Fréttablaðið - 15.08.2020, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 15.08.2020, Blaðsíða 2
Veður Sunnan 5-10 í dag með vætu af og til, en þurrt að kalla norðaustan- og austanlands. Hiti 10 til 16 stig, en allt að 22 stig austan til á landinu. SJÁ SÍÐU 30 Flott stökk á Miðbakkanum Það var fjör á Miðbakkanum í Reykjavík um kvöldmatarleytið í gær. Á annan tug barna og ungmenna voru þar stödd til að leika listir sínar á hjólum, hjólabrettum og hlaupahjólum, þar á meðal þetta f lotta og fagmannlega hjólastökk. Flestir voru léttklæddir, enda hlýtt úti og þurrt. Hjóla- brettasvæðið á Miðbakkanum opnaði í júní síðastliðnum og hefur garðurinn vakið mikla lukku á góðviðrisdögum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI MINJAR Segja má að COVID-19 hafi bjargað Hegningarhúsinu, er álit múraranna Olgeirs Gestssonar og Gunnlaugs Ketilssonar frá Aðal- múr sem nú vinna að endurbótum á gamla fangelsinu á Skólavörðustíg. „Húsið míglak og löngu kominn tími á að gera eitthvað,“ segir Olgeir. Af vef Stjórnarráðsins segir hann að megi ráða að verkefnið eigi að auka vinnu á tímum COVID-19. „Það var því lán í óláni að COVID- ið kom því miðað við mína reynslu af ríkinu er ekkert gert fyrr en í óefni er komið,“ útskýrir Olgeir. Þeir Gunnlaugur og Olgeir eru báðir af múraraættum. Langa- langafi Gunnlaugs vann sem snikk- ari við byggingu Alþingishússins á nítjándu öld og langafi hans varð múrari árið 1904. Og afi Olgeirs vann við byggingu Þjóðleikhússins. Nú vinna þeir Gunnlaugur og Olgeir að því að þétta steinhlaðinn sökkulinn undir Hegningarhúsinu með steypu sem síðan verður varin með sérstöku frostþolnu efni. Meðal annarra verka sem múrar- arnir þurfa að vinna er viðgerð á fúgum víða í grjóthleðslu hússins. Vandinn er að finna rétta efnið í fúg- una svo upprunalega útlitið haldist. „Ég gerði blöndu sem arkitektinn var alveg sáttur við,“ segir Olgeir sem í blönduna notaði tvær gerðir af sementi, sand úr byggingavöru- verslun og svo sérvalinn sjávarsand. Olgeir segir áhugavert að takast á við verkefni sem sé ekki hefð- bundið. „Þetta er eitthvað sem er ekki kennt í Iðnskólanum og það er gaman að fá að taka þátt í einhverju sem er algjörlega út úr kassanum,“ útskýrir hann. Hegningarhúsið sem hlaðið er úr íslensku grjóti var tekið í notkun árið 1871. Undir lokin þjónaði bygg- ingin sem móttökufangelsi þar til því var lokað 1. júní 2016. Olgeir hefur kynnt sér sögu hússins. „Það var forvitni mín um fortíðina sem ýtti mér út í það. Ég vildi fá að vita hvernig þeir gerðu þetta í upp- hafi,“ segir Olgeir sem kveður heim- ildir um það því miður ekki vera góðar. „Verklýsing var ekki til – það var bara sagt: reistu hús og þá mættu einhverjir berserkir og reistu hús.“ Ekki liggur fyrir hvaða starfsemi verði í framtíðinni í Hegningarhús- inu. Olgeir segist vilja sjá þar safn eða minnisvarða um liðna tíma og að húsinu verði komið í uppruna- legt horf. „Fólk fengi að ganga um og skoða klefana og dómsalinn uppi. Úti í fangelsisgarðinum væri lítil kaffi- tería þar sem fólk gæti sest niður og kynnt sér betur sögu hússins,“ lýsir Olgeir Gestsson. gar@frettabladid.is Veiran sögð lán í óláni fyrir Hegningarhúsið Múrararnir Olgeir Gestsson og Gunnlaugur Ketilsson takast á við óvenjulegt verkefni við endurbætur á Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg. Þeir segja ekki hafa verið seinna vænna að hefja viðgerðir: þakið sé ónýtt og húsið mígleki. ára Steypa á að þétta sökkulinn á Hegningarhúsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Múrararnir G. Ketilsson og Olgeir Gestsson. FRÉTTABLAÐIÐ/GARÐAR Það var bara sagt; reistu hús og þá mættu einhverjir berserkir og reistu hús. Olgeir Gestsson, múrari hjá Aðalmúr COVID-19 Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferða- þjónustunnar, segir ákvörðun ríkis- stjórnarinnar gríðarlegt áfall fyrir ferðaþjónustuna. Segir hann að áhrifin verði víðtæk og hafi afleið- ingar til lengri tíma. „Þetta mun auka atvinnuleysi því að fólki sem hefði haft vinnu í vetur verður sagt upp núna um mánaða- mótin í stórum stíl,“ segir Jóhannes. „Miðað við samtöl mín í dag og í gær má gera ráð fyrir að tvö til þrjú þús- und manns gætu misst vinnuna.“ Mikillar svartsýni gætir innan ferðaþjónustunnar. Sjá rekstrarað- ilar fram á af bókanir þar sem fáir ferðamenn vilji í sóttkví. – ab Ákvörðunin mikið áfall COVID -19 Frá og með mið viku- deginum 19. ágúst verða allir komu far þegar skimaðir tvisvar við komuna til Ís lands. Fyrri sýna- taka verður á landa mærum, að því búnu ber komu far þegum að fara í sótt kví í fjóra til fimm daga þangað til niður staða er fengin úr seinni sýna töku. Þetta ákvað ríkisstjórnin á fundi sínum í gær. Ákvörðunin byggir á einum möguleikanna sem lagður var til í minnisblaði Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis um aðgerðir á landamærunum, var þetta leiðin sem Þórólfur taldi áhrifaríkasta til sóttvarna. Ákvörðunin var tekin í ljósi þess hvernig COVID-19 faraldurinn hefur þróast hér á landi og á heims- vísu þar sem staðfestum tilfellum fer fjölgandi. Þá sé enn verið að kljást við hóp sýkingu sem upp kom hér á landi án þess að vitað sé hvernig það af brigði veirunnar barst inn í landið. Katrín Jakobs dóttir for sætis ráð- herra sagði á blaðamannafundi í gær að úti lokað væri að lofa því að hægt yrði að losna við veiruna. Nýjasta dæmið um það væri stað- an á Nýja-Sjá landi þar sem smit greindist að nýju þrátt fyrir harðar aðgerðir á landamærum. Allir far þegar á leið til landsins þurfa að borga fyrir fyrri skimun- ina og verður miðað við sama fyrir- komu lag og hefur verið, seinni skimunin verður hins vegar gjald- frjáls. Hefur það komið til skoð- unar af hálfu ríkisstjórnarinnar að hækka skimunargjaldið. – ab Allir sem koma verða skimaðir Forsætisráðherra segir útilokað að lofa að losna megi við veiruna. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmda- stjóri SAF 1 5 . Á G Ú S T 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.