Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2020, Side 25
FYRIR PARTÝIÐ
UPPÁHALDS SPILIÐ
SAMVINNUSPIL
Álitsgjafar
DV spurði álitsgjafa um meðmæli með spilum í fimm
flokkum og ættu því vonandi flestir að finna eitthvað
sem hentar þeirra spilakröfum. Álitsgjafar DV að þessu
sinni eru:
Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir
borðspilasérfræðingur Nexus
Björn Leví Gunnarsson
þingmaður
Kristinn Haukur Guðnason
blaðamaður
Óskar Árnason
stjórnandi Borðspilaspjallsins
Sindri Eldon
borðspilaunnandi
Svanhildur Eva Stefánsdóttir
annar eigenda Spilavina
FÓKUS 25DV 14. ÁGÚST 2020
Uppáhalds spilið mitt breytist á hverjum einasta degi. Því er kannski auðveldara að tala um spilaflokka.
Núna hef ég áhuga á spilum sem eru upplifun í kassa. Þar eru fremst í flokki Unlock!-serían og Exit-
serían. Þetta eru þrautaherbergi (e. escape room) sem bjóða upp á nýja og spennandi ráðgátu í hverjum
kassa. Hugmyndarík hönnun og snjallar þrautir eru ómótstæðileg blanda fyrir alla spennufíkla.
– Bryndís
Risk 2210 A.D. Klassískt spil í nýjum búningi. Gríðarlega taktískt spil þar sem spennan helst frá fyrstu
mínútu fram á síðustu.
– Björn
Root. Geggjaðar teikningar í stríðsspili þar sem hvert lið spilast á gjörólíkan hátt í baráttu um yfirráð í
skóginum. Einn er að spila skilvirknisspil, annar forritunar-, þriðji með takmarkað magn af peðum og
fjórði er í því að leika Hróa Hött.
– Óskar
Uppáhalds spilið mitt núna er The Crew sem ég nefndi áðan. Ég á aldrei nein uppáhalds spil almennt
heldur bara það sem ég er að spila mest hverju sinni og núna er það samvinnuspilið The Crew.
– Svanhildur
Terraforming Mars. Sænskt spil sem kom út fyrir fjórum árum og hefur rækilega slegið í gegn og ekki
að ástæðulausu. Leikmenn stýra fyrirtækjum sem keppa innbyrðis um auð og völd en vinna jafnframt að
því saman að gera Mars að byggilegri plánetu. Það er virkilega ávanabindandi að byggja upp „vélina
sína“ og sjá hana stækka og dafna. Viðbæturnar eru líka frábærar, hver á sinn hátt, og ég myndi aldrei
spila án sumra þeirra.
– Kristinn Haukur
Star Trek Attack Wing er kannski uppáhalds spilið mitt, bara út af því að ég er svo mikið Star Trek-
nörd. Enginn annar leikur eða borðspil hefur látið mér líða jafnmikið eins og ég sé inni í minni eigin
Star Trek mynd/þætti, og það spil.
– Sindri
Joking Hazard. Svipað spil og Cards
Against Humanity og Kommenta-
kerfið.
– Björn
Ég spila mjög mjög lítið af partíspilum.
Einna þá helst í lok hvers spilakvölds
þegar pínu galsi er kominn í hópinn.
Þá er gjarnan gripið í Cards Against
Humanity, sem þykir nú ekki beint fínt
hjá borðspilaelítunni en er engu að
síður bráðskemmtilegt. Þetta er ansi
dónalegt og hálfviðbjóðslegt á köflum
og ekki fyrir alla. En í réttum hópi þar
sem allt má flakka er þetta gott.
– Kristinn
Scrawl. Teikni-hvísluleikur þar sem
skipst er á að teikna og skrifa eftir því
sem er undir. Því fyndnara því meiri
munur er á teiknigetu þátttakenda.
– Óskar
Medium myndi ég segja að væri uppá-
halds partíspilið mitt. Maður á að
finna sama orð og hinn er að hugsa og
það er svo fyndið að reyna að ná því.
– Svanhildur
Uppáhalds partíspilið mitt er Scrawl.
Það er eins og súrasti hvísluleikur í
heimi, með dass af dónaskap. Allir
leikmenn fá teikniblokk í hendurnar og
spjald með frasa sem er gerður til að
misskiljast þegar hann er teiknaður.
Spilið þar sem enginn hefur rétt fyrir
sér, en allir ganga sáttir frá borði.
– Bryndís
Uppáhalds partíspilið mitt er Magic
labyrinth. Segul-aspektið reynir
skemmtilega á handleiknina, og stuttar
5 stiga umferðir halda hlutum léttum
og hröðum.
– Sindri
Samvinnuspil ársins 2020 er án alls vafa geimfaraspilið The Crew.
Uppskriftin hljómar fáránlega: félagsvist, nema allir eru saman í liði!
En útkoman er vægast sagt ávanabindandi. Í bæklingnum eru fimmtíu
þrautir sem segja leikmönnum hvort, hvenær, hvernig og í hvaða röð
þeir eiga að ná slögum af borðinu, með samvinnuna að vopni. Auðvelt
að grípa í, hvort sem þú vilt spila í 10 mínútur eða heila kvöldstund.
– Bryndís Ósk
Ég myndi velja The Crew. Þetta er skemmtilegasta samvinnuspil sem ég
hef spilað. Maður á að taka slagi, svipað og í kana, nema allir eru að
vinna saman.
– Svanhildur
Samvinnuspil eru best ef þau eru erfið. Þess vegna myndi ég hiklaust
mæla með Robinson Crusoe þar sem leikmenn berjast við náttúruöflin
og safna vistum á harðneskjulegri eyðieyju. Kosturinn er líka sá að það
er hægt að spila mörg mismunandi ævintýri sem gjörbreyta spilinu í
hvert skipti. Samvinnuspil með földum svikara eru líka bráðskemmtileg,
til dæmis Shadows Over Camelot eða Battlestar Galactica.
– Kristinn Haukur
Pandemic. Spilarar hjálpast að við að ráða niðurlögum fjögurra
heimsfaraldra í einu.
– Björn
Ég er mjög lítið fyrir samvinnuspil, en synir mínir elska Forbidden
Island. Það er bæði nógu einfalt til þess að þeir nái utan um reglurnar,
og heldur þeim spenntum út allt spilið. Það verður vafalaust gaman að
spila Pandemic-spilin með þeim þegar þeir eldast.
– Óskar
Besta samvinnuspilið er tvímælalaust Mansions of Madness, sérstaklega
nýjasta útgáfan þar sem snjallsíma-app keyrir spilið fyrir þig. Engin
stærðfræði eða bókhald, bara þú og vinir þínir að drepa skrímsli og
leysa morðráðgátu.
– Sindri
MYND/GETTY
MYND/INSTAGRAM @SPILAVINIR