Fréttablaðið - 15.08.2020, Blaðsíða 30
Kaupárátta getur-
tengst því að ráða
ekki við vanlíðan og
þegar fólk reynir að bæta
upp fyrir sálfræðilegar
þarfir sem eru ekki
uppfylltar. Fólk snýr sér
líka stundum að vörum
til að hugga sig þegar því
finnst það ekki fá stuðn-
ing frá ástvinum.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Aron Páll Gylfason er rekstrarstjóri hjá Mi Iceland. Þangað er ævintýri að koma. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Vöruúrval Mi er nær enda-laust en sem dæmi má nefna farsíma, rafmagnsfarar-
tæki, snjallúr, heimabíó, sjónvörp,
skjávarpa, ryksugur, þvottavélar,
öryggiskerfi og allt þar á milli.
„Mi Electric Scooter-raf-
skúturnar hafa verið gífurlega
vinsælar undanfarið og náð nýjum
hæðum í sumar. Þrátt fyrir vin-
sældir rafskútanna gefa til dæmis
farsímar Mi og ryksuguvélmennin
ekkert eftir, en Mi-merkið hefur
hitt heimsbyggðina í hjartastað
með frábærum og fjölbreyttum
vörum,“ segir Aron Páll Gylfason,
rekstrarstjóri Mi Iceland.
Mi Iceland er með verslun í Síðu-
múla 23 ásamt vinsælli vefverslun
á mii.is.
„Við erum nýbúin að setja
í loftið nýja og uppfærða vef-
verslun, sem er ekki bara f lottari
í útliti heldur er hún orðin mun
notendavænni og bætir upplifun
viðskiptavina. Breytingarnar hafa
farið vel í viðskiptavini okkar sem
njóta þess að skoða vöruúrvalið
og versla beint af netinu,“ upplýsir
Aron Páll.
Það er ævintýri að skoða vöru-
úrvalið hjá Mi Iceland.
„Við erum með landsins mesta
úrval aukahluta fyrir rafskútur
og rafhjól, allt mögulegt fyrir
snjallheimilið, og í dótakass-
anum er hægt að finna ótalmargt
spennandi fyrir daglegt líf, svo
sem róbóta, populele-útgáfu
af hljóðfærinu ukulele, dróna,
myndavélar, snjall- og heilsuúr og
sitthvað fyrir bílinn. Þá er sannar-
lega hægt að stjana við símann
sinn hjá okkur því við erum með
skjávarnir og hulstur í öllum regn-
bogans litum,“ segir Aron Páll og
sjón er sögu ríkari.
Mi Iceland er í Síðumúla 23, gengið
inn baka til. Opið virka daga frá 11
til 17. Sjá nánar á mii.is.
Allt til að stjana við snjalltækin
Mi Iceland er viðurkenndur endursölu- og dreifingaraðili á Íslandi fyrir kínverska snjalltækjaframleið-
andann Xiaomi. Xiaomi, einnig þekkt sem Mi, er einn stærsti raftækjaframleiðandi í heiminum í dag.
4 KYNNINGARBLAÐ 1 5 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RNETVERSLANIR
Faraldurinn og allt sem honum fylgir hefur haft neikvæð áhrif á andlega heilsu margra.
Eitt af því sem fólk nýtir til að láta
sér líða betur er að versla á netinu,
ekki síst þar sem fólk getur ekki
verslað eins og það var vant áður
fyrr.
Það er ekkert að því í réttum
skömmtum, en stundum verður
þetta að vana sem er erfitt að losa
sig við. Í nýrri grein eftir sál-
fræðingana Melissu Nordberg og
Jonathan David frá Macquarie-
háskóla í Sydney, sem birtist á
vefnum The Conversation, er
útskýrt hvenær netverslun er
orðin vandamál og hvað er þá til
ráða.
Að þekkja vandann
Sálfræðingarnir segja að það séu
að minnsta kosti þrjú skilyrði sem
hegðun þarf að uppfylla til að vera
fíkn.
Hún þarf að vera augljóslega
óhófleg miðað við samhengið.
Hún veldur töluverðu álagi eða
erfiðleikum fyrir einstaklinginn
eða mikilvægt fólk í lífi hans. Hún
heldur áfram þrátt fyrir að hún sé
ekki gefandi.
Netverslun gæti verið áráttu-
kennd ef einstaklingur gerir eftir-
farandi:
Eyðir miklum tíma í að versla.
Kaupir meira en þörf er á. Finnst
erfitt að hætta, jafnvel þrátt fyrir
að hafa sjaldan ánægju af því sem
er keypt.
Sambands- og fjárhagsörðugleik-
ar eru líka góðar vísbendingar um
að netverslun sé orðin vandamál.
Sumir geta lent í vandræðum
með netverslun einfaldlega vegna
þess að þeir eyða of miklum tíma
í að skoða netverslanir. Þá er
ástæða til að hugsa sig um og
kannski þarf að bregðast við.
Eðlileg viðbrögð við
óeðlilegum aðstæðum
Nordberg segir að rannsóknir
hennar gefi til kynna að kaup-
árátta geti tengst því að ráða ekki
við vanlíðan og þegar fólk reynir
að bæta upp fyrir sálfræðilegar
þarfir sem eru ekki uppfylltar. Fólk
snýr sér líka stundum að vörum til
að hugga sig þegar því finnst það
ekki fá stuðning frá ástvinum.
Það er því engin furða að þessi
hegðun aukist í heimsfaraldri,
þegar það verða stórvægilegar
breytingar á öllu lífinu, oft til hins
verra, á sama tíma og það hefur
orðið sprenging í netverslun.
Hvað er til ráða?
Það fyrsta sem er gott að skoða
hvað það er sem kemur þessari
hegðun af stað. Er hún tilraun til
að líða betur með sig eða losna
við neikvæðar tilfinningar? Eða
kemur hún fram á einhverjum
ákveðnum tíma dags eða í
ákveðnum aðstæðum? Sefurðu
illa eða borðar óhollt? Það gæti
gert erfiða upplifun- enn erfiðari.
Svo þarf að finna betri leiðir til
að bregðast við undirrót hegðunar-
innar. Það þarf að æfa sig í að bera
kennsl á hvötina til að stunda nei-
kvæða hegðun þegar hún kemur
og venjast þeirri tilfinningu, svo
það sé hægt að bregðast við henni
á uppbyggilegri hátt. Það leiðir til
betri niðurstöðu að geta þolað nei-
kvæðar tilfinningar og brugðist við
þeim á sveigjanlegan máta.
Það er líka gott að dreifa hug-
anum frá neikvæðum tilfinn-
ingum með því að spjalla við vin,
gera eitthvað róandi eins og að
fara í bað eða gönguferð, stunda
líkamsrækt eða sinna áhugamáli.
Þegar búið er að finna aðra hluti
til að gera, er hægt að skipuleggja
dagana sína þannig að fólki líði
eins og það hafi aukna stjórn á
lífinu og hafi minni tíma fyrir
netverslun. Það er gott að fylgjast
með kauphegðun sinni, setja sér
markmið og verðlauna sig þegar
þeim er náð.
Svo er hægt að gera innkaupa-
lista og halda sig við þá, setja sér
tímamörk í netverslunum, eyða
bara ákveðinni upphæð á netinu
og kaupa aldrei hluti á af borgun-
um eða með kreditkorti svo maður
eyði bara peningum sem maður á.
Rannsóknir sýna að þessar
aðferðir geta hjálpað fólki með
kaupáráttu, en ef einhver á í alvar-
legum vandræðum með hana, er
um að gera að hafa samband við
sérfræðing. Það gæti verið góð
byrjun að ræða við heimilislækni.
Hófsöm netverslun veldur vellíðan
Eins og öll önnur hegðun sem getur látið fólki líða vel, getur netverslun orðið áráttukennd og
óheilbrigð. Það er mikilvægt að geta borið kennsl á vandamálið og bregðast við ef þörf er á.
Þó að netversl-
un hafi marga
góða kosti,
getur hún samt
orðið að vanda-
máli fyrir suma.
MYND/GETTY
Mi-merkið hefur
hitt heimsbyggð-
ina í hjartastað með
frábærum vörum.