Fréttablaðið - 15.08.2020, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 15.08.2020, Blaðsíða 6
Við leggjum áherslu á að vera til staðar fyrir þá sem upplifa skort og valdaleysi. Sanna Magdalena Mörtudóttir Samkvæmt íslenskri rannsókn minnkaði fæð- ingarþyngd hjá börnum fæddum eftir hrunið. COVID -19 Barry Bogin, banda- rískur prófessor við Loughborough háskólann í Bretlandi, varar við því í tímaritinu American Journal of Human Biology að COVID-19 faraldurinn gæti valdið minni fæðingarþyngd hjá þeim börnum sem mæður ganga nú með. Ekki þá vegna veirunnar sjálfrar heldur streitueinkenna sem hafi þau áhrif að fóstrin nærast verr. Hann rannsakaði þetta í kringum bankahrunið 2008 í samstarfi við spænskan vísindamann, þar sem notuð voru gögn frá Íslandi, Portú- gal, Grikklandi og Japan. „Ríkis- stjórnir og heilbrigðisstarfsfólk verður að tryggja að félagslegur, fjárhagslegur og tilfinningalegur stuðningur verði til staðar, fyrir alla,“ segir í greininni. Einnig að það gæti tekið allt að tvær kynslóðir að meta líffræðilegar afleiðingar far- aldursins á mannkynið. Hér á landi var gerð ítarleg rann- sókn á fæðingarþyngd eftir banka- hrunið. Kom þá í ljós að aukning varð í léttburafæðingum hjá þeim konum sem eignuðust börn frá apríl til júní árið 2009. Hjá konum sem voru á fyrsta þriðjungi meðgöng- unnar þegar hrunið skall á. Rannsóknir eftir árásirnar á Tví- buraturnana 11. september 2001 og ýmsar náttúruhamfarir sem orðið hafa, sýna svipaðar niðurstöður. Meðgöngutíminn er ekki styttri en fóstrin vaxa hægar og eru léttari. Védís Helga Eiríksdóttir, verk- efnisstjóri hjá Embætti landlæknis, sem kom að íslensku rannsókninni á sínum tíma, segir ekki öruggt að það sama gerist nú, en engar upp- lýsingar liggi fyrir á þessari stundu. „Við getum ekki sagt til um hvað gerist nú. Þetta er öðruvísi streitu- valdur,“ segir hún, en einnig er sá munur á COVID-19 og hruninu að hið síðarnefnda skall á með mun styttri fyrirvara. – khg Léttburafæðingum getur fjölgað 1 5 . Á G Ú S T 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð Auglýst eru til umsóknar starfslaun listamanna sem úthlutað verður árið 2021 í samræmi við ákvæði laga nr. 57/2009. Umsóknarfrestur rennur út 1. október 2020. Úthlutað verður úr eftirfarandi sjóðum: launasjóður hönnuða launasjóður myndlistarmanna launasjóður rithöfunda launasjóður sviðslistafólks launasjóður tónlistarflytjenda launasjóður tónskálda Í umsóknum er óskað eftir upplýsingum um feril umsækjenda, listrænt gildi verkefnis og rökstudda tímaáætlun. Einnig skulu fylgja upplýsingar um náms- og starfsferil svo og verðlaun og viðurkenningar. Þessir þættir liggja að jafnaði til grundvallar ákvörðun um úthlutun starfslauna. Nota þarf rafræn skilríki við gerð umsóknar. Umsóknir eru einstaklingsumsóknir. Í vinnuáætlun er hægt að tilgreina samstarf sérstaklega. Eingöngu er tekið við rafrænum fylgigögnum. Hafi umsækjandi hlotið starfslaun áður, verður umsókn aðeins tekin til umfjöllunar ef framvinduskýrslu/lokaskýrslu hefur verið skilað til stjórnar listamannalauna, sbr. 4. gr. laga um listamannalaun nr. 57/2009. Vakin er athygli á því að áfram verður hægt að fella starfslaun sviðslistamanna inn í atvinnuleikhópaumsóknir. Aðgangur að umsókn, eyðublöð fyrir framvinduskýrslu ásamt lögum og reglugerðum um sjóðinn o.fl., er að finna á vefslóðinni www.listamannalaun.is. Nánari upplýsingar veita Ragnhildur Zoëga og Óskar Eggert Óskarsson á skrifstofu Rannís, listamannalaun@rannis.is. Stjórn listamannalauna, ágúst 2020 Umsóknarfrestur 1. október Listamannalaun 2021 Til sölu, Njarðarbraut 20, 260 Njarðvík Tjarnargata 12 ehf. og Reykjanesbær auglýsa til sölu byggingu að Njarðarbraut 20, 260 Njarðvík. Verið er að vinna nýtt deiliskipulag á svæðinu og er byggingin samkvæmt því víkjandi. Óskað er eftir tilboðum í eignina auk hugmynda um nýtingu á svæðinu. Sérstaklega verður horft til samspils áætlana við markmið fyrirhugaðs deiliskipulags. Tilboðum skal skila inn eigi síðar en mánudaginn 7. september 2020. Nánari upplýsingar er hægt að fá í gegnum netfangið fasteignir@reykjanesbaer.is REYKJAVÍK „Ég er nokkuð undrandi á þessum niðurstöðum vegna þess að mín pólitík og pólitík Miðflokks- ins hefur gengið mjög vel. Þannig að ég tel mig og f lokkinn eiga mikið inni,“ segir Vigdís Hauksdóttir, odd- viti Miðf lokksins í borgarstjórn, um niðurstöður könnunar á fylgi f lokka í borginni sem greint var frá í blaðinu í gær. Samkvæmt könnuninni, sem Zenter rannsóknir gerðu fyrir Fréttablaðið, myndu f lokkarnir í meirihluta borgarstjórnar bæta við sig þremur borgarfulltrúum þó að Samfylkingin tapi fylgi. Mið- flokkurinn mælist með tæp fimm prósent en fékk rúm sex prósent í kosningunum. „Við erum svolítið í víglínunni og eigum mikið dulið fylgi hjá hinum þögla kjósanda sem kannski vill ekki gefa sig upp. Við verðum oft fyrir aðkasti vegna skoðana okkar en ég hef náttúrulega beitt mér mjög hart í spillingarmálum í Reykjavík,“ segir Vigdís. Oddvitar Vinstri grænna og Viðreisnar eru öllu ánægðari með niðurstöður könnunarinnar en báðir f lokkarnir bæta við sig fylgi frá kosningum. „Þetta eru auðvitað góðar fréttir fyrir meirihlutann. Maður er þakk- látur fyrir allan þennan stuðning, en ég held líka að borgarbúar séu ánægðir með það sem við erum að gera,“ segir Líf Magneudóttir, odd- viti Vinstri grænna. Það sé mjög ánægjulegt að sjá svo góða niðurstöðu þrátt fyrir þann harða og óvægna áróður sem rek- inn hafi verið gegn meirihlutanum. Borgarbúar sjái í gegnum borgar- fulltrúa sem reyni að slá ryki í augu fólks. „Maður fær bara þessi fjögur ár til að sýna sig og sanna. Ég held að við séum að uppskera svolítið af okkar verkum í þessari könnun. Þessi pólitíski stormur um að hér sé allt á heljarþröm virðist bara vera stormur í vatnsglasi,“ segir Líf. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar, segir að meirihlutinn líti á þessa könnun sem hvatningu til að halda áfram að skipuleggja græna borg. „Það var bara mjög gleðilegt að vakna við sólina og þessar fréttir. Ef þetta væru einhverjar niðurstöður úr kosningum værum við með þrjá fulltrúa, en þetta er svona meira stöðutaka en eitthvað annað.“ Meirihlutinn hafi haft mikið í fanginu á kjörtímabilinu varðandi borgarþróunarmál. „Núna erum við hálfnuð með kjörtímabilið en þetta er mjög sam- heldinn og góður meirihluti. Hann er líka sammála um stóru málin þótt pólitíska litrófið sé augljóslega svolítið breitt,“ segir Þórdís Lóa. Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Sósíalistaflokksins, segist nokkuð ánægð með niðurstöð- urnar en f lokkurinn bætir við sig frá kosningum og er nálægt því að ná inn öðrum borgarfulltrúa. „Við viljum bara halda áfram að styrkja okkur og ná til fólks. Það er okkar markmið og þetta er brýning um að halda áfram. Það er gott að sjá að við erum eini f lokkurinn í minnihlutanum sem bætir við sig samkvæmt könnuninni.“ Hún segist ekki vilja festast inni í Ráðhúsinu í engum samskiptum við borgarbúa. „Við leggjum áherslu á að vera til staðar fyrir þá sem upp- lifa skort og valdaleysi. Við viljum ekki vera svona hefðbundinn flokk- ur sem er erfitt að ná í,“ segir Sanna. Samkvæmt könnuninni myndi Flokkur fólksins missa sinn eina fulltrúa. Kolbrún Baldursdóttir, oddviti flokksins, segist hafa fundið fyrir mikilli jákvæðni frá fólki á kjörtímabilinu. „Kannski í ljósi þess hvernig mín tilfinning og upplifun er, kom þetta mér pínu á óvart. Fyrir mig gengur þetta út á að hlusta á fólkið. Ég hitti mikið af fólki og fæ mikið af póstum frá fólki,“ segir Kolbrún. Hún segist vilja vera miðill frá fólkinu og inn í borgina. „Síðan mun þetta auðvitað bara fara í dóm fólksins. Ef fólki finnst ég ekki hafa verið að vinna vinnuna mína eða ná árangri verð ég bara að taka því.“ sighvatur@frettabladid.is Oddvitar missáttir við niðurstöður könnunar Niðurstöður nýrrar könnunar um fylgi flokka í borgarstjórn sýna töluvert breytta mynd frá síðustu kosningum. Fréttablaðið leitaði viðbragða fimm oddvita vegna niðurstaðna könnunarinnar sem birtar voru í blaðinu í gær. Þrír af fjórum flokkum í meirihluta borgarstjórnar bæta við sig fylgi frá kosningunum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.