Fréttablaðið - 15.08.2020, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 15.08.2020, Blaðsíða 8
Rokið var það mikið að enginn heyrði í okkur. Ellen Glynn Hin virtu norrænu neytendasamtök Kuluttaja (finnsk), Råd & Rön (sænsk) og Tænk (dönsk) hafa gert úttektir á bakstursofnum frá ýmsum framleiðendum. Siemens ofnarnir komu best út og fengu toppeinkunn fyrir almenn gæði sín. Bravó! Af því tilefni bjóðum við nokkra framúrskarandi ofna á tilboðsverði. Gildir til og með 31. ágúst eða á meðan birgðir endast. Bakstursofn BakstursofnBakstursofn HB 578ABS0S, iQ500 HB 672GBS1S, iQ700HR 675GBS1S, iQ700 Orkuflokkur A. Brennslusjálfhreinsun. Átta ofnaðgerðir. Orkuflokkur A+. Brennslusjálfhreinsun. Átta ofnaðgerðir. Kjöthitamælir. Orkuflokkur A+. Með gufu. Brennslusjálfhreinsun. 13 ofnaðgerðir. Fullt verð: 169.900 kr. Fullt verð: 189.900 kr.Fullt verð: 249.900 kr. Tilboðsverð: Tilboðsverð:Tilboðsverð: 129.900 kr. 149.900 kr.189.900 kr. OrkuflokkurOrkuflokkur Bakstursofnarnir hjá Smith & Norland eru sannkallaðir sigurvegarar. Orkuflokkur 1. sæti 2. sæti ÍRLAND Tvær ungar, írskar konur, Sara Feeney og Ellen Glynn, lifðu af að vera týndar á rúmsjó í 15 klukkutíma. Þær höfðu farið af stað á svokölluðum „paddle board“ brettum en misst stjórnina og rekið í burtu. „Þær eru í áfalli og voru heppnar að veðrið var hlýtt,“ segir sjómað- urinn Patrick Oliver sem fann þær á fimmtudag, við sjónvarpsstöðina RTÉ. En þegar hann heyrði tilkynn- ingu um að konurnar væru týndar fór hann strax af stað að leita ásamt Morgan syni sínum, sem er 18 ára. Út frá vindátt og straumum gat hann sigtað út svæðið sem þær reyndust vera á. Konurnar, sem eru 17 og 23 ára frænkur, héldu af stað frá strönd- inni Furbo í Galway-sýslu á vestur- strönd Írlands á miðvikudags- kvöld. Helen Feeney, móðir Söru, var með þeim þegar þær réru út, en þegar þær komu síðan ekki til baka hringdi hún í landhelgisgæsluna. Hófst allsherjarleit klukkan 22 á miðvikudagskvöld með bátum og þyrlum. Fjölmargir sjálf boðaliðar tóku einnig þátt. Hvorug kvennanna var í blaut- búningi, en til allrar lukku voru þær í björgunarvestum. Sara var þaulvön á bretti, en Ellen nær óreynd. En „paddle board“ bretti hafa notið síaukinna vinsælda, meðal annars hér á Íslandi. Í samtali við RTÉ lýsir Ellen því hvernig það tók aðeins nokkrar mínútur fyrir þær að missa stjórn- ina. Þær fuku langt, langt frá landi og vissu ekkert hvar þær voru. Allt í einu var vindurinn orðinn mjög mikill og öldurnar mun hærri. Framan af hafi þær þó haldið rónni og verið fullvissar um að þeim yrði bjargað. Meira að segja skiptust þær á að sofa á brettunum. „Við vissum að við kæmumst ekki sjálfar til baka þannig að við náðum að binda brettin saman. Við reyndum að róa til baka en öldurnar voru svo sterkar að við vorum fastar á sama stað,“ segir Ellen. „Við öskruðum í von um að mamma Söru myndi heyra og kalla fyrr eftir aðstoð. Vindurinn var það sterkur að enginn heyrði í okkur.“ Ellen og Sara sáu ljós báta í myrkrinu og öskruðu á þá. En það var sama sagan, enginn heyrði. Þrumuveður og ofsaregn skall á og þeim varð f ljótt mjög kalt. „Við ákváðum að það væri enginn til- gangur með að missa stjórn á okkur. Við yrðum að vera jákvæðar og þá myndi allt bjargast,“ segir Ellen. Um morguninn hafði þær rekið enn lengra út og ölduhæðin var orðin enn meiri. Þær fóru að nálgast eyjar sem kallast Aran og reyndu að róa þangað án árangurs. Þær fundu hins vegar humargildru sem þær gátu fest við brettin. Þrátt fyrir sjálfsbjargarviðleitnina og hið jákvæða viðhorf, misstu þær stundum trúna á að verið væri að leita að þeim. Það var nálægt eynni Inis Oírr í Aran klasanum sem Oliver feðgar fundu Ellen og Söru. Þeir hjálpuðu þeim um borð og sigldu til eyjar- innar þar sem þyrla sótti þær og fór með á spítala á meginlandinu. Helen sagðist vera að eilífu þakk- lát feðgunum fyrir björgunina og að konurnar væru ekki illa haldnar. kristinnhaukur@frettabladid.is Fastar úti á hafi í 15 klukkutíma Tveimur írskum konum var bjargað nálægt eynni Inis Oírr eftir að hafa hrakist úti á hafi í 15 klukkutíma. Þær höfðu farið út á svokölluðum „paddle“ brettum á miðvikudag en vindurinn feykt þeim lengst á haf út. „Paddle“ bretti hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár. MYND/GETTY REYKJAVÍK Grjóthrúgurnar á Eiðs- granda eru manir, ekki grjóthrúg- ur. Þetta kom fram í svari Þórólfs Jónssonar, deildarstjóra náttúru og garða, við fyrirspurn Sjálfstæðis- f lokksins til skipulags- og sam- gönguráðs. Grjóthrúgurnar hafa frá upphafi valdið íbúum við strandlengjuna töluverðum ama. Í svari Þórólfs segir að hrúgurnar verði lagaðar, þær lækkaðar og lagaðar betur að landinu. „Manirnar eru ekki grjót- hrúgur heldur er þetta uppgröftur úr stígnum og lag af möl yfir. Það var verið að vinna verkið í kappi við veturinn og vannst ekki tími til að huga nægilega vel að frágangi,“ segir í svarinu. „Ákvörðun um mölina var ekki mikið ígrunduð og manirnar höfðu ekki verið hann- aðar heldur unnar beint í landið. Manirnar urðu óþarf lega háar og sérstaklega ein mönin sem er of há og of brött og lokar sýn úr Reka- granda.“ – bb Grjóthrúgurnar verði lagaðar Grjóthrúgurnar hafa valdið ama. 1 5 . Á G Ú S T 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.