIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.