Fréttablaðið - 20.08.2020, Síða 2
Vísitala leiguverðs á
höfuðborgarsvæðinu var 0,5
prósentum hærri í júlí en í
fyrri mánuði.
Veður
Gengur í norðaustan 5-13 í dag, en
hvassari með suðausturströndinni
síðdegis. Skýjað og lítils háttar
væta norðaustan- og austanlands,
en léttir til um landið sunnan- og
vestanvert. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast
sunnan heiða. SJÁ SÍÐU 20
Sóttvarnaherbergin undirbúin
Tímapantanir á opticalstudio.is
og í síma 511 5800
SMÁRALIND • HAFNARTORG • KEFLAVÍK
Sjónmælingar
eru okkar fag
DANMÖRK Þetta er búinn að vera
mikill og langur tilfinningarússíb-
ani,“ segir Friðrik Weishappel sem
í gær opnaði loks aftur Laundro-
mat-stað við Århusgade eftir mikla
vinnu undanfarna mánuði.
Um árabil rak Friðrik þrjá
Laundromat-staði í Kaupmanna-
höfn. Rekstur þeirra krafðist mik-
illar viðveru og því ákvað hann
á síðasta ári að selja stað sem var
staðsettur í Fred riksberg. „Ég fékk
hagstætt verð og gat greitt niður
allar skuldir þannig að ég sá fram
á bjarta tíma með tvo staði í rekstri
og meiri tíma fyrir fjölskylduna,“
segir Friðrik.
Skömmu síðar reið þó ógæfan
yfir þegar kviknaði í staðnum í
Århusgade. Talið er að kviknað hafi
í út frá heitum þvotti. „Staðurinn
bráðnaði eiginlega bara og mikil
mildi að ekki fór verr enda eru tíu
íbúðir í húsinu,“ segir Friðrik.
Hann var vel tryggður og því var
tjónið ekki fjárhagslegt en höggið
var fyrst og fremst tilfinningalegt.
„Ég byggði þennan stað upp sjálfur
og lagði sál mína í hann. Það var því
mikið áfall að sjá eyðilegginguna.
Ég sökk eiginlega í þunglyndi í
rúman mánuð. En svo ákvað ég að
rífa mig upp á hárinu aftur eins og
Münchhausen forðum,“ segir Frið-
rik.
En ferlið hefur verið þungt. „Hús-
félagið sá um að endurbyggja rýmið
og það tók dágóðan tíma.“
Hann segir að samt hafi í raun
verið lán í óláni að vera nauð-
beygður til þess að fara í slíkar
framkvæmdir á með kóróna veiru-
faraldurinn reið yfir. „Á meðan
lokanirnar hérna úti stóðu yfir
ákvað ég að endurbæta eldhúsið á
hinum staðnum mínum við Elme-
gade. Ég var varla búinn að líma síð-
ustu f lísina þegar ég fékk þennan
stað af hentan að nýju. Þannig að
ég f lutti bara verkfærin yfir og hef
verið hérna í tólf til fjórtán tíma á
dag síðustu mánuði.“
Hann segir að það skemmti-
legasta í ferlinu haf i verið að
finna hlýhug nágranna og vina.
„Nágrannarnir eru búnir að bíða
eftir enduropnuninni og það er
yndislegt að finna að við skiptum
máli í hverfinu,“ segir Friðrik.
Á dögunum hafi hann verið við
vinnu á staðnum þegar sex eða sjö
ára gutti var skyndilega kominn
inn og virti fyrir sér breytingarnar.
„Hann var á leiðinni í skólann. Í
Ronaldo-treyju og með alltof stóra
skólatösku. Svo svipaðist hann um
og sagðist eiga héðan margar minn-
ingar. Ég sagði honum að það væri
gaman að heyra og þá bætti hann
við að hann hefði nefnilega verið
mikið á þessum stað þegar hann
var ungur,“ segir Friðrik og skelli-
hlær. bjornth@frettabladid.is
Tilfinningalegt högg
að sjá staðinn bráðna
Friðrik Weisshappel opnaði í gær Laundromat-stað við Århusgade eftir mikla
enduruppbyggingu í kjölfar eldsvoða. Segist hafa sokkið í þunglyndi eftir
áfallið en svo ákveðið að rífa sig upp á hárinu eins og Münchhausen forðum.
Ég byggði þennan
stað upp sjálfur og
lagði sál mína í
hann.
Friðrik
Weisshappel
Herbergisþerna undirbýr sóttvarnaherbergi á Radisson Sas Blu 1919 hótelinu í miðbæ Reykjavíkur, fyrir komu ferðamanna sem þurfa að dvelja
í fimm daga sóttkví vegna COVID-19. Nýjar reglur um skimun ferðamanna við landamæri tóku gildi á miðnætti í gær og hafa nú allir þeir sem
hingað koma val um að fara í tveggja vikna sóttkví við komu, eða tvær skimanir með fimm daga sóttkví á milli sýnatakna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
HÚSNÆÐISMÁL Dýrast er að leigja
stúdíóíbúð á svæðinu á milli
Kringlumýrarbrautar og Reykja-
nesbrautar í Reykjavík, samkvæmt
tölum frá Þjóðskrá Íslands. En
vísitala leiguverðs á höfuðborgar-
svæðinu var 0,5 prósentum hærri
í júlí á þessu ári en í fyrri mánuði.
Síðastliðna þrjá mánuði hækkaði
vísitalan um 0,4 prósent og síðast-
liðna tólf mánuði hækkaði hún um
rúm tvö prósent.
Meðalleiguverð á hvern fermetra
fyrir stúdíóíbúð á fyrrnefndu svæði
var í júlí 4.606 krónur. Þriggja her-
bergja íbúðir voru að meðaltali
dýrastar í leigu á svæðinu vestan
Kringlumýrarbrautar og á Sel-
tjarnarnesi þar sem meðalverð fyrir
fermetrann var 2.795 krónur eða
rúmum hundrað krónum lægra en
í mánuðinum á undan.
Stærstu íbúðirnar til leigu á höf-
uðborgarsvæðinu voru í júlí dýrast-
ar á svæðinu milli Kringlumýrar- og
Reykjanesbrautar á 2.401 krónu fer-
metrinn. Íbúð af þeirri stærð leigist
á 944 krónur fermetrinn á Vest-
fjörðum. – bdj
Leiga lækkar
í borginni
Síðastliðna 12 mánuði hækkaði
vísitala leiguverðs um 2,2 prósent.
COVID-19 „Hertar sóttvarnareglur
við landamærin eru rothögg,“ segir
Þráinn Lárusson sem rekur meðal
annars Hótel Hallormsstað, en því
verður lokað strax í næstu viku
vegna nýrra reglna um skimun við
landamærin.
Í þættinum 21 á Hringbraut í gær
sagði hann ákvörðun stjórnvalda
hafa komið á óvart. „Ég verð að
viðurkenna það, maður var búinn
að finna eitthvað í loftinu en hélt að
það yrði frekar bara aukin skimun
en ekki farið fram á þessa sóttkví,“
segir Þráinn.
Gestir sem komu á hótelið í
byrjun viku verða um helgina og
fram yfir hana en svo verður skellt
í lás. „Eftir það er þetta bara dautt,“
segir Þráinn og bætir við að af bók-
anir nemi hundruðum herbergja.
Síðastliðna daga hefur hann tekið
við um 150 af bókunum, rúmlega
90 herbergi eru á hótelinu. Þráinn
segir að nú gildi að reyna að lifa af
tekjulaust haust og vetur. – lb
Segir sóttkvína
vera rothöggið
Laundromat Café við Århusgade hefur verið opnað á ný. MYND/AÐSEND
2 0 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð