Fréttablaðið - 20.08.2020, Side 36
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar
Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason
hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Óli Hrafn Jónasson skapar tónlist undir l ist a ma nnsna f ninu Holy Hrafn. Á morgun kemur út platan Pandaríkin,
sem er hans önnur sólóplata. Óli
Hrafn er uppalinn í Hafnarfirði og
lærði á píanó og klassískan gítar.
„Ég byrjaði sem hljómborðs
leikari í bílskúrsbandinu Husband
sem starfaði í áratug. Þegar sveitin
hætti, þá ákváðum við tveir úr
bandinu að verða áfram eftir í hús
næðinu og gera eitthvað öðruvísi.
Ég var alltaf að semja texta og gera
takta og fór að koma fram reglulega
ásamt Brynjari Erni Björgvinssyni,
sem var á gítarnum. Við spiluðum
frumsamið efni sem við grúvuðum
á í þrjá tíma í stað trúbadora. Við
fórum síðar að spila reglulega með
helling af krökkum úr rappsenunni
og það var miklu skemmtilegra,“
segir Óli Hrafn.
Það var um það leyti sem Holy
Hrafn fæddist og Óli fór að rappa
reglulega.
„Ég gaf út plötuna Þrettán stafir
árið 2018. Hún var nokkurs konar
„weirdcore hip hop“, ef lýsa mætti
henni einhvern veginn. Ég geri það
sem ég fíla, það sem mér finnst
fyndið eða heimskulega sjarmer
andi. Pandaríkin eru gott dæmi um
hversu víðtæk þau hugtök eru fyrir
mér,“ segir hann.
Sjálfbær listamaður
Óli er líka myndlistarmaður og
leitast við að vera sjálf bær í sköpun
sinni.
„Ég geri til dæmist list aftan á
frosna pítsukassa eða á heimagerð
an endurunninn pappír eða annað
frá Góða hirðinum. Geisladiskur af
Pandaríkjunum kemur til dæmis í
heimagerðum endurunnum papp
ír,“ segir Óli.
En hvaðan kemur nafnið á plöt-
unni?
„Pandaríkin er bara staður sem er
ekki til. Án pandamæra og panda
mála. Pandaríkin er orðaleikur
sem mér fannst skrítið að væri ekki
í deiglunni, svo ég ákvað að hýsa
næstu plötu í þeim pakka eftir að
ég teiknaði myndina. Hugmyndin
varð til þegar ég var að skipuleggja
lagavalið og var farinn að taka
uppáhaldsverkefnin til hliðar á
aðra „skemmtilegri“ plötu. Ég var
mikið að gera lög sem mér fannst
vera hægt að lýsa sem „blæjubíla
tónlist“ og rambaði á þá ákvörðun
að hún ætti að heita Pandaríkin,“
segir hann.
Um leið og nafnið var komið fóru
hjólin að snúast og skapaði Óli plöt
una frá febrúar fram í maí.
„Pandaríkin er plata sem á að
taka þig í skemmtilegt ferðalag
milli húsasunda og náttúruundra
Pandaríkjanna. Hugmyndin er sú
að þetta sé tónlist til að rúnta við,
til að hlusta á í strætó eða þegar
maður hangir úti á svölum. Algjör
sumarstemning. Fjölbreytni laga
stíla táknar raddir mismunandi
Pandaríkjaþegna,“ segir hann.
Óli Hrafn fer um víðan völl á
plötunni.
„Ég er orðaleikjamaður og mik
ill sögumaður og fjalla um allt
frá þriðjudagskvöldi, þunglyndi,
stækkandi bils milli kynslóða.
Svona svo eitthvað sé nefnt. Lögin
Hönnun gegn þunglyndi og Ana
krónískt kóla eru í uppáhaldi því
þau eru svo hress, ég ímyndaði mér
að Talking Heads og Stuðmenn
hefðu alið mig upp fyrir innblástur
inn sem hljómar í þeim,“ segir hann.
Góðir gestir
Gestir plötunnar eru Vigdís Vala
Valgeirsdóttir, HP Ljóðkraft, 7berg,
Lilli Elli Grill, Drengurinn Fengur
inn, Brisk og Stelpurófan.
„Enginn af þeim ratar úr Panda
ríkjunum,“ segir Óli glettinn.
Með hverri plötu fylgir bolur
hannaður af Óla Hrafni.
„Hugmyndin kom frá því að fólk
geti fengið eitthvað áþreifanlegt
með plötunni. Ég vildi hafa þá lit
ríka til að fara á skjön við panda
birni því það er ekkert svart og
hvítt, nema svart og hvítt.“
COVID hafði ekki mikil áhrif á
gerð plötunnar, að sögn Óla.
„Líf mitt var nú þegar í búbblu og
á þessum hraða frá febrúar 2019,
eftir þó nokkra skelli það árið. Í
kringum desember 2019 var ég svo
kominn á betri stað til að skapa tón
list og myndlist og gerði fátt annað.
Ég byrjaði að leigja stúdíópláss í
miðbænum í júní og hef síðan þá
getað gert myndlist í rými sérstak
lega ætluðu til þess.
Annars fíla ég þessa tíma, ég þarf
ekki að snerta fólk sem ég vildi
hvort eð er ekki koma við. Per
sónulegt rými manns er virt og það
er minna um skvaldur, angur og
heimskuleg djömm. En viðhorf er
huglægt og tíminn sem við lifum
á mun hvort eð er alltaf skilgreina
okkur,“ segir Óli Hrafn.
Hægt verður að nálgast Panda
ríkin á öllum helstu streymisveitum
frá og með morgundeginum.
steingerdur@frettabladid.is
Viðhorf er huglægt
Á morgun kemur út platan Pandaríkin með tónlistarmanninum
Óla Hrafni sem er þekktur undir listamannsnafninu Holy Hrafn.
Óli Hrafn með grímu gerða af vinkonu hans, Þorbjörgu Maríu Sveinbjörnsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
ANNARS FÍLA ÉG
ÞESSA TÍMA, ÉG ÞARF
EKKI AÐ SNERTA FÓLK SEM ÉG
VILDI ÞAÐ HVORT EÐ ER EKKI
KOMA VIÐ.
2 0 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R28 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð