Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2020, Qupperneq 22
SAKAMÁL
Catherine Campell hafði frá unga aldri verið hjálpsöm og borið með
sér þrá til að þjóna samfélag
inu. Þennan áhuga hafði hún
frá föður sínum. Hún gekk
ung til liðs við lögregluna og
vann sig smám saman upp í
starf yfirlögregluþjóns.
Catherine átti að mæta á
vakt mánudaginn 14. septem
ber 2015 og var vinnufélögum
hennar brugðið þegar hún lét
ekki sjá sig. Hún var afar
ólíkleg til að láta ekki vita ef
hún kæmist ekki til vinnu.
Skömmu eftir þetta var lýst
eftir Catherine.
Lögreglumenn fóru heim
til hennar en þar voru engin
merki um ferðir hennar. Efni
úr öryggismyndavélum sýndu
hana fara úr íbúðinni um mið
nætti aðfaranótt fimmtudags
ins 11. september, en mynd
efnið sýndi hana ekki koma
til baka.
Aðeins fjórum dögum síðar,
eða 15. september, fannst lík
Catherine fyrir neðan brúna
milli Halifax og Dartmouth.
Því hafði verið komið fyrir
undir viðarkassa. Við hliðina
var opin sorptunna og efst þar
var að finna farsíma, veski og
bíllykla hennar.
Handtökuna bar brátt að
Aðeins rúmlega klukku
stund eftir líkfundinn var
maður handtekinn, grunaður
um morðið. Um var að ræða
ökumann sem ók í áttina að
staðnum þar sem líkið var.
Þetta var hinn 27 ára gamli
Christopher Garnier. Hann
var fyrrverandi sjúkraflutn
ingamaður. Í bíl hans fund
ust ýmsir hlutir, þar á meðal
hálffullur bensínbrúsi og segl
dúkur. Christopher var grun
aður um að hafa ætlað að fara
að líkinu, vefja það í segldúk,
aka með það í burtu og brenna
það.
En hvers vegna var lög
reglan svona fljót að hand
taka hinn grunaða? Varla var
hún að stöðva bíla í nágrenn
inu af handahófi?
Ástæðan var sú að hún hafði
verið að fylgjast með Christ
opher í nokkra daga. Það
tengdist rannsókn á ferðum
Catherine eftir að hún fór frá
heimili sínu á fimmtudags
nóttina. Bæði eftirlitsmynda
vélar og vitni gáfu góða mynd
af atburðarásinni þessa nótt.
Fljótlega eftir að Catherine
fór út úr íbúð sinni settist hún
upp í leigubíl sem ók henni á
vinsælan skemmtistað í Hali
fax. Leigubílstjórinn sagði
að Catherine hefði ekki verið
drukkin og að hún hefði verið
í góðu jafnvægi.
Eftirlitsmyndefni og frá
sagnir annarra gesta vitna um
að Catherine gerði sér dælt
við Christopher á dansgólfinu.
Þau fóru síðan saman burtu af
staðnum í leigubíl.
Christopher gisti hjá vini
sínum þar sem hann hafði
slitið sambandi við kærustu
sína fyrir örfáum dögum og
flutt út frá henni. Vinurinn
var sjálfur úti á djamminu og
kom ekki heim fyrr en morg
uninn eftir.
Maður með græna tunnu
Eftirlitsmyndavélar sýna
Christopher koma út úr íbúð
inni snemma morguns og ýta
á undan sér sorptunnu. Hún
virtist þung. Nokkrir veg
farandur sem voru snemma
á ferli sáu hann ýta tunnunni
niður götu. Hann var trylltur
til augnanna, vitnaði einn bíl
stjóri um.
Þegar vinur Christophers
kom heim sá hann sér til
undrunar að Christopher svaf
í stofusófanum en ekki rúm
inu sem hann hafði útvegað
honum og að dýnan úr rúminu
var horfin. Christopher sagð
ist hafa orðið veikur og ælt í
rúmið. Hann hefði því fleygt
dýnunni en ætlaði að kaupa
aðra dýnu í staðinn.
Þess má geta að áður en lög
reglan handtók Christopher,
fjórum dögum síðar, hafði
hann sæst við kærustu sína
og flutt inn til hennar aftur.
Sú sæla stóð stutt.
Sterk sönnunargögn
Við rannsókn á íbúð vinar
Christophers fundust blóð
blettir sem pössuðu við lífsýni
úr Catherine. Krufning leiddi
í ljós að banamein hennar var
kyrking en auk þess var hún
með brákað nef og glóðarauga
á báðum augum.
Við yfirheyrslur bar Christ
opher fyrir sig minnisleysi,
hann hefði drukkið mikið
áfengi ofan í þunglyndislyf
sem hann tók inn. Eftir níu
klukkustunda yfirheyrslu
játaði hann þó á sig morðið og
skrifaði stutt en iðrunarfullt
afsökunarbréf til foreldra
Catherine.
Fyrir rétti neitaði Christ
opher hins vegar sök og sagð
ist hafa játað hjá lögreglu til
að láta þá heyra það sem þeir
vildu heyra. Hann og lög
fræðingar báru fram þá vörn
að Catherine hefði haft frum
kvæðið að harkalegu kynlífi
sem hefði farið úr böndunum
og dauði hennar hefði verið
slys. Þá bentu lögfræðingarn
ir á að Catherine hefði verið
lögreglukona og hefði þá átt
að hafa burði til að verjast
Christopher ef hann hefði
ráðist á hana.
Þessi rök þóttu ekki trúverð
ug og Christopher var fund
inn sekur um morð. Hann var
dæmdur í ævilangt fangelsi.
Erfitt er að geta sér til
um ástæðu fyrir morðinu.
Christopher var með hreina
sakaskrá og ekki þekktur að
ofbeldi. Hegðun hans eftir
morðið bar hins vegar vitni
um siðblindu, hvernig hann
ætlaði að losa sig við líkið með
skipulögðum hætti og hvernig
hann gat tekið saman við kær
ustu sína rétt eftir morðið og
ætlaði að halda áfram með
líf sitt eins og ekkert hefði í
skorist. n
Lögreglukonan Catherine
Campell hvarf í kringum
11. september árið 2015.
Sagan gerist í héraðinu
Nova Scotia í Kanada, en
Catherine, sem var 36 ára
gömul, var einhleyp og
starfaði sem yfirlögreglu-
þjónn í bænum Truro.
Sjálf bjó hún í Dartmouth
og ók hvern dag til vinnu
sinnar. Hún fór þar yfir
Murray McKay brúna
sem tengir saman Hali-
fax og Dartmouth í Nova
Scotia. Þessi brú, eða
umhverfi hennar, kemur
við sögu síðar.
LÖGREGLUKONAN SEM HVARF OG
MAÐURINN MEÐ GRÆNU TUNNUNA
Eftirlitsmyndavélar sáu lögreglukonuna fara frá heimili sínu um miðnættið en hún
kom aldrei til baka. Lík hennar fannst fjórum dögum síðar við fjölfarinn stað.
Ágúst Borgþór
Sverrisson
agustb@dv.is
Catherine var 36 ára þegar hún hvarf . MYNDIR/KJÁSKOT AF YOUTUBE
Christopher
var fyrrver-
andi sjúkra-
flutninga-
maður.
Krufning leiddi í ljós að
banamein hennar var kyrk-
ing en auk þess var hún með
brákað nef og glóðarauga á
báðum augum.
22 FÓKUS 14. ÁGÚST 2020 DV