Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2020, Qupperneq 2
Öl er COVID-böl
Svarthöfði er ekki mikið fyrir fjölmenni, hefur aldrei verið það og mun
aldrei verða. Samkomutak-
markanir hljómuðu því vel í
hans eyrum. Svo vel að hann
hætti sér í borg óttans og
skellti sér á eina grjótharða
knæpu til að svolgra í sig einn
svellkaldan með útvöldum fé-
laga. Fullkomið fyrirkomu-
lag – ekki satt? Rangt. Ó, svo
rangt.
Á þessari tilteknu knæpu
hefði aldrei með góðu móti
verið hægt að troða 100 ein-
staklingum. Hvað þá fleiri. Við
barinn voru líklega allir þeir
tæplega 100 sem höfðu fengið
inni á staðnum. Þarna stóðu
þau saman í einni þvögu, hrúga
af skrúðklæddum vitleysing-
um, sem trúa því að tveggja
metra reglan gildi bara eftir
hentisemi. Ekki svo mikið sem
millimetra regla í gangi.
Tónlistin var svo hátt stillt
að ekki mátti með góðu móti
eiga samræður við næsta
mann nema halla sér alveg upp
að eyra hans. Það var sama
sagan með barþjónana og höll-
uðu þyrstir kúnnarnir sér vel
yfir barborðið til að garga í
eyrað á barþjóninum með til-
heyrandi munnvatnsdreifingu.
Barþjónninn var með grímu,
hann má eiga það. En þurfti þó
að toga hana niður til að svara
kúnnunum, enda þarf í slíkum
hávaða að treysta á varalestur
samhliða garginu. Gargaði
hann þá á móti og gríman góða
þannig tilgangslaus með öllu.
Það kom Svarthöfða því lítið
á óvart að lesa daginn eftir
um aðfinnslur lögreglunnar
við veitingastaði borgarinnar.
Meira kom það á óvart þegar
vertar stigu fram einn á eftir
öðrum og sóru af sér þessar
sakir.
Ölæði Íslendinga í bland
við stuttan opnunartíma bara
hefur skapað einhvers konar
heimsendastemmingu milli
22-23 á kvöldin um helgar.
Allir vilja ná einum drykk
í viðbót og öllum er sama
hvern þeir þurfa að smita til
þess. Veitingastaðir geta og
ættu að gera betur. Svart-
höfði fagnar þeim veitinga-
stöðum sem tóku þá þungu
ákvörðun að loka meðan á
faraldrinum stendur því þeir
treysta sér ekki til að tryggja
öryggi kúnnanna.
Þeir heilsuhraustu og kok-
hraustu ætla sér greinilega að
taka yfir samfélagið því þeir
hafa metið það svo að þeir
eigi vel eftir að þola það að fá
COVID. Gleymdu ekki þínum
minnsta bróður.
Bjórþambarar og miðbæjar-
rottur þurfa að taka ábyrgð og
drekka ekki sóttvarnir sínar í
burtu. Og takið vel eftir, það
er ekki unga fólkið eitt sem
sækir miðborgina heim. Það
er fólk á öllum aldri og frá
öllum öngum samfélagsins.
Við berum öll sameiginlega
ábyrgð á þessu klösterfokki
og megum öll skammast okk-
ar og gera betur. Við skulum
ekki drepa hvert annað bara
svo við þurfum ekki að hætta
að djamma. Mamma þarf ekk-
ert að djamma. Mamma getur
bara þambað rauðvínsbelju og
spjallað við saumaklúbbinn í
gegnum Skype. Svarthöfði var
ekki lengi að forða sér úr mið-
bænum, Svarthöfða, þrátt fyrir
að vera annálaður skíthæll, er
nefnilega annt um nágranna
sína og kann að forgangsraða
þörfum sínum þegar sam-
félagið þarf á því að halda. n
SVART HÖFÐI
Aðalnúmer: 550 5060
Auglýsingar: 550 5070
Ritstjórn: 550 5070
FRÉTTA SKOT
550 5070
abending@dv.is
Sóttkví – ekki bara næs frí
M
eginþorri ritstjórnar DV var settur
í sóttkví eftir að smit greindist á rit-
stjórninni í lok síðustu viku. Okkur
er engin vorkunn enda margir í
sömu stöðu, eða um 800 manns.
Staðan er þó lítið sjarmerandi og
áttar fólk sig gjarnan ekki á því hversu flókið það
getur verið að vera í sóttkví fyrr en símtali við smit-
rakningarteymið lýkur og alvarleiki hvers tilviks
kemur í ljós.
Fólk með ungbörn þarf til dæmis að huga að því að
ekki er hægt að útskýra fyrir barni hvers vegna það
megi ekki koma nálægt öðru foreldrinu né geta for-
eldrarnir báðir sinnt barninu ef annað er í sóttkví en
ekki hitt. Því var brugðið á það ráð heima hjá mér að
við hjónin og sú yngsta færum þrjú í sóttkví.
Erfiðast fannst mér að senda sex ára gamla dóttur
mína að heiman þar sem aðrir á heimilinu voru í
sóttkví en við vildum hlífa henni við því.
Tólf daga innilokun fyrir sex ára full-
frískt barn er erfið. Hún hefði þurft að
horfa út um gluggann á bestu vinkonu
sína í næsta húsi leika sér í garð-
inum, missa af leikjanámskeiðinu
sem beðið hefur verið eftir með
eftirvæntingu og afmæli, svo eitt-
hvað sé nefnt.
Andlega leggst slík frelsissvipting
misvel í fólk. Samviskubit er þá
gjarnan fylgifiskur. Heima fyrir
er börnunum sinnt minna og
sjónvarpið verður of stór hluti
af deginum þar sem barist er
við að reyna að skila af sér
sæmilegu vinnuframlagi
með barn í fanginu. Grenj-
andi rigning gerir lítið
fyrir daglegan göngutúr
til að halda geðheilsunni í
lagi og heimaæfingarnar
ganga misvel. Súkkulaðið
klárast fyrr en ætlað var
og það verður að viðurkennast
að rauðvínið gerir það líka. Það
er þessi tilhneiging til þess að
„bæta sér upp“.
Þá hefur reynst gott að minna
sig á að allt sem skiptir máli er í lagi. Börnin eru heil
heilsu.
Hópurinn sem starfar á DV er ólíkur og aðstæður
fólks eftir því. Sumir geta einangrað sig með nokkuð
einföldum hætti á meðan aðrir þurfa að húka inni í
völdu herbergi og lýsa yfir varúð vogi viðkomandi sér
yfir þröskuldinn.
Einn ungur starfsmaður DV býr hjá foreldrum
sínum og starfar annað foreldrið á spítala. Var þeim
aðila meinað að mæta til vinnu vegna möguleika á
smiti þó að sonurinn væri innilokaður í herbergi í
sinni sóttkví. Það eru engir sénsar teknir – við erum
jú öll almannavarnir.
Nema fávitarnir sem troða sér fram fyrir röðina á
barnum, panta sér tvöfaldan gin í tónik og drekka svo
óvart úr vitlausu glasi. n
UPPÁHALDS
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir
RITSTJÓRI: Þorbjörg Marinósdóttir, tobba@dv.is FRÉTTASTJÓRI: Erla Hlynsdóttir, erlahlyns@dv.is AUGLÝSINGAUMSJÓN: Ruth Bergsdóttir, ruth@dv.is
PRENTUN: Torg prentfélag DREIFING: Póstdreifing | DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. DV, Kalkofnsvegi 2, 101 Reykjavík Sími: 550 7000.
MYND/TM
HEIMSENDINGAR
Þar sem nánast öll ritstjórn
DV er í sóttkví er heimsend-
ing okkur hugleikin að þessu
sinni. Hér gefur að líta fimm
hluti sem þú vissir ekki að
þú gætir fengið senda heim.
1 Brakandi ferskt salat
Vaxa býður upp á nýræktað
salat, spírur og krydd í
heimsendingu. Fólk skráir
sig í áskrift og borgar fast
mánaðargjald og fær kassa
af góðmeti í hverri viku.
2 Blóm
Hjá Reykjavík Gift Shop er
hægt að skrá sig í vikulega
eða hálfsmánaðarlega blóma-
áskrift og fá veglegan vönd
sendan heim. Heimsendingin
er frí og 5% afsláttur er af
blómunum.
3 Sóttkvíarvesti
Þegar farið er út að hlaupa
er hægt að smella sér í sér-
legt merkt vesti til að forðast
að fólk komi of nálægt.
Vestið fæst hjá heimkaup.is.
4 Ekki bara pitsa
Á aha.is er að finna fjölda
veitingahúsa sem senda
heim. Algengt er að lág-
marksgjald sé á pöntun til
að sendingin sé ókeypis.
Til dæmis er lágmarkið hjá
Subway 6.000 kr.
5 Hárlitur
Hagkaup hefur opnað vef-
verslun sem selur einnig
snyrtivörur svo sem hárlit.
Ameríska ostakakan þar er
líka tryllt. Fínt að taka hana
með. Heimkaup sendir einn-
ig hárlit heim.
2 EYJAN 14. ÁGÚST 2020 DV