Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2020, Side 13
aldrei skilið það að fólk segist
þurfa að versla á nóttunni.
Það er bara mesta bull sem ég
hef heyrt. Það er enginn það
frægur á Íslandi að hann geti
ekki gert það sem hann vill.“
En hvað með fjölskylduna?
Var mamma þín til í það að
þú værir almennt bara á rass-
hárunum í sjónvarpinu?
„Já, hún hefur alltaf stutt
mig. Ég man einu sinni eftir
því að hún hafi orðið reið. Þá
vorum við Sveppi að keppa og
sá sem tapaði þurfti að fara
í undirföt af mömmu sinni.
Sveppi tapaði en það var
styttra heim til mömmu minn-
ar en hans, svo við sóttum
nærföt þangað. Svo var ég að
horfa á þáttinn með mömmu
um kvöldið og mundi að ég
hafði gleymt að láta hana vita.
Þegar hún sá Sveppa í undir-
fötunum sínum þá var hún
ekki sátt.“
Auddi eignaðist sitt fyrsta
barn fyrir níu mánuðum og
segir að hann hafi hugleitt það
að sonur hans geti seinna meir
horft á alla þættina þar sem
baukað var við misgáfulega
hluti. „Það er margt af þessu
efni sem eldist hræðilega því
þetta er orðinn svo langur
tími. Ég held að flestir tengi
við það að fá í magann þegar
þeir sjá gamla mynd af sér.
Það er helvíti vont þegar allir
geta séð það. Ég byrjaði 20 ára
í sjónvarpinu og er í raun bara
að þroskast þar. Ég var alveg
smá stressaður um að Teddi
myndi sjá sumt af þessu en
ég ræddi það við Sveppa sem
á þrjú börn og sú elsta er að
verða 17 ára. Hann vill meina
að þetta sé núll stress.“
Fær aulahroll
Auddi fer ekki í felur með að
sumt í 70 mínútum hafi verið
nokkuð gróft og myndi ekki
sleppa í gegn í dag. Má nefna
vinsæl dæmi eins og þegar
Auddi gubbaði í skóinn sinn
eftir ógeðsdrykk, Sveppi var
látinn húka allsber frammi á
gangi í vinnunni og þáttinn
Hvernig á ekki að fara með
dverg, þar sem þeir sýndu
slæma meðferð á vini sínum
Frank Høybye.
„Línan færist alltaf með ár-
unum, það er öðruvísi menn-
ing. Flestir grínistar eru alltaf
að reyna að dansa við línuna.
Það er ekki mikið sem ég sé
eftir, kannski eitt og eitt at-
riði en það sem eldist líka
illa er að ég fæ hroll við að
sjá mig tala í þessum gömlu
þáttum,“ segir Auddi sem í
dag er sjálfstraustið uppmál-
að og hefur tekið þátt í fjölda
beinna útsendinga, nú síðast
sem annar kynnanna í Allir
geta dansað.
Nýtt vikulegt hláturskast
væntanlegt
Auddi segir að hann fái enn
útrás fyrir fíflaskapinn og það
sé helst í Drauma-þáttunum
þar sem hann, Sveppi, Steindi
og Pétur Jóhann hafa gert
alls konar rugl til að skemmta
landsmönnum. „Ég vona að
ég hætti aldrei að fíflast þó
maður geri annað með og sé
kannski ekki að gera sömu
hluti og í 70 mínútum. Ég vona
að það deyi aldrei í mér. Pétur
er átta árum eldri en ég og er
ennþá að fíflast.“
Hann segir að þó að línan
færist með breyttum tíðar-
anda þá líði grínið ekki fyrir
það að ekki megi stuða fólk.
„Við erum að skrifa núna nýja
seríu sem heitir Eurogarður-
inn. Ef okkur finnst eitthvað
það fyndið þá stöndum við
með því og ætlunin er aldrei
að særa neinn. Þetta snýst um
að skapa aðstæður sem eru
nógu fyndnar.“ Auddi skrifar
þættina með íslenskum grín-
hetjum á borð við Önnu Svövu
Knútsdóttur, Steinda, Dóra
DNA og Arnór Pálma Arnar-
son leikstjóra. Þættirnir verða
sýndir á Stöð 2 í september og
ljóst er að þar er hláturveisla
í vændum.
„Þetta er í fyrsta sinn sem
ég bæði skrifa og leik í þátt-
um þar sem er söguþráður og
ég leik sömu persónuna alla
þáttaröðina. Þátturinn fjallar
um Badda sem leikinn er af
Jóni Gnarr. Hann kaupir Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinn af
Reykjavíkurborg og einka-
væðir hann. Hann ætlar að
gera hann að Disneygarði
Íslands. Ég mæti svo sem
nýr starfsmaður þarna inn,“
segir Auddi og eftirvæntingin
leynir sér ekki.
Ekki endilega fyrir
framan myndavélina
Auddi segist í dag vera mun
slakari og hann fái sinn
skammt af athygli í gegnum
vinnuna og þurfi því ekki
að sækjast eftir henni eins
og hann gerði á sínum yngri
árum þar sem hann var farinn
að skemmta heilu partíunum
fljótlega eftir að hann kom inn
úr dyrunum. Þörfin fyrir að
vera í fjölmiðlum sé enn á sín-
um stað en með breyttu sniði.
„Ég sé ekki fyrir mér að
fara að gera eitthvað allt
annað. Þetta er það sem ég
kann best. Ef ég færi aftur í
skóla væri það þá helst tengt
leikstjórn. Ég hef áhuga á því,
mér finnst gaman að vinna
með fólki og þarf ekki lengur
að vera endilega sjálfur fyrir
framan myndavélina.“
Mikilvægt að ræða vanlíðan
Þrátt fyrir breitt bros og djúpa
vasa af gríni hefur Auddi ekki
átt áfallalausa ævi. Áföll hafa
mótað hann og þá sérstaklega
fráfall vinar hans Örvars
Pálma Pálmasonar sem svipti
sig lífi aðeins 22 ára gamall.
Þeir vinir höfðu fylgst að
í tilraunum sínum með að
skemmta fólki á Króknum og
var Örvar annálaður fyrir
gleði og skildi alla yfirleitt
eftir í hláturskasti.
„Þegar ég var busi í fjöl-
brautaskólanum vorum við
að skemmta saman á hátíðum
í skólanum, á barnum og á
þorrablótum. Ég leit alltaf upp
til hans. Hann var svo fynd-
inn og skemmtilegur. Hann
var þremur árum eldri en ég
og mér fannst svo geggjað að
hann nennti að hanga með
mér. Hann er ennþá bara
einn sá fyndnasti sem ég hef
kynnst á ævinni. Það er ekki
hægt að kenna það sem hann
hafði. Sveppi minnir mig oft
á Örvar. Hann var ótrúlega
fyndinn.“
Röddin í Audda breytist.
Hún verður mýkri og þykkari
þegar hann talar um vin sinn.
Það er ljóst að það er stutt inn
að hjartarótum þegar Örvar
berst í tal.
„Þetta er hræðilegt. Þetta
er svo miklu algengara en
fólk heldur. Þetta er algengt
að ungir menn séu að taka sitt
eigið líf. Mér finnst svo erfið
tilhugsunin um að hann hafi
ekki fengið hjálp til að halda
áfram, það gerir mig svo
reiðan og leiðan. Mér finnst
svo leiðinlegt að hann hafi
ekki leitað sér hjálpar. Ekkert
vandamál er svo stórt að ekki
sé hægt að finna út úr því.“
Algengasta dánarorsök
ungra karlmanna á Íslandi
er sjálfsvíg en 32 karlmenn
sviptu sig lífi árið 2019 og 7
konur. Auddi á sjálfur son
og segir tilhugsunina um að
menn sjái engan annan val-
kost en að stytta sér aldur
vera hrylling. Hann segir
mikilvægt að halda í þá hugs-
un að lífið sé aldrei það slæmt
að maður eigi að láta það frá
sér.
„Maður lærir að lifa með
þessu en ég myndi höndla
þetta allt öðruvísi í dag en þá.
Ég bara höndlaði þetta ekki
ef ég á að vera hreinskilinn.
Bara dílaði ekki við þetta. Í
raun ekki fyrr en ég fór norð-
ur að skemmta fyrir nokkrum
árum og sameiginlegur vinur
okkar Örvars lét mig aðeins
heyra það, að ég hefði aldrei
farið að leiðinu hans. Hann fór
með mig þangað og þá bara
brotnaði ég niður. Ég var bara
búinn að ýta þessu frá mér.
Það hentaði mér þá en svo var
það miklu betra að horfast í
augu við þetta.“ Hann segist
sjálfur vera að reyna að tala
meira opinskátt um tilfinn-
ingar sínar. Það sé flestum til
góðs.
Með athyglissjúkasta
manni landsins
Spurður um hvort hann sé
auðveldur í sambúð segist
hann líklega ekki vera það
en ýmislegt annað vegi upp
á móti. „Ég er kannski ekki
auðveldur í sambúð en ég er
að læra. Ég er hættur að búast
alltaf við hrósi ef ég ryksuga
heima hjá mér. Ég var eins og
smábarn, vildi alltaf klapp á
bakið fyrir að taka til heima
hjá mér sem er algjört bull.
Nú er ég að reyna að læra að
elda. Konan mín er frábær
kokkur. Ég er fínn að grilla
en þarf að læra að elda fyrir
son minn eitthvað svona létt.
Hakk og spaghettí og svona.“
Rakel Þormarsdóttir, sam-
býliskona og barnsmóðir
Audda, er ein af fáum Íslend-
ingum sem eru ekki á sam-
félagsmiðlum og algerlega
laus við þörf fyrir athygli. „Ég
lofaði henni því fyrir löngu að
vera ekkert að ræða hana í
fjölmiðlum. Hún hefur engan
áhuga á sviðsljósinu og það
kemur alveg fyrir að við erum
kannski að stoppa í sjoppu
á leiðinni norður og hún vill
fara á undan mér inn. Hún
nennir ekki að það sé verið að
horfa á hana og einhver að spá
í því að hún sé kærastan mín.
Ég skil það reyndar alveg.
Vinir hennar hafa gert mikið
grín að henni fyrir að hún vilji
enga athygli og sé ekki á sam-
félagsmiðlum en byrji svo með
athyglissjúkasta manni lands-
ins.“
Það verður að sjá fegurðina í
því þegar andstæður leita sam-
an og mynda jafnvægi. Það er
alls óvíst hvort það hefði farið
vel hefði Auddi til dæmis náð
sér í samfélagsmiðlastjörnu.
„Já, það væri ekki gott. Ég
held að allir í kringum mig
gætu ekki verið ánægðari
með makavalið,“ segir Auddi,
með ungbarn í annarri og ryk-
suguna í hinni, tilbúinn í næsta
kafla lífsins. n Auðunn Blöndal er einn þekktasti sjónvarpsmaður landsins og hefur starfað í sjónvarpi í 20 ár. MYND/VALLI
Mér finnst svo erfið tilhugs-
unin um að hann hafi ekki
fengið hjálp til að halda
áfram, það gerir mig svo
reiðan og leiðan.
FRÉTTIR 13DV 14. ÁGÚST 2020