Morgunblaðið - 07.01.2020, Blaðsíða 27
þrifum eftir viðstöðulausa send-
ingu frá Khalil Ahmad. Sigur Kefl-
víkinga þegar á heildina er litið
var verðskuldaður. Heilt yfir voru
þeir betri í leiknum en veikleikar
liðsins sem áður hafa sést í vetur
létu ekki á sér kræla undir lokin
þegar ólseigir Tindastólsmenn
voru hársbreidd frá að koma sér
inn í leikinn á ný eftir að hafa lent
18 stigum undir.
En án þess að taka af þeim gest-
um frá Sauðárkróki þá er það nú
einu sinni þannig að það má aldrei
af þeim líta og sér í lagi þegar
andstæðingurinn er kominn í góða
forystu og byrjað að líða bara
nokkuð vel. Með sigrinum skella
Keflvíkingar sér einir í annað sæt-
ið en Tindastóll vermir það þriðja.
Keflvík fast á hæla Stjörnunni
Keflvíkingar einir í öðru sæti eftir sigur á Tindastóli Nýr leikmaður lítur vel
út Aðeins tveimur stigum á eftir toppliðinu Tvö töp í þremur hjá Tindastóli
Morgunblaðið/Skúli
Klemma Keflvíkingurinn Hörður Axel Vilhjálmsson sækir að Viðari Ágústssyni og Helga Rafni Viggóssyni í gær.
Í KEFLAVÍK
Skúli B. Sigurðsson
skulibsig@mbl.is
Það var sannkallaður toppslagur í
Dominos-deild karla í körfubolta í
gærkvöldi þegar Keflavík og
Tindastóll mættust í Keflavík í 12.
umferð deildarinnar. Liðin vermdu
2. og 3. sætið fyrir leik, með 16
stig. Eitthvað þurfti að gefa eftir
og líkt og í fyrstu umferðinni voru
það Keflvíkingar sem hirtu sig-
urinn og var lokastaðan 95:84.
Vitað var fyrir leik að bæði lið
væru með nýja leikmenn í sínum
röðum. Callum Lawson, flinkur
framherji hjá Keflavík, sýndi fína
takta en hjá Tindastóli lét Deremy
Geiger lítið fyrir sér fara á bekkn-
um þar sem tilskilin leyfi fyrir
hans þátttöku voru ekki komin í
hús. Með liðinu lék hinsvegar
áfram Gerald Simmons sem var
stigahæstur með 17 stig.
En óvíst er með áframhaldandi
veru hans á Sauðárkróki og sögur
herma að hann sé nú að leita sér
að nýju liði. Fullsnemmt er að
dæma um áhrif Callum Lawson á
það firnasterka lið sem Keflavík
teflir fram þetta árið. Þau skipti
Tindastólsmanna setur maður
kannski frekar spurningarmerki
við að skipta út Simmons á meðan
liðið er í öðru sæti deildarinnar
eftir nokkuð jafna fyrri umferðina.
En líkast til er það eitthvað sem
Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari
liðsins, vill breyta eða bæta og
tekur því þátt í því lotterí sem það
er að fá nýjan leikmann. En leik-
urinn í heild sinni var frábær
skemmtun og kræsingar körfu-
knattleiks fengu að njóta sín á
kostnað varnarleiksins megnið af
leiknum.
Tilþrif ársins
Tilþrif ársins gætu nú þegar
verið komin þó svo að aðeins séu
liðnir sex dagar af árinu, en Duane
Williams hjá Keflavík hóf sig á loft
í seinni hálfleik og tróð með til-
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2020
Íslenska karlalandsliðið í
knattspyrnu mætir Rúmeníu í
umspili fyrir lokakeppni EM karla
í knattspyrnu 26. mars næst-
komandi en leikurinn fer fram á
Laugardalsvelli í Reykjavík. Sig-
urvegarinn úr þeirri viðureign
mætir svo annaðhvort Búlgaríu
eða Ungverjalandi á útivelli 31.
mars um sæti í lokakeppninni.
Það er ekki laust við að maður
hafi smá áhyggjur af stöðu mála
hjá landsliðinu þessa stundina.
Ef Erik Hamrén ákveður að
treysta sínum reyndustu leik-
mönnum fyrir leiknum mikil-
væga gegn Rúmeníu, sem verður
að teljast afar líklegt, þá eru
margir leikmenn að glíma við
meiðsli eða án félags.
Hannes Þór Halldórsson og
Kári Árnason kláruðu sitt Ís-
landsmót í september og Ragnar
Sigurðsson er án félags. Ari
Freyr Skúlason er að jafna sig á
meiðslum en Guðlaugur Victor
Pálsson, sem mun að öllum lík-
indum leysa stöðu hægri bak-
varðar í leiknum, er að spila nán-
ast alla leiki með þýska
B-deildarliðinu Darmstadt.
Jóhann Berg Guðmundsson
er að glíma við enn ein meiðslin,
Gylfi Þór Sigurðsson á ekki sitt
besta tímabil og Aron Einar
Gunnarsson er að koma til baka
eftir meiðsli. Þá er Birkir Bjarna-
son án félags. Kolbeinn Sigþórs-
son er í fríi og spilaði síðast í
byrjun nóvember. Þá hefur Jón
Daði Böðvarsson verið inn og út
úr byrjunarliði Milwall á þessu
tímabili.
Það má því alveg segja að
hlutirnir hafi oft litið betur út hjá
strákunum en ef eitthvert lið
getur komið sér á stórmót í
þessu „ásigkomulagi“ þá er það
íslenska karlalandsliðið í knatt-
spyrnu og það gefur manni bæði
trú og von.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, gæti verið á
förum frá Everton en það er Foot-
ball Insider sem greinir frá þessu.
Miðilinn segist hafa heimildir fyrir
því að Carlo Ancelotti, nýráðinn
stjóri Everton, vilji selja Íslending-
inn til þess að fá inn fjármagn til
leikmannakaupa. Football Insider
greinir einnig frá því að félagið sé
tilbúið að láta Gylfa fara í janúar ef
það fái sæmilegt verð fyrir hann en
Gylfi er sagður metinn á 25 milljónir
punda í dag en hann var keyptur á
45 milljónir punda. bjarnih@mbl.is
Verður Gylfi seld-
ur frá Everton?
AFP
Everton Gylfi Þór Sigurðsson var
keyptur til félagsins árið 2017.
Ungverjar, sem verða andstæð-
ingar Íslands í riðlakeppni EM
karla í handbolta, verða án tveggja
mikilvægra leikmanna á mótinu.
István Gulyás, landsliðsþjálfari
Ungverja, tilkynnti að Máté Lékai
og Richárd Bodó yrðu ekki með
vegna meiðsla. Lékai hefur oftar en
ekki reynst Íslendingum erfiður.
Ísland og Ungverjaland mætast í
lokaumferð E-riðilsins miðvikudag-
inn 15. janúar en riðilinn er leikinn
í Malmö. Danmörk og Rússland eru
einnig í riðlinum og fara tvö efstu
liðin í milliriðla.
Lykilleikmenn
heltast úr lestinni
Ljósmynd/Ungverska handknattleikssambandið
Meiddur Máté Lékai verður ekki
með Ungverjum á EM.
Blue-höllin, Dominos-deild karla,
mánudag 6. janúar 2020.
Gangur leiksins: 8:8, 16:12, 20:16,
26:28, 32:32, 41:38, 44:42, 47:47,
56:51, 62:55, 72:60, 78:60, 78:65,
85:73, 85:78, 95:84.
Keflavík: Khalil Ullah Ahmad 27/8
fráköst/5 stoðsendingar, Dom-
inykas Milka 27/11 fráköst, Deane
Williams 13/6 fráköst/3 varin skot,
Hörður Axel Vilhjálmsson 12/5 frá-
köst/12 stoðsendingar, Callum
Reese Lawson 8, Guðmundur Jóns-
son 5, Ágúst Orrason 3.
KEFLAVÍK – TINDASTÓLL 95:84
Fráköst: 25 í vörn, 8 í sókn.
Tindastóll: Sinisa Bilic 18/5 frá-
köst, Gerel Simmons 17/6 frá-
köst/5 stoðsendingar, Jaka Brodnik
14, Viðar Ágústsson 13/4 fráköst,
Helgi Rafn Viggósson 7, Jasmin
Perkovic 6, Pétur Rúnar Birgisson
6/5 stoðsendingar, Friðrik Þór Stef-
ánsson 3.
Fráköst: 14 í vörn, 7 í sókn.
Dómarar: Sigmundur Már Her-
bertsson, Leifur S. Garðarsson, Jó-
hannes Páll Friðriksson.
Áhorfendur: 367.
Emil Hallfreðs-
son verður ekki í
íslenska landsliðs-
hópnum í knatt-
spyrnu sem er á
leið til Bandaríkj-
anna í æfingaferð.
Ísland mætir El
Salvador og Kan-
ada í vináttu-
landsleikjum dag-
ana 15. og 19.
janúar en leikið er í Kaliforníu. Emil
samdi við ítalska C-deildarliðið Pa-
dova um helgina en ítalska C-deildin
er í fullum gangi á meðan landsleik-
irnir eiga að fara fram og getur Emil
því tekið þátt í verkefninu. „Ég hafði
verið án félags í 5-6 mánuði og ég
vildi komast aftur í fótboltann,“ sagði
Emil sem sat fyrir svörum á blaða-
mannafundi Padova í gær. „Ég spil-
aði þrjá landsleiki og þrjá leiki með
FH, stærsta félagi Íslands. Ein-
hverjir halda að ég hafi hætt vegna
meiðsla, en svo er ekki og ég vil sanna
það að ég eigi nóg eftir. Ég vil sýna
hvers ég er megnugur og ég get ekki
beðið,“ bætti Emil við.
Það verður að teljast líklegt að
Erik Hamrén, þjálfari Íslands, kalli
inn annan leikmann í stað Emils en
alls voru sjö nýliðar valdir í hópinn
fyrir verkefnið í Bandaríkjunum.
sport@mbl.is
Emil fer
ekki með til
Kaliforníu
Emil
Hallfreðsson
Úrvalsdeildarlið Arsenal tryggði
sér sæti í fjórðu umferð enska bik-
arsins í fótbolta með 1:0-heimasigri
á Leeds United úr B-deildinni.
Leeds, sem er í toppsæti næst-
efstu deildar, var miklu sterkari að-
ilinn í fyrri hálfleik og fékk fjölmörg
færi til að komast óvænt yfir. Pat-
rick Bamford átti besta færi gest-
anna en hann negldi boltanum í
slána af stuttu færi.
Arsenal stóð hins vegar af sér
áhlaupið og kom sterkara til leiks í
seinni hálfleik.
Eftir tíu mínútur
af honum var
Reiss Nelson bú-
inn að skora sig-
urmarkið er
hann potaði bolt-
anum í netið af
stuttu færi. Lítið
var um opin
marktækifæri
eftir það og Ars-
enal gat fagnað sigri.
Í fjórðu umferð keppninnar verða
eftirtaldir leikir:
Watford eða Tranmere – Wolves
eða Man. Utd
Hull – Chelsea
Southampton – Middlesbrough
eða Tottenham
QPR – Sheffield Wed.
Bournemouth – Arsenal
Northampton – Derby
Brentford – Leicester
Reading eða Blackpool – Cardiff
eða Carlisle
West Ham – West Brom
Burnley – Norwich
Bristol Rovers eða Coventry –
Birmingham
Manchester City – Fulham
Rochdale eða Newcastle – Oxford
Portsmouth – Barnsley
Bristol City eða Shrewsbury –
Liverpool.
Liðin sem skildu jöfn í 3. umferð
mætast aftur 14. og 15. janúar en 4.
umferðin er leikin dagana 25. til 27.
janúar.
Arsenal nægði einn góður hálfleikur
Arsenal áfram í enska bikarnum Stórliðin sluppu hvert við annað í 4. umferðinni
Reiss
Nelson