Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2020, Blaðsíða 22
Vonarstjörnur Íslands
Ísland er stútfullt af ungu hæfi-
leikafólki sem hefur látið að
sér kveða í sjónvarps- og kvik-
myndagerð. Hér eru nokkur nöfn
sem vert er að leggja á minnið.
Í slensk sjónvarps- og kvik-myndagerð hefur verið í mikilli sókn undanfarin
misseri. Má þar nefna dæmi
á borð við Ófærð, Brot, Hvítur,
Hvítur dagur og Pabbahelgar.
Fjölmargir nýliðar hafa kom-
ið fram á sjónarsviðið sem
verður spennandi að fylgjast
með á næstu árum. DV leitaði
til reynslubolta innan brans-
ans og bað þá um að nefna
dæmi um vonarstjörnur í
íslenskri sjónvarps- og kvik-
myndagerð.
Að neðan eru þau nöfn sem
álitsgjafarnir nefndu oftast. n
Auður Ösp
Guðmundsdóttir
audur@dv.is
UGLA HAUKSDÓTTIR Leikstjóri og handritshöfundur
Þrátt fyrir að vera aðeins þrítug hefur Ugla þegar fengið inngöngu í hin virtu
samtök Directors Guild of America, fyrst íslenskra kvenleikstjóra. Hún lauk
leikstjórnarmámi á meistarastigi frá Columbia-háskóla árið 2016 og sópaði
að sér verðlaunum við útskrift. Síðan þá hefur hún meðal annars leikstýrt
tveimur þáttum af Ófærð 2, þremur þáttum af Amazon-seríunni Hanna og
þáttaröðinni Snowfall. Þá mun hún leikstýra tveimur þáttum í Amazon-
seríunni The Power sem byggir á metsölubók eftir Naomi Alderman.
„Hefur gert tvær stuttmyndir sem sýna að þar er öflugur leikstjóri á
ferð. Verður spennandi að sjá hana spreyta sig á mynd í fullri lengd
eða sjónvarpsþáttum.“
„Stuttmyndir hennar lofa mjög góðu. Hún hefur líka verið að fá stór
tækifæri, Ófærð og fleira, en það væri gaman að sjá frá henni per-
sónulegt verk.“
ÞÓRÐUR PÁLSSON Leikstjóri
Þórður er með diplóma í leikstjórn og framleiðslu frá Kvikmyndaskóla
Íslands og lauk meistaranámi í leikstjórn í National Film and Television
School í Bretlandi árið 2015. Hans stærsta verkefni til þessa er án efa
spennuþáttaröðin Brot (The Valhalla Murders) sem sýnd var á RÚV í vetur
en um er að ræða fyrstu íslensku sjónvarpsþáttaröðina sem gerð er í sam-
vinnu við Netflix.
„Sýndi það með þáttunum Brot að þar er efnilegur leikstjóri á ferð.
Spái honum velgengni á sviði genre-mynda og spennuþáttagerðar.“
„Kom seríu af stað (Brot) og það er vel af sér vikið sem fyrsta stóra verk.“
ERLENDUR SVEINSSON
Leikstjóri
Erlendur lauk MFA-gráðu í leikstjórn frá Columbia-há-
skóla í New York árið 2017 en áður hafði hann lokið
námi í leikstjórn og framleiðslu í Kvikmyndaskóla Ís-
lands. Stuttmyndir hans hafa hlotið fjölda verðlauna
á alþjóðlegum hátíðum á borð við Aspen Shortsfest,
Palm Springs Shortsfest og Odense International film
festival. Stuttmynd hans Kanarí hlaut tilnefningu sem
besta dramamynd ársins á streymisveitunni Vimeo
árið 2018.
„Stuttmyndin hans, Kanarí, var mjög sterk, einföld
og áhrifamikil.“
„Hefur gert stuttmyndir sem vakið hafa athygli.“
MAGNÚS LEIFSSON
Leikstjóri
Magnús hefur getið sér gott orð sem leikstjóri og kom-
ið að fjölda tónlistarmyndbanda, meðal annars fyrir
Hatara, Emmsjé Gauta og Úlfur Úlfur en hann hlaut
Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2014 fyrir mynd-
bandið við lagið Tarantúlur. Þá hefur hann leikstýrt
fjölda auglýsinga.
„Spennandi leikstjóri sem hefur aðallega verið í
auglýsingum og tónlistarmyndböndum. Vann Edd-
una fyrir bestu stuttmynd og undirbýr spennandi
kvikmynd í fullri lengd.“
NINNA PÁLMADÓTTIR
Leikstjóri og kvikmyndatökumaður
Ninna lauk MFA-námi í kvikmyndagerð frá NYU Tisch
School of the Arts árið 2019 og hefur skrifað og leik-
stýrt fjölda stuttmynda á Íslandi og í Bandaríkjunum.
Stuttmynd hennar Paperboy hefur hlotið mikið lof og
verið verðlaunuð á kvikmyndahátíðum víða um heim.
Hún vinnur nú að sinni fyrstu kvikmynd í fullri lengd.
„Fyrst og fremst er það Ninna Pálmadóttir. Hún
er ótrúlega kröftug og hef ég stutt hana frá byrjun.
Og held því áfram.“
„Stuttmyndirnar frá henni lofa góðu og hafa gengið
vel á hátíðum.“
HLYNUR PÁLMASON
Leikstjóri
Hlynur nam við Danska kvikmyndaskólann í Kaup-
mannahöfn og hefur þegar leikstýrt tveimur kvik-
myndum í fullri lengd, 35 ára gamall. Frumraun hans,
Vetrarbræður, hlaut níu verðlaun á Robert-hátíð
dönsku kvikmyndaakademíunnar 2018. Þá hefur kvik-
myndin Hvítur, hvítur dagur farið sigurför um heiminn.
„Án efa efnilegasti leikstjórinn á Íslandi í dag.
Snillingur í myndrænni frásögn og hefur sérstakan
stíl sem engin annar leikstjóri á Íslandi hefur.“
„Hlynur Pálmason, kvikmyndaskáld og mjög
áhugaverður listrænn leikstjóri. Hefur notið mik-
illar velgengni á erlendum hátíðum fyrir fyrstu tvær
myndir sínar.“
MYND/NINNAPALMA.COM
MYND/ERNIR
MYND/ERLENDURSVEINSSON.COM
MYND/ANTON BRINK
MYND/AÐSEND
MYND/ERNIR
Álitsgjafar
Ragnar Bragason
leikstjóri
Nanna Kristín Magnúsdóttir
leikkona, leikstjóri, framleiðandi
og handritshöfundur
Búi Baldvinsson
framleiðandi
Hafsteinn Gunnar Hafsteinsson
leikstjóri
Grímur Hákonarson
leikstjóri
Ásgrímur Sverrisson
kvikmyndagerðarmaður og
stjórnandi vefsins Klapptré
Tómas Valgeirsson
blaðamaður og gagnrýnandi
22 FÓKUS 3. JÚLÍ 2020 DV