Fréttablaðið - 13.08.2020, Blaðsíða 56
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Thomasar
Möller
BAKÞANKAR
FERSKT Á FERÐINNI * FRESH TO GO
*FERSKAR NÝJUNGAR*
/ ÞAÐ ER BARA ÞANNIG SEM VIÐ RÚLLUM /
SómaVefjur
Flatbrauð,
kebab kjúklingur,
sósa, tómatar,
kál, laukur.
KJÚKLINGA
*KEBAB*
Flatbrauð,
falafel, tómatar,
jalapeno, rauðlaukur,
klettasalat, tzatziki.
*FALAFEL*
og TZATZIKI
BEST
GRILLAÐ VEGAN
OPIÐ mán.–lau. kl. 11–18
Úrval nýrra og notaðra bóka!
BÓKAMARKAÐUR
ÁRMÚLA 42
STJÖRNU
POPP/OSTAPOPP
90/100 G
249
KR/STK
2490/2767 KR/KG
Fyrir svanga
ferðalanga
Um daginn fékk ég bréf frá Berlín: „Herr Möller, okkur þykir leitt að tilkynna þér
að allt sem við kenndum þér í
háskólanum fyrir 40 árum er úrelt.
Hafir þú ekki stundað símenntun
þá biðjum við þig að endursenda
verkfræðiskírteinið þitt“. Þar sem
ég hef ávallt verið duglegur við að
endurmennta mig fékk ég að halda
skírteininu mínu!
Tom Vanderbilt, blaðamaður og
bloggari, er að gefa út bókina „Byrj-
endur: Ánægjan og breytingarnar
sem símenntun hefur í för með
sér“. Þar fjallar Tom um þá bábilju
að menntun sé bara ætluð ungu
fólki. Hann hvetur til að fólk af li
sér menntunar alla ævi, vera for-
vitinn og prófa nýja hluti langt
fram á efri ár, það auki víðsýni,
lífsgleði og andlega heilsu. Hann
spyr af hverju við hættum f lest að
læra eftir unglingsárin. Höfum við
gleymt ánægjunni sem fylgir því
að byrja frá grunni…vera byrjandi
í einhverju? Er kannski of seint að
kenna gömlum hundi að sitja?
Tom byrjar á einhverju nýju á
hverju ári. Í ár lærir hann að tef la,
syngja, teikna, kasta keilum og
stunda brimbretti. Nýlega tapaði
hann fyrir 8 ára strák í skák.Ég
hef reynt að læra eitthvað nýtt á
hverju ári. Ég var elsti nemandinn í
MBA-2009 í HR, trommunámskeið
gaf mér innsýn í heim rytmans,
gítarnámið byrjar aftur í haust og
mótorhjólaprófið færði mér 4.500
kílómetra ævintýraferð um Mar-
okkó í hitteðfyrra.
Í bókinni segir Tom frá því hvaða
óteljandi kosti það hefur að vera
fullorðinn byrjandi. Hann lýsir
því hvað forvitni á efri árum getur
verið gefandi… og lengir lífið!
Þótt Berlínarbréfið hafi ekki
borist mér í raun eiga skilaboð þess
vel við. Gömul prófskírteini falla
í verði, ekki síst nú þegar tækni og
þekkingu f leygir fram hraðar en
nokkru sinni fyrr. Hvað ætlar þú að
læra nýtt í haust ágæti lesandi?
Verum byrjendur