Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2020, Qupperneq 30
30 MATUR
Una í eldhúsinu
Kartöflu- og fennelsúpa
1 stk. fennel
3 stk. blaðlaukur
10 stk. meðalstórar kartöflur
4 stk. lárviðarlauf
1 lítri vatn
500 ml mjólk
Salt
Pipar
2 stk. grænmetisteningar
50 g smjör
1 msk. sítrónusafi
Byrjið á því að bræða smjör í potti
og saxið niður fennel, blaðlauk og
kartöflur og steikið upp úr smjör-
inu.
Hellið vatninu og mjólkinni saman
við og leyfið að sjóða aðeins þar til
grænmetið er orðið mjúkt.
Notið töfrasprota til að mauka allt
í pottinum.
Hrærið vel saman og leyfið að
sjóða áfram, bætið næst græn-
metisteningunum saman við og
sítrónusafanum.
Saltið og piprið vel og smakkið til,
lárviðarlaufunum er svo bætt út í
og þau látin sjóða með í um eina
klukkustund.
Fjarlægið lárviðarlaufin úr pottinum
áður en súpan er borin fram, berið
fram með góðu brauði eða salati
svo dæmi sé tekið.
Bláberjakaka
Mér fannst tilvalið að deila upp-
skrift að æðislegri köku með blá-
berjum þar sem fólk fer eflaust að
leggja leið sína í berjamó á næstu
dögum. Mér finnst tilvalið að nota
íslensku aðalbláberin í kökur eða
eftirrétti.
130 g smjör, brætt
1,5 dl sykur
3 dl hveiti
1 tsk. lyftiduft
2 stk. egg
200 g grísk jógúrt frá Örnu Ég nota
með vanillu og jarðarberjum
1 tsk. sítrónusafi
1 msk. vanilludropar
100 g bláber Hér fer það aðeins
eftir stærð berjanna og það
skemmir ekkert að hafa mikið
af bláberjum
Byrjið á því að stilla ofninn á 180
gráður.
Bræðið smjörið og leyfið því að
kólna aðeins.
Hrærið saman egg, sykur, jógúrt,
smjör, sítrónusafa og vanillu-
dropa.
Bætið hveitinu og lyftiduftinu
saman við og hrærið vel saman.
Að lokum er bláberjunum bætt út í
og hrært varlega með sleif.
Smyrjið eldfast form vel að innan
með smjöri eða olíu og setjið
deigið í og bakið í um 35 mínútur,
getur verið aðeins misjafnt eftir
ofnum en stingið í miðjuna með
pinna eða prjóni og ef hann kemur
þurr upp er kakan tilbúin.
Una Guðmundsdóttir tekur veiru-
og rigningartíð með stóískri ró.
Ódýr og góð súpa, kertaljós og
dásamleg og haustleg bláberja-
kaka heldur öllum á heimilinu vel
nærðum og kátum.
MYNDIR/AÐSENDAR
14. ÁGÚST 2020 DV