Fréttablaðið - 20.08.2020, Side 16
ÓLYMPÍULE IK AR Raddir þeirra
stjórnmálamanna sem vilja snið-
ganga Vetrarólympíuleikana í
Peking árið 2022, bæði í Banda-
ríkjunum og Bretlandi verða sífellt
háværari. Er þá einkum borið við
mannréttindabrotum Kínverja
á Úígúr-múslimum í vesturhluta
landsins, sem koma æ betur upp á
yfirborðið.
Samk væmt heimildum dag-
blaðsins The Sun, frá háttsettum
ráðherra í ríkisstjórn Boris Johnson,
er sniðganga nú rædd á meðal ráð-
herranna. Samtalið er þó ekki á þá
leið að Bretar sendi ekki íþrótta-
fólk á mótið, heldur að opinberir
fulltrúar, stjórnmálamenn og fólk
úr konungsfjölskyldunni sniðgangi
leikana. „Við þurfum að taka nokk-
ur vandræðaleg samtöl um þetta,“
sagði ráðherrann, en að ekkert væri
ákveðið á þessari stundu.
Meðferð Kínverja á Úígúrum er
ekki eina ástæðan. Bretar hafa stað-
ið þétt við hlið Bandaríkjamanna í
viðskiptastríðinu við Kínverja og
meðal annars bannað Huawei-net-
beina. Deilur um upptök og ábyrgð
á COVID-19 faraldrinum og fram-
koma Kínverja gagnvart íbúum
Hong Kong spila einnig rullu.
Ian Duncan Smith, fyrrverandi
formaður Íhaldsflokksins og einn
af dyggustu stuðningsmönnum
Johnsons, er enn harðari í afstöð-
unni til Ólympíuleikanna. „Kína er
árásargjarnt og óumburðarlynt ein-
ræðisríki. Ég get ekki séð að nokkur
breskur ríkisborgari með nokkra
sjálfsvirðingu geti farið þangað til
að styðja við þessa ógnarstjórn,“
segir hann. Hefur hann hvatt
ríkisstjórnina til þess að þrýsta á
Alþjóðaólympíunefndina um að
breyta vettvangi leikanna. Vísaði
hann meðal annars til brota á sam-
komulagi Breta og Kínverja um
afhendingu Hong Kong árið 1997.
Í Bandaríkjunum hefur þing-
maðurinn Rick Scott barist harðast
fyrir því að Vetrarólympíuleik-
arnir verði færðir, eða sniðgengnir
af Bandaríkjamönnum. Hann situr í
öldungadeildinni fyrir Repúblikana
í Flórída og hefur lengi verið einn af
dyggustu stuðningsmönnum for-
setans Donalds Trump.
„Peking er að fremja þjóðarmorð
á Úígúrum vegna trúar þeirra og
brýtur mannréttindi á íbúum Hong
Kong. Heimurinn verður að standa
sameinaður gegn þessu hrylli-
lega óréttlæti. Þetta snýst ekki um
stjórnmál eða sniðgöngu. Þetta
snýst um mannréttindi,“ sagði Scott
í lok júlí.
Engar ákvarðanir um að snið-
ganga leikana hafa verið teknar
í Bandaríkjunum en raddir sem
mæla með því verða háværari. Einn-
ig í Kanada, sem er ein af sigursæl-
ustu þjóðum leikanna frá upphafi.
Í ávarpi í júlí varaði Thomas
Bach, forseti Alþjóðaólympíu-
nefndarinnar, við sniðgöngu og
sagði hana engu skila heldur aðeins
skaða íþróttirnar. „Í hugum sumra
eru draugar fortíðar að sýna sitt
ljóta fés á ný. Sniðganga og mis-
munun vegna stjórnmála heima
fyrir eða þjóðernis er orðin raun-
veruleg hætta á ný,“ sagði Bach.
Vísaði hann meðal annars til þess
að 40 ár væru frá sniðgöngunni á
Sumarólympíuleikunum í Moskvu,
sem hefði engu skilað. Þeir sem töl-
uðu fyrir sniðgöngu nú væru stað-
ráðnir í að læra ekkert af sögunni.
„Sniðganga gengur gegn Ólympíu-
andanum.“
kristinnhaukur@frettabladid.is
Tala fyrir sniðgöngu
Vetrarólympíuleika
Sífellt fleiri stjórnmálamenn vilja sniðganga Vetrarólympíuleikana í Peking.
Helstu ástæðurnar eru nefndar meðferð Kínverja á Úígúr-múslimum og
íbúum Hong Kong. Forseti Ólympíusambandsins segir sniðgöngu engu skila.
Ákvörðun um að halda Vetrarólympíuleikana í Kína er langt frá því að vera óumdeild. MYND/GETTY
Ég get ekki séð að
nokkur breskur
ríkisborgari með nokkra
sjálfsvirðingu geti farið
þangað til að styðja við
þessa ógnarstjórn.
Ian Duncan Smith fyrrverandi ráð-
herra og formaður Íhaldsflokksins
FÓTBOLTI Brasilíumaðurinn Neym-
ar gæti átt von á því að lenda í banni
í úrslitaleik meistaradeildarinnar
fyrir að hafa skipst á treyjum eftir
leik Paris St. Germain og RB Leip-
zig í undanúrslitum. Treyjubýtti
eru áralöng hefð í stórleikjum, en
evrópska knattspyrnusambandið
UEFA mælir nú gegn því að leik-
menn stundi þetta í ljósi COVID-19
heimsfaraldursins. Ítarlegar leið-
beiningar voru gefnar út eftir að
boltinn fór að rúlla aftur í sumar.
Parísarliðið valtaði yfir Þjóðverj-
ana 3-0 í leiknum og átti Neymar
meðal annars stoðsendingu til
Angel Di Maria, skömmu áður en
f lautað var til hálf leiks, og átti
einnig tvö skot sem hittu tréverkið.
Þegar lokaflautan gall skipti hann á
treyju við varnarmanninn Marcel
Halstenberg.
Í leiðbeiningunum er engin
ákveðin refsing tilgreind fyrir
treyjuskipti. En með brot á leiðbein-
ingunum skuli fara í samræmi við
almennar agareglur sambandsins.
Leikbönn og sektir eru algengustu
refsingarnar.
Úrslitaleikurinn fer fram á
sunnudag og óttast nú aðdáendur
Parísarliðsins að stórstjarnan geti
ekki tekið þátt í þessum stærsta leik
í sögu félagsins. Ekki endilega vegna
leikbanns, en UEFA gæti einnig
ákveðið að Neymar skuli fara í 14
daga sóttkví vegna atviksins. – khg
Neymar mögulega settur
í bann fyrir treyjuskipti
Neymar með treyju Halstenberg í
hendi eftir undanúrslitin. MYND/EPA
Eitt verð fyrir ótakmarkað net heima, í farsímann,
snjalltækin og úrið fyrir alla á heimilinu.
Farsíminn
fylgir og
þú sparar!
Vertu með AlltSaman hjá Nova!
Nova.is/AlltSaman
Prófaðufrítt ímánuð
2 0 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT