Morgunblaðið - 07.01.2020, Side 28

Morgunblaðið - 07.01.2020, Side 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2020 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hildur Guðnadóttir tónskáld hlaut Golden Globe-verðlaunin í Los Ang- eles í fyrrakvöld, 5. desember, fyrir bestu frumsömdu tónlist við kvik- mynd, fyrir kvikmyndina Joker. Þykir nú enn líklegra að Hildur hljóti tilnefningu til Óskars- verðlauna fyrir sömu tónsmíðar og mögulega verðlaunin sjálf, þekkt- ustu kvikmyndaverðlaun heims. Samtök erlendra fjölmiðlamanna í Hollywood, Hollywood Foreign Press Association, standa að Golden Globe-verðlaununum sem veitt eru bæði fyrir það besta í kvikmyndum og sjónvarpsefni. Aðeins ein kona hefur áður hlotið Golden Globe-verðlaunin fyrir bestu frumsömdu tónlist í kvikmynd, sú fyrsta var Lisa Gerrard sem hlaut þau með Hans Zimmer árið 2001 fyrir tónlistina við Gladiator. Hildur er því fyrsta konan sem hlýtur verð- launin ein en ekki í samstarfi við annað tónskáld. Sópar til sín verðlaunum Hildur hefur hlotið fjölda verð- launa fyrir verk sín á undanförnum árum og fyrir tónlistina við Joker hefur hún þegar hlotið verðlaun á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum (sem voru veitt fyrir alla tónlistina í kvikmyndinni, líka lög eftir aðra), Satellite-verðlaunin, verðlaun kvik- myndagagnrýnenda í Phoenix og Las Vegas í Bandaríkjunum og Hollywood Music in Media-verð- launin, auk þess að vera tilnefnd til nokkurra að auki. Þá gerði Hildur það gott í fyrra með tónlist sinni við þættina Chernobyl, hlaut fyrir hana bandarísku Emmy-verðlaunin og World Soundtrack-verðlaunin, auk fjölda tilnefninga, m.a. til Grammy- verðlaunanna sem veitt verða 26. janúar næstkomandi. Enn eru ónefnd verðlaun sem hún hefur hlotið fyrir eldri verk, m.a. Edduverðlaun í tvígang fyrir Eiðinn og Ófærð og verðlaun á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Peking fyrir kvikmyndina Journey’s End. Og þannig mætti áfram telja en lista yf- ir tilnefningar og verðlaun sem Hild- ur hefur hlotið má finna á vefsíðunni Internet Movie Database, imdb.com. Mögnuð túlkun Leik- og söngkonan Jennifer Lop- ez afhenti Hildi gyllta hnöttinn á Beverly Hilton-hótelinu í Beverly Hills og sagðist Hildur vera orðlaus yfir vegsemdinni. Þakkaði hún leik- stjóra Joker, Todd Phillips, fyrir að bjóða henni í þetta ævintýralega ferðalag, treysta henni fyrir verk- efninu og trúa á hana. Þakkaði hún einnig aðalleikara myndarinnar, Joaquin Phoenix, fyrir að auðvelda sér verkið með magnaðri túlkun sinni á titilpersónunni, Jókernum. Þá þakkaði hún einnig samtökunum sem standa að verðlaununum sem þykja gefa góða vísbendingu um það sem koma skal á Óskarnum. Að verðlaunahátíð lokinni sat Hildur fyrir svörum og var hún m.a. spurð að því hvort fyrri kvikmyndir með Jókernum hefðu veitt henni innblástur. Sagðist hún telja að saga persónunnar hefði veitt henni inn- blástur og frábærar túlkanir ólíkra leikara á henni í fyrri kvikmyndum en hún hefði þó ekki viljað vera und- ir áhrifum frá neinum þeirra. „Það er alltaf dálítið hættulegt að vísa í önnur verk þegar þú ferð að kafa of- an í ákveðna persónu. Ég horfði því hvorki né hlustaði á túlkanir ann- arra á henni,“ sagði Hildur. Blaðamaður kvikmyndavefjarins The Hollywood Reporter var á svæðinu og bendir á að þrátt fyrir ungan aldur (Hildur er fædd árið 1982) hafi Hildur unnið við tón- smíðar í tæp 20 ár. Hún hefur hlotið mikla og verðskuldaða athygli und- anfarna mánuði bæði fyrir Cherno- byl og Joker og sagði hún á fyrr- nefndum blaðamannafundi að undanfarið ár hefði verið dásamlegt og ótrúlegt að fá slík tækifæri, það er að semja tónlist við þættina og kvikmyndina. Í raun stórkostlegt. Hvað hlut kvenna varðar í þessari deild kvikmyndalistarinnar, frum- saminni tónlist, sagðist Hildur hafa tekið eftir því undanfarin tíu ár eða þar um bil að konum væri ekki treyst fyrir umfangsmiklum verk- efnum. Hins vegar hefði athyglin beinst í auknum mæli að hlut kvenna í greininni á undanförnum tveimur árum og hún án efa notið góðs af því. „Ég tel fólk opnara núna fyrir því að treysta konum,“ sagði Hildur. Kvikmyndin Joker hlaut tvenn verðlaun þetta kvöld; fyrir besta leikara í aðalhlutverki í dramatískri kvikmynd, Joaquin Phoenix, auk verðlauna Hildar. Myndin hlaut fjór- ar tilnefningar. Brýtur blað í sögu hnattarins  Hildur Guðnadóttir varð fyrst kvenna til að hljóta, án samstarfs við aðra, Golden Globe-verðlaunin fyrir bestu frumsömdu tónlist í kvikmynd, fyrir Joker  Segir Joker og Chernobyl einstök tækifæri AFP Heiður Hildur Guðnadóttir með verðlaunagripinn, Gyllta hnöttinn. Kvikmynd Quentins Tarantino, Once Upon a Time … in Hollywood, hlaut flest verðlaun á Golden Globe- hátíðinni að þessu sinni, eða þrenn talsins. Einhverra hluta vegna var hún sett í flokk söngva- og gaman- mynda, þó að hún sé hvorugt, að mati blaðamanns. Vissulega má þó finna í henni spaugileg atriði og hlaut myndin verðlaun sem sú besta í þeim flokki og einnig fyrir besta frumsamda handrit og besta karl- leikara í aukahlutverki, Brad Pitt. Besta kvikmyndin í dramaflokki þótti 1917 og hlaut leikstjóri hennar, Sam Mendes, einnig verðlaun sem sá besti í faginu. Sjónvarpsþáttarað- irnar Fleabag og Succession hlutu tvenn verðlaun hvor og leikkonan Awkwafina varð fyrst bandarískra kvenna af asískum uppruna til að hljóta Golden Globe-verðlaun sem besta leikkona í söngva- eða gaman- mynd. Athygli vakti að þær kvikmyndir Netflix-streymisveitunnar sem til- nefndar voru hlutu afar fá verðlaun. Voru það kvikmynd Martins Scors- ese, The Irishman, Marriage Story eftir Noah Baumbach og Two Popes eftir leikstjórann Fernando Meirel- les. Laura Dern hlaut verðlaun sem besta leikkona í aukahlutverki í kvikmynd fyrir leik sinn í Marriage Story og Olivia Colman var verð- launuð sem besta leikkona í drama- tískri sjónvarpsþáttaröð fyrir túlkun sína á Elísabetu II. Englandsdrottn- ingu í The Crown sem Netflix fram- leiðir. Dagblaðið The Guardian er meðal þeirra fjölmiðla sem benda á hversu skarðan hlut Netflix bar frá borði, aðeins tvenn verðlaun af 34 sem verk streymisveitunnar voru til- nefnd til, 17 í flokki kvikmynda og 17 í flokki sjónvarpsþáttaraða. Þykir sérstaklega áhugavert að kvikmynd Scorsese, The Irishman, marglofuð og margtilnefnd, skyldi engin verð- laun hljóta. Erfitt er að segja hvað veldur og var Netflix ekki eina risa- fyrirtækið sem þurfti að láta í minni pokann því Disney hlaut ekki verð- laun fyrir bestu teiknimynd, þrátt fyrir að hafa framleitt þrjár af þeim fimm sem tilnefndar voru. Verðlaun- in hlaut Missing Link. AFP Tómhentur Martin Scorsese hlaut engin verðlaun fyrir The Irishman. Netflix hunsað? „Hún er með mjög stórt fingra- far því hún er svo glæsilegur flytjandi líka og þekkir svo rosalega vel hljóð- færin sem hún skrifar fyrir og notar hvað mest. Sellóið hefur náttúrlega verið í forgrunni og ýmsar varíasjónir af sellóum, hún er líka með sérsmíðuð hljóðfæri sem eru alveg einstök. Hún er svo teknískt fær, það er svo mikill styrkur hjá henni, blæbrigðin eru svo stór og mikil vegna þess að hún þekkir tæknina út í hörgul,“ segir Hilmar Örn Hilmarsson tónskáld, spurður að því hvað einkenni tónlist Hildar. „Mér finnst hún alveg dásamleg og mjög Hildar-leg,“ segir hann um tónlistina við Joker. „Þessi músík er svo einstök, það er rosalega erfitt að horfa framhjá því hvað hún kemur úr sérstakri átt. Þetta var líka styrkur Jóhanns heit- ins Jóhannssonar, hann var ekkert að fylgja hefðum held- ur bjó þær til og maður getur séð hvernig hann hefur haft áhrif á tónsmíðar frá því hann fór að vekja athygli. Að sjálf- sögðu eru líkindi milli Jóhanns og Hildar – og ég er alls ekki að gera lítið úr Hildi því hún á þetta svo gjörsamlega ein – en það sem við getum sagt er að það sem þau gera er ótrú- lega flott og einstakt.“ Stórt fingrafar HILMAR UM HILDI Hilmar Örn Hilmarsson Smiðshöfða 9 , 110 Rvk. logoflex@logoflex.is 577 7701 www.logoflex.is Ljósaskilti fyrir þitt fyrirtæki LogoFlex sérhæfir sig í framleiðslu skilta, prentunum og smíði úr plasti ásamt efnisölu í plexigleri og álprófílum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.