Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2020, Blaðsíða 18
Kalt var í veðri á Þingvöllum aðfaranótt 10. júlí 1970 – fyrir hálfri
öld – norðan hávaðarok,
slyddubylur og grátt niður í
fjallsrætur. Um klukkan hálf
tvö eftir miðnætti urðu holl
enskir ferðamenn varir við
eld í Konungsbústaðnum sem
var hvíldarhús forsætisráð
herra og staðsett rétt sunnan
við Valhöll. Þegar þeir komu
þar að logaði eldur úr stofu
glugga í suðausturhorni húss
ins og greinilega var mikill
eldur inni í húsinu. Skömmu
síðar varð sprenging og þakið
lyftist um nokkra metra.
Harmafregn
Talsverður vindur var af
norðri og húsið varð alelda á
svipstundu. Þá var ekki vitað
hvort nokkur væri inni í bú
staðnum en haft var samband
við Harald Guðmundsson, bíl
stjóra forsætisráðherra, sem
gat upplýst að hann hefði ekið
með forsætisráðherra, Bjarna
Benediktsson, konu hans Sig
ríði Björnsdóttur og dótturson
þeirra Benedikt Vilmundarson
austur að Þingvöllum daginn
áður en þau hugðust dveljast í
Konungsbústaðnum um nótt
ina. Þau létust öll þrjú í brun
anum.
„Nú höfðu mér verið sögð
válegustu tíðindi ævi minnar,“
mælti Jóhann Hafstein þegar
honum var borin hin sviplega
harmafregn sem að framan
greinir, en Jóhann tók við
forsætisráðherraembættinu
þennan sama dag.
Glæsilegur ferill
Bjarni Benediktsson var einn
mesti leiðtogi Íslendinga á
20. öld og ferill hans óvenju
glæsilegur, hvort heldur á
sviði stjórnmála eða fræði
mennsku. Hann var fæddur
í Reykjavík 1908 og hélt utan
til náms í stjórnlagafræði að
loknu lagaprófi með hæstu
einkunn sem þá hafði þekkst.
Hann varð prófessor við Há
skólann aðeins 24 ára að aldri
og gegndi því starfi uns hann
varð borgarstjóri í Reykjavík
1940.
Ein besta heimild um Bjarna
sem mann og þjóðarleiðtoga
er ræða sú sem hann flutti
á Þingvöllum 1943 og nefnd
hefur verið Lýðveldi á Íslandi.
Þá hafði verið hart deilt um
uppsögn sambandslagasamn
ingsins og lýðveldisstofnun og
ýmsir vildu bíða til styrjaldar
loka. Bjarni hafnaði því með
öllu og flutti rækilega rök
fyrir stofnun lýðveldis ekki
seinna en 17. júní 1944. Í niður
lagi ræðunnar sagði hann: „En
víst er það, að sá, sem ekki
viðurkennir sinn eigin rétt,
fær ekki heldur viðurkenningu
annarra.“
Mótun utanríkisstefnu
Ákvörðun um inngöngu Ís
lands í NorðurAtlantshafs
bandalagið var tekin með at
kvæðagreiðslu á Alþingi 30.
mars 1949. Þann dag urðu ein
hörðustu mótmæli sem um get
ur hérlendis þegar ráðist var
með grjótkasti á Alþingishúsið.
Bjarni gerði sér glögga grein
fyrir því að treysta þyrfti
varnir landsins. Sjálfur komst
hann svo að orði um Atlants
hafsbandalagið: „Öll þau ríki
sem gerðust aðilar bandalags
ins tóku þá ákvörðun af brýnni
nauðsyn. – Ekkert þeirra átti
þó meira undir að friður héld
ist á þessum slóðum en Ísland.
Hernaðarþýðing Íslands er
ótvíræð, og landsmenn sjálfir
eru með öllu ófærir til að verja
landið. Ef ekki var að gert lá
landið því opið fyrir árás ef til
ófriðar kæmi.“
Bjarni er öðrum fremur tal
inn höfundur þeirrar utanrík
isstefnu sem íslenska lýðveldið
hefur fylgt fram til þessa dags.
„Ef menn vilja einangrun“
Bjarni var ráðherra allt til árs
ins 1956 en gerðist þá ritstjóri
Morgunblaðsins. Hann tók svo
aftur við ráðherradómi 1959
þegar viðreisnarstjórnin var
mynduð. Árið 1963 varð hann
forsætisráðherra og gegndi
því embætti til dánardægurs.
Hér er vitaskuld ekki rúm til
að rekja feril Bjarna til hlítar,
en árið áður en hann lést hafði
verið deilt hart á landsfundi
Sjálfstæðisflokksins um aðild
Íslands að Fríverslunarbanda
lagi Evrópu, EFTA. Bjarni tók
þá til máls en orð hans lýsa
miklu innsæi í stöðu Íslands í
samfélagi þjóðanna:
„Ef menn vilja einangrun,
þá verða þeir að taka af
leiðingum hennar og reyna
þá hvorki gagnvart sjálfum
sér né öðrum að hræsna með
því að þeir séu hinir mestu
framfaramenn. Þeir eru þvert
á móti menn afturhalds og úr
tölu. Einangrunin, sem nærri
hafði drepið þjóðina á löngum,
þungbærum öldum, er þeim
runnin svo í merg og bein, að
þeir daga uppi sem nátttröll á
tímum hinna mestu framfara.
Vísindi og tækni nútímans og
hagnýting þeirra er bundin
þeirri forsendu, að víðtækt
samstarf eigi sér stað. Þess
vegna leita jafnvel stórþjóð
irnar samstarfs hver við aðra,
jafnt stórar þjóðir sem smá
ar. Ef stórþjóðunum er slík
þörf, þá er smáþjóðunum það
nauðsyn … Ef aðrir, þeir sem
okkur eru líkastir að menn
ingu og efnahag, hafa svo góða
reynslu, hví skyldum við þá
óttast, að reynsla okkar yrði
önnur og lakari?“
Þessi orð ættu að vera
mörgum til umhugsunar á
okkar tímum þegar enn á ný er
tekist á um grundvallaratriði
í samskiptum Íslendinga við
aðrar þjóðir, þar birtist annars
vegar alþjóðahyggja og hins
vegar þjóðernishyggja. Það
var eingangrunin sem drap
íslenskt þjóðlíf í dróma um
aldir. Víðtækt samstarf þjóða
í milli er smáþjóð í Norður
Atlantshafi lífsnauðsyn, hvort
heldur sem er á sviði menn
ingar, mennta, landvarna eða
viðskipta. n
HARMAFREGN FYRIR HÁLFRI ÖLD
Fimmtíu ár liðin frá brunanum á Þingvöllum þegar Bjarni Benediktsson forsætisráð-
herra lést ásamt konu sinni og dóttursyni. Bjarni hafði afgerandi áhrif á stjórnmálin.
Á ÞINGPÖLLUM
Björn Jón
Bragason
eyjan@eyjan.is
Bjarni Benediktsson við skrifborðið heima í Háuhlíð 1963, árið sem hann tók við embætti forsætisráð-
herra af Ólafi Thors. MYND/INGIMUNDUR MAGNÚSSON
Síðdegisblað-
ið Vísir, forveri
DV, flytur
harmafregn á
forsíðu 10. júlí
1970.
MYND/
TÍMARIT.IS
En víst er það, að sá, sem
ekki viðurkennir sinn eigin
rétt, fær ekki heldur viður-
kenningu annarra.
18 EYJAN 3 JÚLÍ 2020 DV