Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2020, Síða 18
Framboð Demókrata-flokksins til forseta ligg-ur nú fyrir í heild sinni
eftir að Joe Biden forsetafram-
bjóðandi valdi Kamala Harris
sem varaforsetaframbjóðanda
í vikunni. Útnefningar Bidens
hafði verið beðið með eftir-
væntingu og miklar bollalegg-
ingar farið fram í fjölmiðlum
um hver gæti orðið fyrir val-
inu. Harris var efst á lista
flestra spámanna, en árásir
Harris á Biden í forkosning-
unum voru taldar geta kostað
hana plássið.
Kamala Harris er í senn
fyrsta svarta konan og fyrsta
suður-asíska konan til að hljóta
útnefningu stóru flokkanna
tveggja í forseta- eða vara-
forsetaembætti. Val forseta-
frambjóðanda á varaforseta
sínum er mikilvægt pólitískt
útspil í kosningabaráttunni.
Miða forsetaframbjóðendur
oft að því að „fylla upp í eyður
sínar“ þegar þeir velja vara-
forseta. Þannig reyna þeir til
dæmis að skapa jafnvægi á
milli stríðandi fylkinga innan
flokks síns, eða að bæta upp
fyrir sína eigin persónulegu
og pólitísku veikleika.
Gjörólíkar leiðir leiddu
þau á sama stað
Joe Biden er 77 ára gamall
reynslubolti í pólitík og tók
sæti í öldungadeild Banda-
ríkjaþings 1973. Kamala
Harris var þá 11 ára stelpa í
Kaliforníu og foreldrar hennar
nýlega skilin. Móðir Kamala
Harris fluttist til Bandaríkj-
anna árið 1960 frá Tamil Nadu
á Indlandi. Faðir hennar flutt-
ist til Bandaríkjanna ári síðar
frá Jamaíku. Árið 1962 fæddist
Kamala í Oakland í Kaliforníu.
Þegar foreldrarnir skildu
fluttist faðir hennar til Palo
Alto þar sem hann kenndi
í Stanfordháskóla. Móðir
hennar nam innkirtlafræði og
starfaði sem læknir með sér-
hæfingu í brjóstakrabbameini
og fór læknisstarfið með hana
um víðan völl, meðal annars
til Kanada þar sem Kamala
stundaði nám.
Fljótt á litið er það eina sem
Biden og Kamala Harris eiga
sameiginlegt að vera bæði
Demókratar og lögfræðingar.
Hún er fædd árið 1964 og upp-
alin í Kaliforníu á hlýrri vest-
urströndinni, hlaut blandað
uppeldi og gekk til dæmis bæði
í hindúamusteri og kirkju.
Hann fæddist í Delaware á
austurströndinni árið árið 1942
og var alinn upp á kaþólsku
heimili í millistéttarhverfum
Wilmingtonborgar.
47 ár í alríkispólitíkinni
Joe Biden hellti sér beint út í
pólitíkina sem ungur maður.
Fyrst í bæjarstjórn, svo beint
í efri deild Bandaríkjaþings
árið 1973. Biden hefur síðan
þá lengi daðrað við forseta-
embættið. Fyrst árið 1987
þegar hann gaf í fyrsta skipti
kost á sér í forvali Demókrata.
Til gamans má geta að Harris
PÚSLUSPILIÐ SEM VANTAÐI
Kamala Harris og Joe Biden eiga fátt sameiginlegt, en líklega er það
ástæðan fyrir valinu á henni sem varaforsetaefni Bidens. Hún hefur
margsannað sig á stórum sviðum, en nú er komið að því stærsta.
var þá að ljúka fyrsta ári sínu
í laganámi við Kaliforníu-
háskóla.
Það eru ekki bara persónu-
einkennin sem skilja þau að.
Þó að þau séu flokkssystkini
hefur pólitíkin skilið þau að
í einhvern tíma, sér í lagi í
stefnumálum sem varða sam-
skipti ólíkra kynþátta í Banda-
ríkjunum, en það málefni hefur
vegið þungt í þjóðfélagsum-
ræðu undanfarið. Kamala hef-
ur látið sig umræðuna varða á
meðan Biden hefur haldið sig
frá henni.
Það er kannski ein bölvun
langs ferils í pólitík að eftir
Biden liggur talsvert af um-
mælum sem hægt er að nota
gegn honum. Til að mynda
sagði hann um Obama árið
2008 þegar þeir öttu kappi um
að verða forsetaframbjóðandi
Demókrata: „Ég meina, þú
ert með fyrsta svarta mann-
inn sem er vel máli farinn, og
skarpur og hreinn og lítur vel
út. Ég meina, það er efni í sögu-
bækurnar, maður!“ „Hreinn,“
er orð sem heyrist ekki notað
oft um öldungadeildarþing-
mann.
Kostir reynslu og
reynsluleysis sameinaðir
Kamala Harris er ætlað að
bæta upp fyrir galla Bidens.
Harris, ólíkt Biden, er með
talsverða reynslu utan Capi-
tolhæðar Washingtonborgar.
Biden var 31 árs þegar hann
hóf feril sinn sem þingmaður.
Harris var 53 ára. Á þessum
tveimur auka áratugum sem
hún hafði utan þingsalanna
sankaði hún að sér reynslu
sem hefur nýst henni vel
síðan hún gerðist þingmaður
2017. Harris var saksóknari í
San Francisco í mörg ár áður
en hún gerðist dómsmálaráð-
herra Kaliforníuríkis. Hún var
svo kjörin öldungadeildarþing-
maður ríkisins 2017. Hann er
reynslan uppmáluð, hún ekki.
Reynsluleysi í stjórnmálum á
tímum mikils vantrausts á „at-
vinnustjórnmálamenn“ er ekki
endilega galli í bandarískri
pólitík.
Þó er Harris ekki með öllu
reynslulaus. Að vera kosin
öldungadeildarþingmaður
frá Kaliforníu er ekkert smá
afrek. Það er stærsta ríki
Bandaríkjanna og aðeins er
kosið um einn þingmann í
einu í öldungadeildina. Það
þýðir að öldungadeildar-
kosning í Kaliforníu er þriðja
stærsta atkvæðagreiðslan á
alríkissviðinu. Eins má nefna
að Kalifornía er með stærsta
hagkerfi bandarísks ríkis, og
væri ríkið sjálfstætt land væri
það fimmta stærsta iðnveldi
heims.
Steinvala í skóm atvinnu-
stjórnmálamannanna
Harris tók við embætti sínu
aðeins tveimur vikum áður en
Donald Trump hóf sitt kjör-
tímabil. Frá fyrsta degi hefur
hin frjálslynda Kamala Harris
verið hindrun í vegi ríkis-
stjórnar Trumps. Hún barðist
hatrammlega gegn banni við
komum frá nokkrum mús-
limaríkjum sem Trump lagði
á 2017. Hún barðist gegn stað-
festingu Neils Gorsuch í emb-
ætti hæstaréttardómara það
sama ár og næstu ár á eftir
gerði hún hvað sem hún gat
til þess að tefja, hindra eða
hrinda frá stefnumálum ríkis-
stjórnar Trumps.
Fyrr á þessu ári, líkt og áður
sagði, öttu Harris og Biden
kappi í forkosningum Demó-
krataflokksins. Eins og við
var að búast gekk talsvert á og
var hart barist. Í allra fyrstu
var alls kostar óvíst að Biden
myndi hljóta útnefninguna.
Í huga margra frjálslyndra
kjósenda í forkosningum
Demókrataflokksins var rétt-
ast að leyfa konu að spreyta
sig á ný. Hillary Clinton hafði
jú tæknilega „unnið“ 2016,
ef litið er til hreins fjölda at-
kvæða. Atkvæðadreifingin
var bara þannig að Trump
hafði sigurinn á fjölda kjör-
manna.
Harris réðst nokkuð harka-
lega á Biden í baráttunni. Í
fyrstu kappræðum flokks-
ins skammaði hún Biden til
að mynda fyrir að tala af
hrifningu um þingmenn sem
börðust gegn réttindabaráttu
svartra á 7. áratugnum. Voru
þau ummæli talin vinna gegn
henni þegar kom að vali á
varaforsetaframbjóðanda, en
svo reyndist ekki vera.
Yrði elsti forsetinn
Kamala Harris býr að því
að eiga stuttan stjórnmála-
feril utan Kaliforníu en hafa
þó valið sér rétt baráttumál
að berjast fyrir og um leið
vakið mikla athygli á sér og
sínum stefnumálum. Það er
þessi andi „pólitísks réttleika“
Harris sem Biden og stjórn-
endur baráttu hans reyna nú
að dreifa yfir sig og eigna sér.
Annað atriði er að Biden verð-
ur elstur til að vera kosinn
forseti, hljóti hann kjör. Hann
verður 78 ára gamall og því 82
ára þegar hann klárar fyrsta
kjörtímabilið sitt. Ólíklegt er
að 82 ára gamall maður bjóði
sig fram til endurkjörs, en þó
hefur Biden sannað að hann er
til alls líklegur.
Biden nýtur mikils forskots
í skoðanakönnunum og hafa
stjórnmálaskýrendur verið á
einu máli um það að til þess að
„klára dæmið“ og sigla inn í
Hvíta húsið í janúar 2021 þarf
Biden aðeins að gera eitt: Ekki
klúðra málunum.
Valið á Kamala Harris sem
varaforsetaframbjóðanda var
liður í þeirri dagskrá. n
Heimir
Hannesson
heimir@dv.is
Kamala Harris og Joe Biden eru nú vinir að nýju. MYND/GETTY
18 EYJAN 14. ÁGÚST 2020 DV