Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2020, Síða 6
6 FRÉTTIR 14. ÁGÚST 2020 DV
vinnunni fóru á bætur í gegn-
um hlutabótaleiðina, bjagaði
tölfræði Vinnumálastofnunar.
„Skakkar“ atvinnuleysistölur
fóru að berast og raunatvinnu-
leysið birtist almenningi ekki
fyrr en seinna. Tölur um
raunatvinnuleysi ná yfir þá
sem eru sannarlega án vinnu
og í virkri atvinnuleit, þar eð,
þeir vilja og geta unnið en fá
ekki vinnu.
Enn vantar margt fólk inn
í þær tölur. Til dæmis má
vænta þess að þeir sem sagt
var upp um mánaðamótin
apríl/maí hafi ekki komið inn
í greiðslukerfi Vinnumála-
stofnunar fyrr en 1. ágúst. Er
þá miðað við þriggja mánaða
uppsagnarfrest. Þeim þúsund
eða svo sem var svo sagt upp í
hópuppsögnum mánaðamótin
á eftir, júní/júlí, koma svo inn
í „kerfið“ 1. september.
Fastlega má gera ráð fyrir
því að einhver hluti þessa
fólks sem sagt var upp í hóp-
uppsögnum fyrr á árinu hafi
verið endurráðinn, en ómögu-
legt er að segja til um það hve
stór hluti það var.
240 þúsund krónur
á mann duga ekki
Að sögn Ragnars Þórs Ingólfs-
sonar, formanns VR, eru stóru
verkefnin fram undan einmitt
atvinnuleysið og atvinnuleys-
isbótakerfið sem og endur-
skoðun Lífskjarasamningsins.
Ragnar segir að kerfið verði
að vera í stakk búið til þess að
taka á móti einstaklingum og
veita þeim viðunandi fram-
færslu. „Atvinnuleysisbætur
í dag eru einfaldlega of lág-
ar,“ segir Ragnar, „bæturnar
verða að duga fyrir mat og
húsnæði, og 240 þúsund krón-
ur á mann dugar einfaldlega
ekki.“ Tekjutenging atvinnu-
leysisbóta er enn fremur allt
of stutt, segir Ragnar, og
huga verður að framlengingu
á úrræðum eins og hlutabóta-
leiðinni. „Þetta eru hlutir sem
við erum að vinna að í dag og
næstu daga og vikur,“ segir
hann.
Hin hliðin á þessum sama
peningi er svo staða kjara-
samninga á vinnumarkaði.
Heilt yfir er hún nokkuð góð.
„VR er með þessa stóru kjara-
samninga sína klára, en sér-
kjarasamningarnir líkt og
þeir sem gerðir eru við álver-
in í Straumsvík og á Grundar-
tanga eru enn lausir. Staðan
í Straumsvík er auðvitað
grafalvarleg og hvort álverið
Þ að hefur ekki verið yfir mörgu að gleðjast í at-vinnumálum þjóðar-
innar síðustu mánuði. Eftir
nokkuð mörg ár af velgengni,
metkaupmáttaraukningu og
stöðugleika á vinnumarkaði
fóru að berast fréttir af dular-
fullri veiru í Wuhan-héraði
Kína.
Fyrst var kínverskum
landamærum lokað, svo kór-
eskum, svo japönskum. Ekki
leið langur tími þar til allur
heimurinn var undir, vitnis-
burður um smæð heimsins
á 21. öld. Á þessum tíma var
ferðabransinn hér heima orð-
inn stærri en sjávarútvegur-
inn. Í fyrsta sinn áttu fleiri ís-
lenskar fjölskyldur sitt undir
að hingað kæmu ferðamenn
en að uppsjávarflotinn fyndi
loðnu.
Hópuppsagnir fylgdu veir-
unni. Um 4.000 manns misstu
vinnuna í hópuppsögnum um
mánaðamótin apríl/maí og
þúsund til viðbótar næstu
mánaðamót á eftir. Til við-
bótar hurfu verkefni hjá þús-
undum verktaka, sérstaklega
í ferðaþjónustu.
Um svipað leyti fóru aðgerð-
ir ríkisstjórnarinnar vegna
ástandsins af stað. Fyrst var
hlutabótaleiðin kynnt. Bauðst
starfsfólki fyrirtækja þá að
fara í skert starfshlutfall hjá
fyrirtækjum sínum og skrá
sig á hlutabætur hjá Vinnu-
málastofnun. Meiningin var
að hindra „slit á ráðningar-
sambandi“ starfsfólks og
vinnuveitenda. Það virkaði
skammt. Þegar ljóst varð að
ástandið myndi ekki vara í
örfáa mánuði fór ríkið af stað
með niðurgreiðslur á greiðsl-
um til starfsfólks á uppsagn-
arfresti.
Var ríkið þar með farið
að niðurgreiða laun starfs-
fólks hjá einkafyrirtækjum,
gegn því að því væri sagt
upp. Stangaðist þetta nokkuð
bersýnilega á við markmið
hlutabótaleiðarinnar og hlaut
ríkisstjórnin talsverða gagn-
rýni frá leiðtogum verkalýðs-
hreyfingarinnar fyrir vikið.
Erfitt að sjá raunmyndina
Hin undarlega staða vinnu-
markaðarins, þar sem hlut-
fallslega fleiri verktakar
misstu vinnuna og fengu ekki
bætur, og margir sem héldu
ÖRYGGISNET ATVINNULAUSRA ER
STÆRSTA VERKEFNIÐ FRAMUNDAN
Þrátt fyrir að samningar hafi náðst við yfirgnæfandi meirihluta stéttarfélaga er mikil
óvissa í kortunum. Verði ekki gripið í taumana samstundis er stórslys í uppsiglingu.
Heimir
Hannesson
heimir@dv.is
Ragnar Þór segir óvissuna óþægilega. MYND/STEFÁN
Það verður þá gríðarlega
harður vetur. Þetta veltur allt
á Lífskjarasamningnum.