Fréttablaðið - 15.08.2020, Blaðsíða 12
Stjórnendur Reykjavíkur-maraþons Íslandsbanka hvetja alla til að taka þátt í áheitasöfnuninni á hlaupa styrkur.is og velja þar sitt góðgerðarfélag,
sína leið og sinn tíma til hlaups.
Þátttakendur þurfa eftir sem áður
að skrá sig til leiks og er það gert á
vefsíðunni mi.is. Hlaupaátakið
hefst í dag, 15. ágúst, og stendur til
25. ágúst. Af því tilefni heyrðum við
í nokkrum vönum hlaupurum um
fyrirætlanir í ár og góð ráð.
Sautján hálfmaraþon
Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannes-
son hefur tekið þátt í Reykjavíkur-
maraþoninu 17 sinnum og þá alltaf
hlaupið hálfmaraþon.
„Ég hef hlaupið hálft Reykja-
víkurmaraþon 17 sinnum, muni
ég rétt. Mér finnst skemmtilegt
að skokka hér úti á Álftanesi og
uppi í Heiðmörk en líka á stöðum
víða um land þar sem ég hef ekki
hlaupið áður. Það fylgir því alltaf
dálítil aukaspenna að fara þannig
ótroðna slóð. Mín ráð til hlaupara
stemma við heilræði margra ann-
arra: Þetta á að vera gaman og má
ekki vera kvöð. Útivistin og hreyf-
ingin er það sem skiptir mestu. Gott
er að setja sér raunhæf markmið og
leggja smám saman harðar að sér.
Ef maður þykist alltaf vita sín tak-
mörk kemst maður aldrei skrefinu
lengra.“
Hleypur fyrir kvennadeildina
Kolbr ú n Björ nsdót t ir, f ra m-
kvæmdastjóri Lífs styrktarfélags
og starfsmaður Ferðafélags Íslands,
ætlar að styrkja kvennadeild Land-
spítalans.
„Líf er styrktarfélag kvennadeild-
ar LSH en félaginu barst beiðni frá
kvennadeild um styrk til kaupa á
legspeglunartækjum.
Mér finnst frábært að breyta
hlaupinu í hlaupaáskorun því
áheitin skipta öll þessi fallegu félög
Hlaupa ein – til góðs
Af óviðráðanlegum ástæðum hefur Reykjavíkurmaraþoni verið aflýst í ár en hlauparar eru þó hvattir til að
reima á sig hlaupaskóna og láta um leið gott af sér leiða eins og fyrri ár. Við heyrðum í nokkrum hlaupurum.
Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson er svo sannarlega vanur hlaupari. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Kolbrún ætlar að hlaupa uppáhalds
hlaupaleiðina sína, Ríkishringinn í
Heiðmörk. MYND/AÐSEND
Arnar Pétursson er hvorki meira né
minna en sjöfaldur Íslandsmeistari
í maraþoni. MYND/AÐSEND
Elín Edda Sigurðardóttir mælir með
hlaupaleiðum á utanvegastígum í
nágrenni Reykjavíkur. MYND/AÐSEND
miklu máli. Sjálf hleyp ég fyrir Líf
styrktarfélag sem í fyrra safnaði
fyrir nýjum vöggum á kvenna-
deildina en þetta árið er draumur-
inn að verða við ósk lækna um
kaup á legspeglunartækjum til að
greina mögulega sjúkdóma í legi
og jafnvel orsakir ófrjósemi,“ segir
Kolbrún sem sjálf ætlar að hlaupa
uppáhaldshlaupaleiðina sína, Ríkis-
hringinn í Heiðmörk.
Ætlaði að slá Íslandsmetið í ár
Hlauparinn Arnar Pétursson hefur
sjö sinnum orðið Íslandsmeistari í
maraþoni.
„Ég hef tekið ellefu sinnum þátt
í Íslandsbankamaraþoninu og sjö
sinnum orðið Íslandsmeistari í
maraþoni. Besti tíminn minn kom
í fyrra þegar ég hljóp maraþonið á
rétt rúmlega 2:23 en markmiðið í ár
var að slá Íslandsmetið í maraþoni.“
Aðspurður segist Arnar ekki viss
um að það teljist til hjátrúar en
hann fái sér helst alltaf avókadó og
bláber fyrir hlaup og varðandi ráð
fyrir aðra hlaupara segir hann gott
að búa sig undir mótlæti í hlaupinu.
„Vertu þá klár með viðbragðsáætl-
un. Eins og þegar það kemur brekka
ætlarðu bara að hugsa um að hreyfa
hendurnar hraðar.“
Hljóp tvö maraþon í fyrra
Elín Edda Sigurðardóttir er vanur
hlaupari en hljóp þó sitt fyrsta
maraþon bara á síðasta ári en bætti
um betur og hljóp sitt annað mara-
þon nokkrum mánuðum síðar.
„Ég mæli með hlaupaleiðum
á utanvegastígum í nágrenni
Reyk jav ík u r. Ein a f mínu m
uppáhaldsleiðum, sem ég fer þó allt
of sjaldan, er á stígunum í kringum
Hvaleyrarvatn.
Ég hljóp mitt fyrsta maraþon
í Hamborg í apríl 2019 á 02:48 og
annað maraþonið í Frankfurt í
október 2019 á 02:44.
Ég var búin að undirbúa mig að
fullu fyrir mitt þriðja maraþon í
apríl 2020 í Vínarborg og taldi mig
geta hlaupið á 02:41, en það varð því
miður ekkert úr því vegna COVID-
19.“
Einföld, fljótleg og ögn framandi lamba- eða
nautaspjót sem smellpassa með jógúrtsósu,
hrísgrjónum, naan brauði eða fersku salati.
Einfalt og bragðgott!
Spjót sem
hitta í mark!
KOF
Lambaspjót
Björk
Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
1 5 . Á G Ú S T 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R12 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN