Fréttablaðið - 15.08.2020, Síða 40
Aðalskipulag Kópavogs 2019 til 2031+. Vinnslutillaga. Kynningarfundur.
Minnt er á áður auglýstan kynningarfund og vakin athygli á breyttu fyrirkomulagi fundar en
vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verður fundinum streymt á heimasíðu Kópavogsbæjar fimmtu-
dag 20. ágúst nk. kl. 17:00 til 18:30. Boðið er upp á fyrirspurnir eftir kynningar (í streymi).
Tengill á fundinn og nánari upplýsingar verða á heimasíðu bæjarins á fundardegi.
Kynning á vinnslutillögunni stendur enn yfir í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr.
123/2010. Vinnslutillöguna ásamt umhverfisskýrslu og fylgigögnum má nálgast á heimasíðu
bæjarins á; https://www.kopavogur.is/is/ibuar/skipulagsmal/skipulag-i-kynningu og í þjónustu-
veri Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1 frá kl. 8:30 til 16:00 mánudaga til fimmtudaga og á
föstudögum frá 8:30 til 15:00.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér vinnslutillöguna. Athuga-
semdir eða ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulags- og byggingardeildar Umhverfis-
sviðs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl.
15:00 mánudaginn 31. ágúst 2020.
Skipulagsstjóri Kópavogs
Auglýsing um nýtt aðalskipulag
– kynningarfundur
kopavogur.is
Skrifstofumaður
Embætti ríkislögmanns
Skrifstofumaður óskast í 100% starf hjá embætti ríkislög-
manns. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. október 2020
eða eftir nánara samkomulagi.
Embætti ríkislögmanns rekur dómsmál fyrir ríkið og stofn-
anir þess og fer með uppgjör bótakrafna sem beint er að
íslenska ríkinu.
Starfið felst aðallega í almennum skrifstofustörfum og
aðstoð við lögmenn embættisins.
Hæfnikröfur
• Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
• Góðir skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
• Frumkvæði í starfi og geta til að vinna undir álagi
• Góð tölvukunnátta er nauðsynleg, þekking á GoPro
skjalavistunarkerfi æskileg
• Gott vald á íslensku og ensku
• Reynsla af ritarastörfum er æskileg
• Menntun sem nýtist í starfi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem
fjármálaráðherra og Sameyki - stéttarfélag í almanna-
þjónustu hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá og
staðfestar upplýsingar um menntun.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum
og viðtölum við þá umsækjendur sem til álita koma.
Nánari upplýsingar veitir Stefanía Gissurardóttir í síma
545 8490. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2020.
Umsóknir skal senda á netfangið postur@rlm.is
Menningar-, íþrótta-
og tómstundafulltrúi
Blönduósbær auglýsir laust til umsóknar starf Menningar-,
íþrótta- og tómstundafulltrúa. Um nýtt starf er ræða með
starfshlutfalli 80 – 100%. Tilgangur starfsins er að hafa
faglega umsjón með öllu menningar-, íþrótta- og tóm-
stundastarfi Blönduósbæjar í góðu samstarfi við hlutað-
eigandi aðila. Hér er fjölbreytt og skemmtilegt tækifæri
fyrir skapandi og skipulagðan einstakling til að móta nýtt
starf í vaxandi samfélagi. Næsti yfirmaður fulltrúans er
sveitarstjóri.
Markmið og verkefni:
• Verkefnavinna og stefnumótun fyrir menningar-
íþrótta- og tómstundamál.
• Vinna náið með menningar- íþrótta- og tómstundanefnd
sveitarfélagsins.
• Umsjón og þróunarvinna með starfsemi félagsmið-
stöðvarinnar Skjólsins.
• Er tengiliður sveitarfélagsins við félagasamtök sem
eru með skipulagða íþrótta- og tómstundastarfsemi í
sveitarfélaginu, á grundvelli samninga.
• Vinnur í nánu samstarfi við stjórnendur grunnskóla og
íþróttamiðstöðvar.
• Er tengiliður og umsjónarmaður með verkefninu
Heilsueflandi samfélag.
• Verkefnastjórn við hátíðahöld og aðra viðburði á vegum
sveitarfélagsins.
• Önnur verkefni á þessu sviði sem viðkomandi er falið af
sveitarstjóra.
vHæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði tómstunda- og félagsmálafræði,
eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
• Góðir forystu-, skipulags- og samskiptahæfileikar.
• Reynsla og þekking af íþrótta- og tómstundastarfi.
• Mikill áhugi á velferð íbúa og hæfni til að eiga samskipti
við alla aldurshópa.
• Frumkvæði, jákvætt hugarfar og hugmyndaauðgi.
Launakjör erum samkvæmt kjarasamningum Sambands
íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Hreint sakavottorð er skilyrði fyrir ráðningu. Umsækjendur
af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir Valdimar O Hermannsson,
sveitarstjóri, valdimar@blonduos.is
Starfið er laust samkvæmt nánara samkomulagi.
Umsóknum skal skilað á netfangið, blonduos@blonduos.is
Umsóknarfrestur er til 20. ágúst 2020.
hagvangur.is
Sterk tengsl
í íslensku
atvinnulífi