Fréttablaðið - 13.08.2020, Síða 32

Fréttablaðið - 13.08.2020, Síða 32
Það er metaðsókn að Háskól-anum á Bifröst í haust, skólanum sem þurfti litlu að breyta til að halda áætlun vegna COVID-19 í vor og hefur nú fullkomin tök á veiruástandinu. Vélarnar hafa verið ræstar, kennarar og starfsfólk er komið til vinnu og allt er klárt fyrir móttöku 400 nýnema,“ segir Margrét Jóns- dóttir Njarðvík, rektor Háskólans á Bifröst. Hún segir augljóst að fjarnám hafi fengið mikla viðurkenningu undanfarna mánuði. „Tímarit eins og The Economist segir að í stað misgóðrar stað- kennslu geti nú allir fengið heimsins bestu kennslu á netinu og líka ómetanlegan tíma fyrir kennslu í litlum umræðuhópum, nokkuð sem nemendur kunna best að meta af öllu. Undir því stendur Háskólinn á Bifröst svo sannar- lega og laðar til sín fólk sem kýs sveigjanleika, fólk sem vill geta stundað nám samhliða vinnu og fólk sem vill f lytja út á land, á einn fallegasta stað landsins. Til okkar sækir líka fólk sem vill fara í mast- ersnám og fá fyrirlesturinn heim í stofu og fólk sem vill fara í BS-nám eða drífa sig loksins í aðfaranám að háskólanámi,“ upplýsir Mar- grét sem tók við stöðu rektors við Háskólann á Bifröst þann 1. júní síðastliðinn. Ný skapandi námsbraut Bifröst hefur vandað námsfram- boð fyrir alla og í haust bætast við umræðutímar í öll námskeið. „Mesta aðsóknaraukningin er í mastersnám og þar eru vinsælustu námslínurnar Forysta og stjórnun, Opinber stjórnsýsla og Menning- arstjórnun. Þá er alltaf góð aðsókn í viðskiptafræði og mikil aðsókn í nýja námsbraut í skapandi greinum,“ segir Halldóra Lóa Þor- valdsdóttir kennslustjóri. Hún bætir við að nám á Bifröst hafi einstakan sjarma þar sem nemendur hittist á vinnuhelgum þar sem þeir mynda tengsl og njóta einhverrar fegurstu náttúru Íslands. „Þessi námsumgjörð hentar sérlega vel í nútímanum þar sem margir nemendur blanda saman vinnu og námi. Einnig hefur Bif- röst laðað til sín þá sem vilja prófa að búa úti á landi, þá sem vilja einfalt líf og ódýra leigu. Fjölskyld- urnar á háskólasvæðinu standa saman og styðja við bakið á hver annarri, skiptast á að passa börnin og læra saman. Þeir sem hafa búið Háskólaþorpið á Bifröst er í miðju Grá- brókarhrauni Borgarfjarðar og þaðan er stutt í óbeislaða náttúru allt um kring. Þær Halldóra Lóa Þórhallsdóttir kennslustjóri og Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor Háskólans á Bifröst, hlakka mikið til komandi skólaárs. MYNDIR/JAMES EINAR BECKER/HÁSKÓLINN Á BIFRÖST Nemendur í Háskólanum á Bifröst tengjast órjúfanlegum vináttuböndum. Háskóli í heimsklassa í undurfagurri náttúruparadís Háskólinn á Bifröst skartar einstökum sjarma, heillandi námslínum, líflegu skólaþorpi og metn- aðarfullu skólastarfi sem laðar að fólk úr öllum áttum. Þar er mannlífið blómlegt og nemendur eignast góða vini fyrir lífstíð. Enn er opið fyrir umsóknir en metaðsókn er að skólanum í haust. á Bifröst eiga það svo allir sameig- inlegt að fá glampa í augun þegar tíminn á Bifröst er rifjaður upp,“ segir Halldóra Lóa í undurfögru landslagi Bifrastar í Borgarfirði. Margur spyr sig hvernig sé með vináttu hjá nemendum sem eru í fjarnámi við Háskólann á Bifröst. Myndast góð tengsl? „Heldur betur,“ svarar Margrét rektor, „því nemendur vinna saman í hópavinnu á netinu og hittast utan kennslustunda fyrir utan ógleymanlegar og kröftugar vinnuhelgar. Bifröst gerir kröfur til nemenda sinna og þeir sem vaxa saman tengjast órjúfanlegum vináttuböndum.“ Enn opið fyrir umsóknir Bifröst verður með nýnema- daga sína á netinu vegna heims- faraldursins en tekur jafnframt á móti nýnemum í litlum tuttugu manna hópum þar sem skólinn er kynntur fyrir þeim. „Þá verða allar vinnuhelgar á netinu þar til ástandinu linnir, nokkuð sem við vonum að verði brátt. Vegna ástandsins höfum við enn opið fyrir umsóknir því við vitum að fólk er enn að missa vinnuna og gæti því viljað söðla um og fara í nám,“ segja þær Halldóra Lóa og Margrét, fullar tilhlökkunar fyrir komandi skólaári. Nánari upplýsingar um allt sem viðkemur háskólanámi á Bifröst á bifrost.is. 8 KYNNINGARBLAÐ 1 3 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RSKÓLAR OG NÁMSKEIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.