Fréttablaðið - 15.08.2020, Síða 35
Lögfræðingur
Embætti ríkislögmanns
Starf lögfræðings við embætti ríkislögmanns er laust til
umsóknar. Viðkomandi mun aðallega sinna aðstoð við
lögmenn embættisins samkvæmt lögum nr. 51/1985 um
ríkislögmann. Skilyrði er að umsækjandi hafi fullnaðarpróf
í lögfræði (embættispróf eða grunnmenntun og meistara-
próf). Réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómstólum eru
kostur en ekki skilyrði. Um er að ræða fullt starf.
Launakjör eru miðuð við kjarasamning Félags
háskólamennt aðra starfsmanna stjórnarráðsins.
Umsóknum með upplýsingum um menntun og starfsferil
skal senda á netfangið postur@rlm.is eigi síðar en 31.
ágúst næstkomandi. Miðað er við að ráðið verði í starfið
frá og með 1. október 2020.
Skrifstofa embættisins og ríkislögmaður veitir allar nánari
upplýsingar í síma 545 8490. Öllum umsóknum verður
svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Óskum eftir starfsmanni í hellulagnir og smíðavinnu.
Mikil vinna framundan.
Umsóknir berist á gardasmidi@gardasmidi.is
Við leitum að
öflugum stjórnanda!
FRAMKVÆMDASTJÓRI
Vistor leitar að framkvæmdastjóra í krefjandi og áhugavert starf. Viðkomandi þarf að búa yfir leiðtogahæfileikum, getu
til að hrinda verkefnum í framkvæmd og drifkrafti til að leiða starfsfólk að sameiginlegum markmiðum. Viðkomandi þarf
að vera í samskiptum við birgja og viðskiptavini jafnt hérlendis sem erlendis. Framkvæmdastjóri Vistor vinnur samkvæmt
gildum fyrirtækisins og er öðrum til fyrirmyndar í hreinskiptni, framsækni og áreiðanleika.
Vistor er hluti af sex fyrirtækja samstæðu Veritas Capital ehf og starfar náið með öðrum fyrirtækjum samstæðunnar.
Umsóknarfrestur er til
og með 24. ágúst nk.
Sótt er um starfið í gegnum
ráðningarvef Vistor, www.vistor.is.
Umsóknum skal fylgja starfsferilsskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir
hæfni viðkomandi í starfið.
Nánari upplýsingar veita
Hrund Rudolfsdóttir, forstjóri Veritas,
hrund@veritas.is s. 535-7100 og
Pétur Veigar Pétursson, starfsmannastjóri,
petur@veritas.is s. 535-7100.
Ábyrgð og helstu verkefni Menntun og hæfniEiginleikar
Vistor er leiðandi fyrirtæki á sviði markaðssetningar á lyfjum og dýraheilbrigðisvörum á Íslandi og rekur
sögu sína aftur til ársins 1956.
Hjá Vistor starfa 58 manns. Vistor er samstarfsaðili fjölmargra alþjóðlegra lyfjafyrirtækja og veitir
þeim þjónustu við skráningar, sölu- og markaðsmál, auk þess að hafa milligöngu um innflutnings- og
dreifingarstarfsemi. Með því að leggja áherslu á skilvirka starfsemi og starfsumhverfi sem laðar að hæfa
einstaklinga til starfa gerir Vistor samstarfsaðilum sínum kleift að ná settum markmiðum.
• Leiðtoga- og forystuhæfileikar
• Drifkraftur og úthald
• Metnaður til að ná árangri
• Skipulagshæfileikar
• Framúrskarandi
samskiptahæfileikar og
þjónustulund
• Geta til að hafa yfirsýn og
skipuleggja starfsemi í
annasömu umhverfi
• Ábyrgð á daglegum rekstri og
afkomu fyrirtækisins
• Áætlunargerð og uppgjör
• Samninga- og tilboðsgerð
• Samskipti við birgja og aðra
hagsmunaaðila
• Stuðningur við markaðsstjóra og
aðra lykilstarfsmenn
• Starfar samkvæmt stefnumótun
og framtíðarsýn fyrirtækisins sem
framkvæmdastjóri á þátt í að móta
• Ber ábyrgð á markmiðum og
áætlunum gagnvart stjórn
• Framkvæmdastjóri Vistor er hluti af
framkvæmdastjórn Veritas og kemur
því með beinum hætti að stefnumótun
og framtíðarsýn samstæðunnar
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Menntun á heilbrigðissviði og/eða
framhaldsmenntun er kostur
• Haldbær reynsla af stjórnun og
rekstri nauðsynleg, gjarnan tengt
lyfja- eða heilbrigðismálum
• Reynsla af markaðsstarfi,
heildsölustarfsemi og/eða samstarfi
við erlenda birgja
• Þekking og reynsla af framkvæmd
opinberra útboða og samskiptum við
aðila innan heilbrigðisgeirans
er kostur
• Reynsla og þekking á heilbrigðis-
og/eða lyfjamálum
• Reynsla af alþjóðaviðskiptum og
samningagerð
• Góð tungumálakunnátta og hæfni
til að tjá sig í ræðu og riti
Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Gestur Hjaltason, framkvæmdastjóri gestur@elko.is
Umsóknarfrestur er til og með 23. ágúst
Aðeins er tekið við umsóknum á elko.is/storf
Starfslýsing: Hæfniskröfur:
• Ábyrgð á daglegum rekstri verslunar
• Birgðastýring og kostnaðareftirlit
• Dagleg stjórnun og starfsmannahald
• Samskipti og þjónusta við viðskiptavini
• Ábyrgð á útliti verslunar og framsetningu
• Ábyrgð á að sölu- og þjónustumarkmiðum
• Áætlanagerð og framkvæmd áætlana
• Menntun í viðskiptafræði eða verslunarstjórnun er kostur
• Reynsla af stjórnunarstörfum og mannaforráðum nauðsynleg.
• Leiðtogahæfileikar, frumkvæði og árangursdrifni
• Reynsla af verslunarstörfum er kostur
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt skilningi á rekstri
• Tölvukunnátta til að leysa dagleg verkefni í Outlook, Excel og Navision kostur
• Framúrskarandi samskiptahæfileikar og þjónustulund
ELKO leitast eftir framsæknum og drífandi leiðtoga í starf verslunarstjóra í nýja verslun
ELKO á Akureyri. Verslunarstjóri stýrir hópi sölu- og þjónustufólks með mikla þekkingu á
raftækjum og virkni þeirra. Því þarf metnaðarfullan leiðtoga til að leiða hópinn.
STERKT FYRIRTÆKI Í ÖRUGGUM REKSTRI
verslunarstjóra á akureyri
við leitum að
ATVINNUAUGLÝSINGAR 5 L AU G A R DAG U R 1 5 . ÁG Ú S T 2 0 2 0