Fréttablaðið - 15.08.2020, Síða 37
Leikskólastjóri Seljaborg
Skóla- og frístundasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu leikskólastjóra Seljaborgar lausa til umsóknar.
Seljaborg er þriggja deilda leikskóli með 48 börnum. Leikskólinn stendur við Tungusel í Breiðholti í Reykjavík. Í leikskólanum er
lögð áhersla á læsi í víðum skilningi og er leikskólinn þátttakandi í LÆM læsisverkefni Breiðholts. Við innleiðingu Menntastefnu
Reykjavíkurborgar var lögð aukin áhersla á félagsfærni. Vettvangsferðir skipa stóran sess í starfinu hvort sem er í nær eða fjær
umhverfi. Mikið samstarf er við grunnskóla hverfisins.
Einkunnarorð Seljaborgar og leiðarljós í starfi eru: virðing, jákvæðni, traust og gleði.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og er tilbúinn til að leiða áfram gott og metnaðarfullt leikskólastarf
í Seljaborg.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til kennslu á leikskólastigi og greinargerð um framtíðarsýn umsækjanda á starf í
leikskólanum.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. október 2020. Umsóknarfrestur er til og með 24. ágúst nk.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda
leikskóla.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Elísabet Helga Pálmadóttir í sima 411-1392 og tölvupósti elisabet.h.palmadottir@reykjavik.is
Helstu verkefni og ábyrgð
• Vera faglegur leiðtogi leikskólans og móta framtíðarstefnu
hans innan ramma laga, reglugerða, aðalnámskrár og stefnu
Reykjavíkurborgar.
• Bera ábyrgð á daglegu starfi í leikskólanum.
• Skipuleggja foreldrasamstarf í samvinnu við foreldra og
starfsmenn.
• Hafa yfirumsjón með innra mati á starfi leikskólans og
umbótaáætlunum.
• Hvetja til þróunar og nýbreytni í leikskólastarfi.
• Stýra rekstri leikskólans á grundvelli fjárhagsáætlunar.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum,
vinnutilhögun og starfsþróun.
• Skipuleggja tengsl skólans við ýmsa samstarfsaðila.
Hæfniskröfur
• Leyfisbréf til kennslu á leikskólastigi.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á leikskóla-
stigi.
• Reynsla af stjórnun æskileg.
• Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða.
• þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
• Sjálfstæði og frumkvæði.
Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu
Menntastefnu Reykjavíkur, Látum draumana rætast, þar sem
leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og
fagmennska. Sterk tengsl
í íslensku atvinnulífi
hagvangur.is