Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2020, Blaðsíða 32
32 FÓKUS 3. JÚLÍ 2020 DV
Við hvetjum lesendur til að senda
spurningar og vangaveltur sínar til
Kristínar í tölvupósti á:
hjonabandssaela@gmail.com.
Spurningunum verður svo svarað
hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf-
sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði.
Fjölskylduhornið
Sérfræðingur svarar
Kristín Tómasdóttir fjölskyldumeðferðar-
fræðingur svarar spurningum lesenda um
málefni er varða fjölskylduna, börnin og
ástina í Fjölskylduhorni DV. Að þessu
sinni svarar hún lesanda sem er hræddur
um að finna aldrei hinn eina rétta.
HRÆDD UM AÐ PIPRA
É g er 23 ára og logandi hrædd um að pipra. Mér finnst allir vera
á föstu og Tinder er að gera
lítið fyrir mig. Allar vinkonur
mínar eru í samböndum og
ég finn oft fyrir miklum ein-
manaleika. Ég er tilbúin
í mann, krakka og raðhús
og nenni engu djammi. Án
gríns, hvað eykur líkurnar
á því að ég finni drauma-
prinsinn?
Blessuð
Ég vildi óska þess að ég gæti
gefið þér upp dagsetningu
og tíma á því hvenær þinn
framtíðarmaki birtist því
það eru ákveðnar frumur í
mér sem finna mikið til með
þér. Aftur á móti myndi það
draga úr spennunni og þránni
sem mun skila þér svo mikilli
ánægju ef og þegar „sá eini
rétti“ birtist.
Það gleður mig hvernig þú
orðar spurninguna í tengslum
við líkurnar, því við getum
ekki spáð fyrir um fram-
tíðina nema út frá mynstrum
og meðaltölum úr fortíðinni.
Hefur þú áður verið í föstu
sambandi? Ef svo er, er þá
ekki líklegt að það muni
gerast aftur? Ef svo er ekki,
nú þá hlýtur tíminn að vinna
með þér og líklegra en ekki
að biðin verði senn á enda.
Kjöraðstæður
til að velja rétt
Þetta efni er mér mjög hug-
leikið því ef við viljum á
annað borð stunda fyrir-
byggjandi parameðferð þá er
réttast að byrja á fólki eins og
þér. Það sem ég á við er að þú
ert í kjöraðstæðum til þess
að velja vel og koma þannig
í veg fyrir mikinn vanda í
framtíðinni.
Ég líki þessu stundum við
það þegar fólk velur sér hund,
þá leggst það í mikla rann-
sóknarvinnu í tengslum við
eiginleika, liti, stærð, gáfna-
far og ættartré. Þá er kíkt
á got og hvolparnir prófaðir
við ýmsar aðstæður. Ég skil
þetta mætavel enda um heila
hundsævi að ræða, en það
sem ég set spurningarmerki
við er að svo fer fólk bara í
sleik við hjólið á English Pub
og lætur þar við sitja í maka-
vali.
Að öllu gamni slepptu þá
liggur alvaran í því að við
erum stundum of fljót á okkur.
Byrjum með einhverjum áður
en mögulegt er að við séum
búin að kynnast öllum hliðum
einstaklingsins. Þegar svo
kemur í ljós að þið eruð algjör-
lega á skjön við hvort annað á
mörgum sviðum finnst sum-
um þau orðin of „sein“ að slíta
sambandinu. Kannski komin
börn og íbúðarlán í spilið en
það gleymdist að athuga hvort
þið ættuð sameiginleg áhuga-
mál og sýn á lífið.
Kíktu inn á við
Hér áður fyrr var makaval
yfirleitt efnahags- og land-
fræðilegs eðlis. Tilfinningar
voru hálfgert aukaatriði og
gerði fólk með sér samkomu-
lag í tengslum við fjármál,
barnauppeldi og fleira.
Í dag veltur makaval á
öðrum þáttum, tilfinninga-
legum. Því betur sem við
íhugum þá því líklegra er að
við finnum manneskju sem
hentar okkur vel. Og það
skrítna er að sjálfsskoðun
gæti komið þér á sporið,
ekki leita langt yfir skammt,
horfðu inn á við og athugaðu
hver þú ert, hvað þú vilt og
hvað gleður þig. Af hverju?
Jú, fólk með sterka sjálfs-
mynd er líklegra til að finna
maka með sterka sjálfsmynd.
Þú ert líklegri til að finna
maka þinn þar sem þú nýtur
þín og í kringum það sem
gleður þig.
Okkur líkar við
kunnugleg andlit
Í Bandaríkjunum var einu
sinni gerð rannsókn á pörum
varðandi búsetu í æsku.
Sýndu niðurstöður að gríðar-
lega hátt hlutfall (ég man
ekki nákvæma tölu) hafði
búið ekki meira en tveimur
húsaröðum (e. blocks) frá
hvort öðru. Ástæðan er talin
vera sú að okkur líkar við
kunnugleg andlit og sam-
bærilegar uppeldisaðstæður
geta haft áhrif á sambæri-
legar lífsskoðanir, gildi og
trú, svo eitthvað sé nefnt.
Góður maki er vinur þinn
Það sem aðgreinir hamingju-
söm pör frá öðrum pörum
er í mörgum tilfellum vin-
átta. Góður maki er þar af
leiðandi vinur þinn sem er
til staðar, sýnir virðingu
og traust. Vinir eru ekki á
hverju strái, það getur tekið
langan tíma að finna þá og
mörg eigum við nokkra en
fáa vini sem hafa tínst í bak-
pokann á lífsins göngu.
Að vera meðvituð um þessa
staðreynd getur dregið úr ör-
væntingu þinni og aukið þol-
inmæðina. Það er vandasamt
verk að finna góðan maka og
því betur sem þú vandar þig,
því líklegra er að sá/sú eina
rétta birtst þér. n
MYND/GETTY
Ég er tilbúin í
mann, krakka og
raðhús og nenni
engu djammi.