Fréttablaðið - 15.08.2020, Síða 36
Löglærðir fulltrúar
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu auglýsir eftir
lögfræðingum til starfa á fagsvið embættisins.
Á fjölskyldusviði sinna lögfræðingar stjórnsýslu-
meðferð erinda til sýslumanns m.a. á grundvelli
barnalaga, hjúskaparlaga, ættleiðingarlaga og lög-
ræðislaga.
Á fullnustu- og skiptasviði sinna lögfræðingar
stjórnsýslumeðferð erinda til sýslumanns m.a. á
grundvelli laga um aðfarargerðir og nauðungarsölur,
erfðalaga og skiptalaga.
Lögfræðingar í þinglýsingum annast afgreiðslu
þinglýsingamála og starfa m.a. skv. þinglýsingar-
lögum og lögum um stimpilgjald.
Helstu verkefni:
• Greining og úrlausn mála, ákvarðanir um
málsmeðferð og eftirfylgni
• Upplýsingagjöf, leiðbeiningar og samskipti
við viðskiptavini (afgreiðsluvakt og símavakt)
• Samskipti við önnur stjórnvöld sem tengjast mál-
um
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Embættis- eða meistarapróf í lögfræði
• Starfsreynsla sem nýtist í starfi er æskileg
• Haldgóð þekking á ákvæðum þeirra laga sem
unnið er með á viðkomandi fagsviði embættisins
og helstu álitaefnum sem reynir á við túlkun þeirra
• Geta til að vinna sjálfstætt að greiningu og úrlausn
lögfræðilegra álitaefna
• Hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að
vinna undir álagi
• Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
• Góð almenn tölvuþekking
• Færni í mæltu og rituðu máli á íslensku og ensku
Nánari upplýsingar um verkefni sýslumanna
má finna á vef sýslumanna: www.syslumenn.is
Sótt er um störfin rafrænt á syslumenn.is/storf
Umsóknarfrestur er til og með 24.08.2020
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Hlíðasmára 1, 201 Kópavogur
s. 458 2000
www.syslumenn.is
STÖRF Í BOÐI
Við hjá Einingaverksmiðjunni óskum eftir
umsóknum um framtíðarstörf hjá fyrirtækinu.
Við leitum að:
Smiðum í mótasmíði
Lagerstarfsfólki
Umsóknir óskast sendar á:
sigrun@ev.is fyrir 28. ágúst.
Einingaverkmiðjan var stofnuð árið 1994. Frá upphafi hefur fyrirtækið framleitt forsteyptar einingar til húsbygginga. Innan fyrir-
tækisins hefur skapast gríðarleg sérþekking og verkkunnátta í áranna rás. Við höfum á að skipa öflugum tækjabúnaði og afar fullkominni
verksmiðju. Frá árinu 2008 höfum við einnig rekið verksmiðju í Færeyjum eftir að hafa flutt forsteyptar einingar þangað í allmörg ár.
Háskóli Íslands leitar að öflugum leiðtoga fyrir Hugvísindasvið sem er eitt af fimm fræða-
sviðum háskólans. Forseti Hugvísindasviðs starfar í umboði rektors. Hann er æðsti yfirmaður
og akademískur leiðtogi fræðasviðsins og stjórnar daglegri starfsemi þess. Með forseta
fræðasviðs starfar öflugt teymi stjórnenda og sérfræðinga.
Ráðið verður í starfið til fimm ára og er áætlað að ráða í starfið frá 1. janúar 2021. Á grundvelli laga nr. 85/2008
um opinbera háskóla og reglur sem háskólaráð hefur sett getur rektor ákveðið að framlengja ráðningu forseta
fræðasviðs til fimm ára í senn. Forseti fræðasviðs er ráðinn af rektor að fenginni umsögn sérstakrar nefndar um
ráðninguna.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 15. september 2020.
Sækja skal um starfið á starfatorg.is. Með umsókn þarf að fylgja greinargerð um framtíðarsýn
umsækjanda og hvernig hann hyggst vinna samkvæmt stefnu Háskóla Íslands 2016-2021.
Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.
Við ráðningu í störf við Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Ragnhildur Ísaksdóttir, sviðsstjóri mannauðssviðs Háskóla Íslands,
netfang ragnhildurisaks@hi.is, sími 525 4355.
Háskóli Íslands er alþjóðlegur rannsóknaháskóli og stærsta kennslu-, rannsókna- og vísindastofnun landsins. Um 1.500 starfsmenn eru í
föstum störfum við skólann og um 2.200 eru lausráðnir. Nemendur við skólann eru um 13.000. Háskóli Íslands starfar á fimm fræðasviðum,
býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli landsins sem býður grunnnám og framhaldsnám í öllum helstu fræðigreinum.
Á Hugvísindasviði starfa á annað hundrað manns að kennslu og rannsóknum.
Vísindafólk sviðsins stundar grunnrannsóknir, hagnýtar rannsóknir og þjónustu-
rannsóknir og lögð er áhersla á fjölbreytta miðlun þekkingar, öflugar
samræður víð íslenskt samfélag og alþjóðlega fræðasamfélagið.
Forseti fræðasviðs ber m.a. ábyrgð á:
• Útfærslu og framkvæmd stefnu Háskóla Íslands
á vettvangi fræðasviðs
• Fjármálum og rekstri fræðasviðs og stofnana
sem undir það heyra
• Gæðum kennslu, rannsókna og þjónustu
• Starfsmannamálum
• Öflugri liðsheild og faglegu samstarfi
• Tengslum við innlenda og erlenda samstarfsaðila
• Stjórnsýslu og stoðþjónustu fræðasviðsins
Umsækjendur skulu hafa:
• Akademískt hæfi sem og þekkingu og reynslu
á háskóla- og/eða rannsóknaumhverfi,
• Leiðtogahæfileika,
• Metnaðarfulla og skýra framtíðarsýn,
• Ríka samskiptahæfni,
• Farsæla reynslu af stjórnun og stefnumótun.
P
ip
a
r\TB
W
A
\ S
ÍA
FORSETI HUGVÍSINDASVIÐS
Erum við
að leita að þér?
6 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 5 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R