Fréttablaðið - 13.08.2020, Síða 30
Jóhanna María
Einarsdóttir
johannamaria@frettabladid.is
Námskeið eru frábær leið til þess að rækta nýja hliðar sjálfsins og kanna hvar
hæfileikar manns liggja. Til er
urmull af frábærum og spennandi
námskeiðum í boði hjá hinum
ýmsu endurmenntunarstofnun
um, skólum og einkaaðilum. Og
stundum þarf bara eitt lítið skref
til þess að koma manni af stað til
að skrá sig.
Þá kemur veraldarvefurinn til
hjálpar. Internetið er stútfullt
af stórsniðugu kennsluefni og
leiðbeiningum um allt á milli
himins og jarðar. Fólk lærir að
prjóna, aðrir fara í útsaum eða
læra að gera rýjateppi. Enn aðrir
læra undirstöðuatriðin í mynd
vinnsluforriti eða kynna sér
undirstöðuatriðin í nuddi og svo
mætti lengi telja.
En ekki er allt kennsluefni jafn
vel unnið, og það er meira en að
segja það að finna efni sem bæði
kennir manni það sem maður
þarf að vita og langar að læra
á skiljanlegan máta. Hér eru
þrjú dæmi um frítt kennsluefni
á netinu sem kemur manni vel
af stað og kveikir heldur betur
áhugann.
Kynntu þér grunninn á netinu
Sumir eru orðnir þreyttir á vinnunni og þyrstir í að breyta um starfsframa. Aðrir vilja bæta við sig
þekkingu sem tengist núverandi starfi og enn aðrir leita sér að nýju og spennandi áhugamáli.
Það geta allir
lært að stunda
jóga sem vilja
og það er vel
hægt að kynna
sér undir-
stöðuatriðin
á stofugólfinu
heima.
Fínasti myndvinnslugrunnur
Hefurðu einhvern tíma tekið
ótrúlega flotta ljósmynd á mynda
vélina eða símann en svo kom í ljós
um seinan að skugginn af fugl
inum á myndinni minnir á eitt
hvað dónalegt? Eða að birtan gerði
það að verkum að andlit fólksins
á myndinni urðu appelsínugul?
Eða að himinninn á landslags
myndinni verður alveg hvítur ef
þú lýsir myndina til að fjöllin líti
vel út? Eða langar þig kannski bara
til þess að „fótósjoppa“ vængi á
labradorhvolpinn þinn?
Fjölda kennslumyndbanda er að
finna á veraldarvefnum sem kenna
þér að laga þessi atriði og fleiri
með töfrum myndvinnsluforrita.
PiXimperfect rásin á YouTube er
dæmi um frítt kennsluefni fyrir
þá sem vilja byrja að læra á Phot
oshop eða Lightroom. Unmesh
Dinda, sá sem kennir, hefur afar
heillandi og þægilega nærveru
og kennir manni skref fyrir skref
á einfaldan en skiljanlegan hátt
hvernig hægt er að nýta sér töfra
myndvinnsluforrita til þess að
gera ljósmyndirnar enn betri.
Jógaengillinn hún Adriene
Langar þig að prófa jóga en ert
smeyk/ur um að líkamsgasið losni
úr læðingi í vel teygðri hundastell
ingu?
Það er vel hægt að gera jóga
æfingar heima fyrir til þess að
koma sér í smá form og auka
teygjanleikann, áður en maður
mætir með jógadýnuna í upphit
aðan salinn með öllu þessu lipra
og einkennisklædda jógafólki sem
virðist kunna öll jógahugtökin
upp á hundrað. Yoga with Adriene
er stórskemmtileg YouTuberás þar
sem hin glettna og tilgerðarlausa
Adriene kennir þér undirstöðu
atriðin í jóga á bæði skemmtilegan
og krefjandi máta.
DIY drottningar
Klæjar þig í puttana að breyta og
bæta í íbúðinni? Langar þig til þess
að gera auðveldar en áhrifamiklar
breytingar á gamla útskriftar
kjólnum hennar mömmu?
Kanadísku vinkonurnar Kelsey og
Becky kalla sig The Sorry Girls á
YouTube. Þar skoða þær það sem
er vinsælt hverju sinni í tískunni,
á heimilinu og í húsgögnum og
gera tilraunir til þess að búa til eða
breyta hlutum sem þær eiga eða
finna á f lóamörkuðum og í ódýrari
verslunum, á hagkvæman og ein
faldan hátt.
INNRITUN
fyrir skólaárið
2020-2021
✆ 552 7366
songskolinn.is
songskolinn@songskolinn.is
rafraen.reykjavik.is
Inntökupróf verða mánudaginn 24. ágúst kl. 14
• Egill Árni Pálsson • Elfa Dröfn Stefánsdóttir • Elín Guðmundsdóttir • Garðar Cortes • Garðar Thór Cortes
• Guðmundur St Gunnarsson • Harpa Harðardóttir • Hólmfríður Sigurðardóttir • Hrönn Þráinsdóttir
• Íris Erlingsdóttir • Jón Kristinn Cortez • Kristín R Sigurðardóttir • Kristinn Örn Kristinsson
• Ólöf Kolbrún Harðardóttir • Sibylle Köll • Sigfríður Björnsdóttir • Signý Sæmundsdóttir
• Sigríður Ósk Kristjánsdóttir • Sigurður Helgi Oddsson • Soffía H Bjarnleifsdóttir
• Viðar Gunnarsson • Þóra Fríða Sæmunsdóttir
6 KYNNINGARBLAÐ 1 3 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RSKÓLAR OG NÁMSKEIÐ