Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2020, Blaðsíða 26
26 FÓKUS 3. JÚLÍ 2020 DV
Á ferð um landið REYKJANESBÆR
Aðeins hálftímaakstur frá höfuð-
borginni er að finna vel falinn
fjársjóð, Reykjanesbæ, þar
sem margt er að sjá og gera.
Hvort sem þú vilt rifja upp rokk-
sögu Íslands, fara í strandblak
eða frisbígolf eða jafnvel sötra
ódýran bjór, þá er Reykjanesbær
staðurinn.
VÍKINGAHEIMAR
Víkingaheimar eru heimili víkingaskipsins Íslendings sem var byggt árið
1996 og er nákvæm eftirlíking Gauksstaðaskipsins sem fannst og var grafið
upp árið 1882 við Gauksstaði í Sandefjord. Vísindamenn komust að því að
skipið hefði verið smíðað árið 870, fjórum árum áður en Ingólfur Arnarson
settist að á Íslandi. Víkingaheimar eru á Fitjum í Ytri-Njarðvík.
ÓDÝR BJÓR Á CAFE PETITE
Í húsasundi við Framnesveg í Keflavík má finna ódýrasta bjór bæjarfélagsins.
Þar er kaffihúsið Cafe Petite sem býður upp á stóran kranabjór á 650 krónur.
Það er að sjálfsögðu einnig hægt að fá sér kaffibolla og kökusneið. Ef þú
nennir ekki að sitja og spjalla er nóg afþreying í boði; pool, píla, skák og heilt
fjall af borðspilum.
VILLABORGARI
Heimsókn í Keflavík verður að
innihalda einn Villaborgara frá
Pylsuvagninum hjá Villa og Ingu,
menningarstólpa Reykjanes-
bæjar í skyndibita. Villaborgarinn
er sérstaklega vinsæll. Á honum
er tómatsósa, steiktur laukur, hrár
laukur, rauðkál, súrar gúrkur, sinn-
ep og remúlaði.
SKESSUHELLIR
Skessan fékk eigið heimili í september 2008 og hefur
nú aðsetur í Svartahelli við smábátahöfnina í Gróf. Þar
hefur Skessan búið sér notalegan helli með góðu út-
sýni yfir Keflavíkina og Faxaflóann. Skessan er hug-
verk Herdísar Egilsdóttur sem ritað hefur fjölda bóka
um hana. Börn geta heimsótt Skessuna, heyrt hana
hrjóta og prumpa og meira að segja lagst í rúm hennar.
Í Skessuhelli er stórt snuddutré og þangað hefur fjöldi
barna farið með síðustu snuð sín og gefið Skessunni.
VATNAVERÖLD
Ef þú ert á ferð með börn, sérstaklega ung börn, þá er tilvalið að kíkja með
þau í sund í Vatnaveröld. Það er rennibraut úti fyrir eldri krakkana en inni
er fullkomið svæði fyrir þau yngri. Stór vaðlaug, kastali með tveimur renni-
brautum og margt fleira skemmtilegt. Svo eru auðvitað heitir pottar, gufa
og ísbað fyrir þá allra hörðustu.
FRISBÍGOLF VIÐ
RÓMANTÍSKA SVÆÐIÐ
Það er átta brauta frisbígolf-
völlur á skemmtilegu svæði við
Aðalgötu, á móts við Vatnsholt, í
Keflavík. Völlurinn er með stuttum
brautum og liggur fram og til baka
í fjölbreyttu landslagi.
STRANDBLAK Á PADDY‘S
Ef þú hefur einhvern tíma farið á
skrallið í Keflavík þá eru allar líkur
á því að þú hafir farið á Paddy‘s.
Paddy‘s Beach Pub, sem hét áður
Paddy‘s Irish Pub, er við Hafnar-
götu 38 í Keflavík. Það er tilvalið
að njóta sólarinnar á pallinum þar
sem það er nánast alltaf logn eða
fara í strandblak með vinunum.
MYND/REYKJANESBAER.IS
MYND/VIKINGWORLD.IS
MYND/TRIPADVISOR
MYND/SKESSAN.IS
MYND/VISITREYKJANES.IS
MYND/SUMAR.RNB.IS MYND/TRIPADVISOR
ROKKSAFN ÍSLANDS
Rokksafn Íslands er safn um sögu popp- og rokktón-
listar á Íslandi. Safnið er staðsett í Hljómahöll í Reykja-
nesbæ. Á safninu er að finna tímalínu um sögu ís-
lenskrar tónlistar á Íslandi, allt frá árinu 1830 til dagsins
í dag. Á safninu er einnig að finna lítinn kvikmyndasal
þar sem sýndar eru ýmsar heimildarmyndir um íslenska
tónlist og hljóðbúr þar sem gestir geta leikið lausum
hala og prófað rafmagnstrommusett, gítar, bassa og
sungið í sérhönnuðum söngklefa. Samkvæmt vefsíðu
Rokksafnsins er ókeypis aðgangur inn á safnið frá
1. júní til 31. ágúst 2020.
MYND/FACEBOOK ROKKSAFNIÐ
MYND/FACEBOOK CAFE PETITE